Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Page 21
Fréttir Erlent 21Helgarblað 19.–22. september 2014
Alræmdur morðingi
fær leyfi til að deyja
n Den Bleeken fær heimild til líknardauða n Mikil aukning á síðustu árum
B
elgískur dómstóll hefur veitt
Frank Van Den Bleeken,
alræmdum nauðgara og
morðingja, leyfi til binda
enda á líf sitt. Líknardráp
eru lögleg í Belgíu en Van Den
Bleeken, sem er fimmtugur, afplán-
ar nú lífstíðarfangelsi fyrir fjölmörg
kynferðisbrot og morð sem hann
framdi á níunda áratug liðinnar ald-
ar. Hann hefur setið inni undanfarin
þrjátíu ár en segist þrátt fyrir fanga-
vistina ekki getað stjórnað löngun-
um sínum.
Málið vakti talsverða athygli í
vikunni en líknardráp á lögráða
einstaklingum voru gerð lögleg í
Belgíu árið 2002. Varð Belgía þar
með annað ríkið í heiminum til að
heimila líknardráp, á eftir Hollandi.
Á síðasta ári bundu 1.807 manns
enda á líf sitt í Belgíu með þessum
hætti. Barátta Van Den Bleeken fyrir
réttinum til að deyja hefur staðið yfir
um nokkurra ára skeið. Flest bend-
ir til þess að hann verði fluttur úr
fangelsinu í Brugge, þar sem hann
afpánar dóm sinn, á næstu dögum
á sjúkrahús þar sem læknar munu
sprauta hann með banvænu lyfi.
Upplýst ákvörðun
Ströng skilyrði eru fyrir líknardrápi
í Belgíu, að því er AFP-fréttastof-
an greinir frá. Í flestum tilfellum er
um að ræða sjúklinga sem haldnir
eru banvænum sjúkdómum, en það
er þó ekki algilt eins og dæmið Van
Den Bleeken sýnir. Sjúklingar þurfa
meðal annars að vera í ástandi til að
geta tekið upplýsta og vel ígrundaða
ákvörðun og tekur þetta ferli oftar en
ekki nokkur ár. Þá þurfa sjúklingar
að sýna fram á að þeir þjáist mjög
líkamlega eða andlega. Verjandi Van
Den Bleeken, Vander Velpen, seg-
ir við AFP að skjólstæðingur hans
hafi uppfyllt öll þessi skilyrði og þess
vegna fengið leyfið. „Ég er mann-
eskja, alveg sama hvað ég hef gert
þá er ég enn manneskja. Þannig að
já, gefið mér leyfi til að deyja líknar-
dauða,“ sagði Van Den Bleeken í við-
tali ekki alls fyrir löngu.
Hættulegur samfélaginu
Sjálfur telur Van Den Bleeken að
hann sé enn hættulegur samfé-
laginu og hann geti aldrei geng-
ið um frjáls nema eiga á hættu
að brjóta af sér aftur. Hann hefur
sjálfur hafnað því að fá reynslu-
lausn, af einmitt þessari ástæðu,
en hefur látið hafa eftir sér að að-
stæðurnar sem hann sé í séu ekki
manneskjulegar. Á þeim 30 árum
sem Van Den Bleeken hefur ver-
ið í fangelsi hefur hann einungis
einu sinni farið út fyrir veggi fang-
elsisins, en það var til að vera við-
staddur útför móður sinnar. Að
sögn AFP sótti Van Den Bleeken
fyrr á þessu ári um að vera færður
yfir í annað fangelsi fyrir andlega
vanheila glæpamenn í Hollandi
en umsókn hans var hafnað. Þess í
stað var honum boðið pláss á sam-
bærilegri stofnun sem til stendur
að opna í Belgíu seinna á árinu en
hann hafnaði því og valdi frekar að
deyja líknardauða.
Líknardráp á börnum lögleg
Lög sem heimila líknardráp hafa
verið nokkuð umdeild í Belgíu allt
frá því að þau tóku gildi. Í febrú-
ar á þessu ári stigu belgísk yfir-
völd enn stærra skref þegar þau
heimiluðu líknardráp á börnum
sem þjást af banvænum sjúkdóm-
um – svo framarlega sem þau geti
sjálf tekið lokaákvörðunina. Olli
þessi breyting talsverðu fjaðrafoki
í belgísku samfélagi. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Aðgerðin mistókst
Nathan Verhelst vildi verða karlmaður
Sem fyrr segir eru fjölmörg líknardráp
framin í Belgíu á ári hverju og fer þeim
fjölgandi ár frá ári. Á síðasta ári vakti mál
Belgans Nathans Verhelst mikla athygli en
hann ákvað að deyja líknardauða eftir að
kynleiðréttingaraðgerð sem hann undir-
gekkst mistókst. Verhelst, sem fæddist í
líkama konu, hóf kynleiðréttingaraðgerð
árið 2009. Aðgerðin hófst eins og venja
er með hormónameðferð en árið 2012
var búinn til limur og græddur á hann.
Aðgerðin mistókst hins vegar hrapallega
og í kjölfarið leitaði Verhelst eftir leyfi til
að deyja. Honum varð að ósk sinni og lést
hann 2. október í fyrra. Var hann sprautað-
ur með banvænu lyfi. Líknardráp eru orðin
svo algeng í Belgíu að nú er svo komið að
1 af hverjum 50 andlátum þar í landi eru
tilkomin vegna líknardráps. Árið 2011 dóu
1.133 manns líknardauða þar í landi en
1.432 árið 2012. Eins og kemur fram hér á
síðunni var metfjöldi líknardrápa á síðasta
ári þegar 1.807 manns bundu enda á líf sitt
með þessum hætti.
Leyfi til að deyja Den
Bleeken telur að hann sé
enn hættulegur samfé-
laginu. Hann var dæmdur í
lífstíðarfangelsi fyrir fjölmörg
kynferðisbrot og morð.
Banvænt lyf Van
Den Bleeken verður
sprautaður með ban-
vænni lyfjablöndu.
Mistókst Kynleið-
réttingaraðgerðin
sem Verhelst gekkst
undir mistókst.
Játaði 40
árum síðar
Loks er komin fram játning á
morði sem framið var á hinni 17
ára Mary Jayne Jones árið 1974.
Jones sást síðast á lífi þann
9. apríl 1974 þegar hún var á
ferð í bænum Ottumwa í Iowa í
Bandaríkjunum.
Nokkru síðar fannst illa
útleikið lík hennar á bónda-
býli skammt frá bænum og gáfu
vegsummerki til kynna að hún
hefði orðið fyrir kynferðislegri
árás áður en hún var skotin til
bana.
Fljótlega féll grunur á 27 ára
karlmann, Robert Pilcher, en
bóndabýlið sem líkið fannst
á var í eigu frænku hans. Ein
helsta ástæða þess að grun-
ur féll á hann var sú að fjórum
dögum áður en líkið fannst
hafði hann lokkað unga konu á
bóndabýlið, en sú sagðist hafa
orðið fyrir kynferðislegri árás af
hans hálfu.
Þrátt fyrir að margt benti til
þess að Pilcher hefði framið
ódæðið hélt hann staðfastlega
fram sakleysi sínu og þá fund-
ust engin sönnunargögn sem
tengdu hann við morðið.
Árið 2010 var ákveðið að taka
upp rannsókn málsins að nýju
og meðal gagna sem rannsök-
uð voru voru lífsýni sem tekin
voru á vettvangi. Sem fyrr seg-
ir hefur Pilcher nú játað á sig
verknaðinn enda fundust líf-
sýni úr honum á vettvangi. Sak-
sóknarar gerðu samkomulag
við Pilcher um að ef hann ját-
aði myndu þeir ekki fara fram á
lífstíðarfangelsisdóm yfir hon-
um. Varð niðurstaðan sú að far-
ið yrði fram á tíu ára fangelsi
sem dómarinn í málinu féllst á.
Pilcher er í dag 68 ára.
Reyndi að
synda til
Norður-Kóreu
Bandarískur karlmaður var
handtekinn undan ströndum
Suður-Kóreu. Maðurinn fannst
örmagna við bakka Han-árinn-
ar skammt frá landamærum
Norður-Kóreu, en hann tjáði
landamæravörðum að hann
hefði ætlað að synda yfir til
Norður-Kóreu, meðal annars í
þeim tilgangi að hitta Kim Jong-
un, leiðtoga Norður-Kóreu.
Þetta stórhættulega uppá-
tæki hefði eflaust getað kostað
manninn lífið, en í fyrra var
suðurkóreskur karlmaður skot-
inn til bana af landamæravörð-
um eftir að hafa ætlað að synda
til Norður-Kóreu. Maðurinn,
sem er um þrítugt, er nú í haldi
yfirvalda í Suður-Kóreu, að sögn
CNN.
n Uppnám vegna kosningasigurs Sverigedemokraterna