Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Page 38
Helgarblað 19.–22. september 201438 Lífsstíll
Mittismálið
lengist
Meðalmittismál Bandaríkja-
manna hefur lengst um rúmlega
tvo og hálfan sentimetra á ein-
um áratug. Þetta kemur fram í
nýrri rannsókn.
Vísindamenn skoðuðu tæp-
lega 33 þúsund einstaklinga á
tímabilinu. Árið 2012 var mittis-
málið komið upp í 98,5 senti-
metra en var 95,5 sentimetrar
árið 1999.
Niðurstöðurnar ganga gegn
niðurstöðum fyrri rannsókna
sem studdust við BMI-líkams-
þyngdarstuðulinn en samkvæmt
þeim hafði hlutfall of feitra ekki
breyst frá 2003 til 2012.
Einveran getur
verið banvæn
Nýleg rannsókn sem gerð var af
University College London sýn-
ir fram á að einangrun frá öðru
fólki eykur líkurnar á dauðsfalli
um 26% borið saman við félags-
lyndara fólk á sama aldri. Áður
var því haldið fram að það væri
í raun einmanaleiki sem hefði
þessi áhrif en rannsóknin sýndi
ekki fram á tengsl þar á milli.
Þegar fólk eyðir mestum tíma
sínum eitt síns liðs þá aukast lík-
urnar á því til muna að enginn sé
til staðar til að hringja á sjúkrabíl
ef eitthvað gerist. Þess utan hef-
ur verið sýnt fram á að samskipti
við annað fólk dragi úr streitu og
bólgum í líkamanum.
Flóknar og
sársaukafullar
Verkfræðingar, hönnuðir, mæð-
ur og heilsusérfræðingar munu
koma saman seinna í mánuðin-
um í von um að hanna nýja
brjóstapumpu. MIT-háskólinn
í Bandaríkjunum stendur fyrir
sérstakri ráðstefnu þar sem hóp-
ur sérfræðinga úr ýmsum áttum
ætla að leggja málefninu lið.
Ástæða þess er umfjöllun
um litla þróun á brjóstapump-
um. Þar kom fram að pumpurnar
væru flóknar og jafnvel sársauka-
fullar í notkun.
Þeir sem vilja kynna sér ráð-
stefnuna betur er bent á vefsíð-
una breastpump.media.mit.edu.
Plastpokalaus
Stykkishólmur
n Vilja helst ekki urða plast n Flestar verslanir hættar að bjóða upp á plastpoka
F
ólki hefur fundist þetta af-
skaplega skemmtilegt fram-
tak,“ segir Róbert Arnar Stef-
ánsson, stjórnarmaður í
Umhverfishópi Stykkishólms
en þann 12. september síðastliðinn
var burðarplastpokinn kvaddur í
Hólminum. „Þetta hefur gengið
afar vel og langflestir tekið þessu
verkefni fagnandi.“ Aðeins Bónus
treystir sér ekki eins og er til að taka
skrefið til fulls en þar er samt verið
að vinna í málinu. „Allar breytingar
hafa í för með sér einhverjar efa-
semdir hjá fólki. En við í Umhverfis-
hópnum tökumst á við það með
fræðslu og ráðgjöf. Það er aðallega
óvissan sem fer illa í fólk.“
Fyrir sex árum ákvað bæjar-
stjórnin að allir í bænum fengju
þrjár ruslatunnur fyrir utan hús-
ið sitt, eina fyrir lífrænan úrgang,
aðra fyrir endurvinnanlegt efni og
þá þriðju fyrir óendurvinnanlegt
efni. „Það vefst aðallega fyrir
fólki hvernig það
getur hent
almenna ruslinu án þess að nota
plastpoka. En við mælum eindregið
með því að fólk noti maíspoka, það
er gott úrval af þeim og nú í október
kemur nýr poki á markað sem er
enn sterkari og meira eins og venju-
legir plastpokar. Maíspokarnir eru
góðir að því leyti til að þeir brotna
niður í náttúrunni.“
Plastpokalaus til frambúðar
Markmið Stykkishólms er að allt
plast verði endurunnið og ekkert af
því verði urðað þar sem það brotnar
ekki niður. Byrjunin er þó að hætta að
vera með plastpoka í búðum. „Ekki
er um að ræða bann við plastpok-
um, heldur höfum við hvatt alla til að
vera með. Búðum er það í sjálfsvald
sett hvort þær bjóði upp á margnota
poka, maíspoka eða bréfpoka.
Vonin er auðvitað sú að Stykkis-
hólmur verði plastpokalaus bær
til frambúðar. Ég hef heldur
enga trú á því að þeir verslun-
areigendur og aðrir sem skipt
hafa út venjulegum plastpok-
um í annað fari aftur í plast-
ið,“ segir Róbert. Enn sem
komið er eru upplýsingar
um verkefnið aðeins til á
íslensku en vonandi verð-
ur einnig hægt að bjóða
upp á kynningarefni á
ensku. „Það er lítið fé-
lag sem sér um þetta
og þó við fáum hjálp
frá bæjarbúum þá er
þetta að miklu leyti
gert í sjálfboðavinnu.
Það stendur reyndar
í lógóinu „plastic bag
free“ en það veltur þá á
búðarfólkinu að útskýra
hvað það þýðir fyrir ferða-
mönnunum. Við erum búin
að vera í góðu sambandi við
það svo það ætti að kunna svörin
við helstu spurningum.“
Vonandi taka fleiri þátt
Eins og er, er þetta tilraunaverkefni
hjá Umhverfishópnum. Þau vildu
sjá hvort þetta væri hægt en líka
hvort það væri vilji fyrir því að fara
í þessar aðgerðir. „Það kom fljótt í
ljós að þetta er hægt og draumur-
inn er nú að fleiri bæjarfélög og
fyrir tæki taki þetta upp. En þó verk-
efnið sé komið langt á leið þá er því
alls ekki lokið, það þarf til dæmis að
vinna að því með Bónus að draga
verulega úr og vonandi hætta plast-
pokanotkuninni. Það er samt að
sumu leyti skiljanlegt að það taki
lengri tíma fyrir svo stórt fyrir-
tæki að taka skrefið alla leið,“ segir
Róbert að lokum. n
Helga Dís Björgúlfsdóttir
helgadis@dv.is
„Búðum er það
í sjálfsvald sett
hvort þær bjóði upp á
margnota poka, maís-
poka eða bréfpoka.
Umhverfis-
vænt
samfélag
Flestar verslanir
í Stykkishólmi eru
hættar að bjóða
upp á plastpoka.
MynD SHUtterStock
róbert Arnar Stefánsson Stjórnarmaður í Umhverfishópi Stykkishólms.
Umbúðalaus matvöruverslun
Viðskiptavinir koma sjálfir með ílát
Þ
ýska fyrirtækið Original
Unver packt hefur opnað
verslun í Berlín þar sem allar
vörur eru til sölu án umbúða.
Fólk kemur með sín eigin endur-
nýtanlegu ílát til að kaupa allt frá
ávöxtum, grænmeti og kornmeti til
jógúrts, handáburðar og sjampós.
Einhverjir vökvar eru seldir í flösk-
um en svipað því sem Endur-
vinnslan og Sorpa býður upp á hér,
þá fær fólk pening fyrir að skila
þeim aftur í búðina.
Búðin er hópfjármagnað til-
raunaverkefni en í versluninni eru
mestmegnis seldar lífrænar vörur
og er hver og ein merkt uppruna-
landi sínu, eins eru merkjavörur
ekki seldar í versluninni. Það á eft-
ir að koma í ljós hvort fleiri versl-
anir með þessu fyrirkomulagi opna
en kostur búðarinnar er sá að við-
skiptavinir geta keypt það sem þeir
vilja í nákvæmlega því magni sem
þeir þurfa. Um þriðjungur þess
matar sem er keyptur er hent og er
það aðallega vegna þess að fólk þarf
að kaupa meira en það þarf. Matar-
umbúðir eru líka stór hluti þess sem
er hent.
Mestu áhyggjur þýskra yfirvalda
snerust að heilsuvernd en Original
Unverpackt sótthreinsar öll ílát sem
fólk kemur með í búðina til þess
að koma í veg fyrir mögulegt smit.
Einnig hefur verið haft orð á háu
verði í búðinni en fræðingar telja að
tími sé kominn á vitundarvakningu
almennings og þar til fleiri búðir
með þessu fyrirkomulagi opna verði
fólk að borga aðeins hærra verð. n
helgadis@dv.is engar umbúðir Úrgangur minnkar þegar fólk velur sjálf hversu mikinn mat það þarf.