Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Síða 22
22 Skrýtið Helgarblað 19.–22. september 2014 Skrýtnar og skemmtilegar staðreyndir um Rússland n Rússland er jafn stórt og Plútó n Íbúum fækkar og fækkar n Nota níu tímabelti Rússland hefur verið mikið í fréttum á þessu ári, meðal annars vegna Vetrarólympíuleikanna í Sochi og forsetans Vladimírs Pútín sem hefur verið að hnykla vöðvana, að þessu sinni í Úkraínu. Vefritið Business Insider tók fyrir skemmstu saman nokkrar magnaðar stað- reyndir um þetta risastóra og fjölmenna ríki sem teygir sig ansi víða. Jafn stórt og Plútó n Já, þið lásuð rétt. Rússland er stærsta ríki heims, 17 milljónir ferkílómetrar. Litla Ísland er bara 103 þúsund ferkílómetrar og því er Rússland 165 sinnum stærra. Þetta er ótrúleg stærð en til samanburðar er plánetan Plútó aðeins 16,6 milljónir ferkílómetra. Ótrúlegar olíuleiðslur n Rússland er auðugt af náttúruauðlindum og selja Rússar gríðarlegt magn af gasi til nágrannaríkja sinna í Evrópu. Til þess að flytja þessar afurðir; olíu, gas og eldsneyti þarf öflugt leiðslukerfi. Heildarlengd rússneska leiðslukerfisins – sem flytur allar þessar afurðir, bæði innanlands og utan – er hvorki meira né minna en 259.913 kílómetr- ar. Til samanburðar er ummál jarðar 40.075 kílómetrar. Rússum fækkar og fækkar n Rússneska þjóðin hefur elst mikið á undanförnum árum og hefur Rússum fækk- að um 6,6 milljónir frá árinu 1993. Þetta svarar til alls íbúafjölda Jórdaníu, Paragvæ eða El Salvador. Árið 2010 voru íbúar Rúss- lands 142 milljónir en mannfjöldaspár gera ráð fyrir að þeim muni fækka niður í 126,6 milljónir fyrir árið 2050. Ríkt af auðlindum n Sem fyrr segir er Rússland auðugt af náttúruauðlindum eins og jarðgasi. Birgðir Rússa af jarðgasi myndu duga til að fylla 13,2 milljarða sundlauga í Ólympíustærð. Fyrir þá sem ekki vita eru slíkar laugar 50 metra langar, 25 metra breiðar og að jafnaði um þriggja metra djúpar. Olían dugar í 75 ár n Áfram af náttúruauðlindum Rússa. Rúss- land notar að jafnaði 3,2 milljónir tunna af olíu á dag en olíubirgðir Rússa eru að minnsta kosti 87 milljarðar tunna. Ef Rússar halda þessari notkun sinni nokkurn veginn óbreyttri munu olíuauðlindirnar duga þeim í að minnsta kosti 75 ár til viðbótar. Níu tímabelti n Rússland teygir sig víða, svo víða að níu mismunandi tímabelti eru í landinu. Áður voru reyndar ellefu tímabelti notuð en árið 2010 var þeim fækkað niður í níu. Ástæðan fyrir þessu var sú að það flæktist stundum fyrir fólki að hafa svo mörg tímabelti. Há morðtíðni n Morðtíðni í Rússlandi er um tvöfalt hærri en í Bandaríkjunum – og þá er nokkuð mikið sagt. 9,7 af hverjum hundrað þúsund íbúum eru drepnir á ári í Rússlandi, en til saman- burðar eru 4,7 af hverjum hundrað þúsund íbúum drepnir í Bandaríkjunum. Drekka mikið n Rússar drekka að meðaltali 6,3 skot af áfengi í hverri viku að meðaltali samkvæmt tölum sem Euromonitor birti ekki alls fyrir löngu. Til samanburðar drekka Bandaríkja- menn 3,3 skot af áfengi í hverri viku. Hvorki Rússar né Bandaríkjamenn komast þó með tærnar þar sem Suður-Kóreumenn hafa hælana. Þeir skola niður 13,7 skotum í viku að meðaltali. Stórhættulegt vatn n Karachy-vatn við suðurhluta Úralfjalla er líklega eitt hættulegasta vatn í heimi, eða því sem næst. Gríðarlegur kjarnorkuúr- gangur er í vatninu, þannig er fullyrt að ef manneskja við hestaheilsu myndi standa við vatnið í eina klukkustund myndi hún verða fyrir svo mikilli geislun að hún dæi. Seldu Alaska n Alaska tilheyrir Bandaríkjunum en það hefur ekki alltaf verið þannig. Allt til ársins 1867 tilheyrði Alaska Rússlandi en það ár ákváðu yfirvöld í Rússlandi að selja þetta gríðarstóra landsvæði til Bandaríkjamanna. Hver ferkílómetri kostaði 4,74 Bandaríkjadali og greiddu Bandaríkjamenn samtals 7,2 milljónir Bandaríkjadala fyrir Alaska. Upp- hæðin jafngildir um 120 milljónum dala í dag. Með riffla á lofti Rúss- neskir hermenn bregða á leik fyrir framan eitt þekktasta kennileiti Moskvu, höfuð- borgar Rússlands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.