Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Síða 25
Helgarblað 19.–22. september 2014 Umræða 25
Endurútreikninga vantar
Elsa Lára Arnardóttir
þingmaður Framsóknarflokksins
Kjallari
Í
sumar hef ég unnið að ýmsum
málum er tengjast gengistryggð-
um lánum og lögmæti þeirra. Til
mín hafa leitað einstaklingar sem
voru með gengistryggð lán hjá
fjármálastofnunum. Þessir einstak-
lingar eiga það allir sameiginlegt,
að þeir eru að reyna leita réttar síns
vegna lánanna en baráttan gengur
því miður illa, svo vægt sé til orða
tekið. Í öllum tilfellum er um að
ræða lán sem kom þeim í þrot. Þess
ber að geta að sams konar lán, sem
inniheldur sömu lánaskilmála, hef-
ur verið dæmt ólöglegt fyrir Hæsta-
rétti. Þrátt fyrir það þá neita fjár-
málastofnanirnar að endurreikna
lánin nema að þessir einstaklingar
fari í mál við bankann.
Ég ætla hér að segja ykkur stutta
sögu sem er einmitt lýsandi dæmi
fyrir þá einstaklinga sem til mín
hafa leitað.
Raunverulegt dæmi
Þessi raunverulega saga segir frá
einstaklingi sem var með geng-
istryggt lán frá fjármálastofnun. Í
kjölfar af hruninu, á haustmánuð-
um 2008, þá hækkaði lánið upp úr
öllu valdi. Samningaviðræður um
afborganir voru í fullum gangi við
viðskiptabanka viðkomandi, en
skiluðu engum árangri. Þetta endar
með því að einstaklingurinn fer í
þrot. Þetta gerist aðeins örfáum
dögum eftir að sams konar lán, með
sömu lánaskilmála, voru dæmd
ólögleg fyrir Hæstarétti.
Neita að leiðrétta
Þessi einstaklingur sem sagan fjall-
ar um, hefur reynt að leita réttar
síns. Hann hefur óskað eftir endur-
útreikningum hjá viðskiptabank-
anum en þar er því neitað, nema
hann fari í mál við bankann. Gerum
okkur grein fyrir að lítill hluti fólks í
þessari umræddu stöðu, hefur fjár-
hagslegt bolmagn til að fara á móti
fjármálastofnunum. Að vísu er hægt
að sækja um gjafsókn í þessum mál-
um, en skilyrðin eru mjög þröng.
Leitað hefur verið til hag-
fræðings hjá virtri stofnun sem
komst að því að endurreikna þurfi
lánin þar sem þau væru ólögmæt
og að einstaklingurinn ætti inni hjá
fjármálastofnuninni í kringum 40
milljónir króna. Matsmaður hef-
ur verið ráðinn til að fara yfir lán-
in, en hann var samþykktur bæði
af báðum aðilum, þ.e. bankanum
og einstaklingnum. Matsmaður-
inn komst að sömu niðurstöðu og
hagfræðingurinn. Þrátt fyrir þetta
þá neitar fjármálastofnunin enn að
endurreikna lánin.
Gengið á veggi
Leitað hefur verið til ýmissa stofn-
ana sem eiga að tryggja hag neyt-
enda og hafa aðhalds- og eftirlits-
skyldu með fjármálastofnunum.
Það hefur ekki gengið vel því það
virðist sem enginn geti tekið á
þessu máli og allir sem leitað hefur
verið til, benda á aðra í þessu máli.
Að lokum
Mikilvægt er að fundin verði leið
til að þrýsta á fjármálastofnanir
til að klára þau mál sem enn eru
eftir í endurútreikningi gengis-
tryggðra lána. Við sem sitjum á Al-
þingi verðum að skoða þessi mál
og reyna eftir fremsta megni að
tryggja, að einstaklingar geti sótt
rétt sinn í hinum ýmsu neytenda-
málum. n
„Þessi
einstaklingur
sem sagan fjallar
um, hefur reynt að
leita réttar síns.
Mest lesið
á DV.is
1 Ung kona svipti sig lífi á Vogi 22 ára kona svipti sig lífi á
sjúkrahúsinu Vogi á föstudagskvöldið.
Samkvæmt heimildum DV hafði konan
barist við fíkniefnadjöfulinn um
nokkurt skeið en þeirri baráttu lauk á
sorglegan hátt.
60.658 hafa lesið
2 Íslenskur barnaníðingur setur upp barnaleikrit
Þann 25. október næstkomandi mun
unglingaleikhópurinn Alverna – álfarnir
– frumsýna leikritið Alven och den
hemliga grottan – Álfurinn og
leynihellirinn - í Borlänge í Svíþjóð.
Leikritið er eftir Björn Maron Grétarsson
en það er dulnefni Sigurbjörns Sævars
Grétarssonar sem var árið 2004
dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir
kynferðisbrot gegn fimm piltum.
37.372 hafa lesið
3 „Þú varst alltaf svo klár stelpa Una, þú gætir
orðið hvað sem þú vilt“
Tónlistar- og leikskólakennarinn Una
Stef birti pistil á Facebook-síðu sinni á
dögunum þar sem hún svarði gagnrýni
föður gamallar skólasystur.
35.289 hafa lesið
4 Stal osti til að gleðja börnin Tveggja barna móðir í
litlu bæjarfélagi á Suðvesturlandi stal
osti úr Bónus til þess að gleðja börnin sín.
Móðirin segist hafa brotið stóra reglu í lífi
sínu með þjófnaðinum en þetta hafi hún
gert til þess að sjá börnin sín brosa.
29.355 hafa lesið
5 Toppar spítalans gistu á glæsihóteli Yfirmenn
Landspítala Íslands héldu á dögunum
þriggja daga ráðstefnu á einu
glæsilegasta og dýrasta hóteli landsins,
Ion Luxury Adventure Hotel, við Þingvelli.
29.000 hafa lesið
DJ Margeir lenti í hrekkjalómi og fékk bréf þar sem sagt var að hann ætti dóttur. – Facebook
Er ekki í lagi að ég
snúi svona að þér
Ég vaknaði
alveg lömuð
Maria Jimenez Pacifico sagði frá því hvernig henni var byrluð ólyfjan og nauðgað. – Ísland í dag
Já, ég er búin að leggja
inn mína uppsögn
Hulda Bjarnadóttir er hætti í Bítinu á Bylgjunni. – Séð og heyrtHanna Birna Kristjánsdóttir í viðtali við Björn Inga Hrafnsson. – Eyjan
Myndin Turninn rís Verktakar eru nú í óða önn að reisa nítján hæða turn í Skuggahverfi við Skúlagötu. Turninn er nokkuð umdeildur og hefur verið sagður eyðileggja dýrmætt útsýni. Staðsetningin er þó löngu samþykkt á öllum stigum í borgarkerfinu. MyND siGTRyGGuR ARi