Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Qupperneq 43
Helgarblað 19.–22. september 2014 Sport 43
Skapheiti
Spánverjinn
M
iklar væntingar voru gerð-
ar til Diegos Costa, leik-
manns Chelsea, sem í
sumar gekk í raðir liðsins
frá Spánarmeisturum
Atletico Madrid. Costa fór á kost-
um á síðustu leiktíð og raðaði inn
mörkum. Hann átti stóran þátt í vel-
gengni liðsins á Spáni og í Meistara-
deild Evrópu, þar sem liðið lék til úr-
slita. Costa hefur staðið undir þeim
væntingum sem til hans hafa verið
gerðar. Hann hefur skorað sjö mörk
í fyrstu fjórum leikjum Chelsea, sem
situr eitt og óhaggað á toppi deildar-
innar. Eins og sakir standa er liðið
það besta í deildinni – ekkert lið er
í sjónmáli sem getur velt Chelsea úr
sessi, eins og liðið hefur farið af stað.
Þegar Costa gekk í raðir Chelsea
kepptust sparkspekingar við að lofa
kaupin. Robbie Savage, fyrrverandi
atvinnumaður í knattspyrnu, sagði
á BBC að hann væri síðasta púslið
í frábæran leikmannahóp Chelsea.
Liðið gæti, með hann innanborðs,
unnið titilinn með nokkrum mun.
Goðsögnin Alan Shearer tók í svip-
aðan streng og benti á að líkamleg-
ur styrkur Costa félli sem flís við rass
í ensku deildinni, þar sem líkam-
legt atgervi skiptir miklu. Þá hafa
menn bent á að með tilkomu Costa
sé loksins leikmaður í liðinu, sem
geti haldið boltanum fremst á vellin-
um. Slíkur leikmaður hafi ekki verið
í hópnum síðan Didier Drogba hvarf
á braut. Sparkspekingar hafa haft rétt
fyrir sér. Costa hefur blómstrað og
tilkoma hans og Cesc Fabregas hefur
heldur betur glætt sóknarleikinn lífi,
eins og 15 mörk í fyrstu fjórum leikj-
um Chelsea bera vitni um.
En engin er rós án þyrna. Í um-
ræddum þætti á BBC, fyrir tímabilið,
spáði Robbie Savage, sem sjálfur var
ekki barnanna bestur á sínum tíma,
að Costa myndi lenda í vandræðum
með skapið. Varnarmenn myndu
gera í því að koma sóknarmannin-
um úr jafnvægi. Það hefur komið á
daginn, eins og fjallað er um hér síð-
ar, en Costa hlaut nærri því 70 gul
spjöld og allnokkur rauð á átta ára
ferli sínum á Spáni.
Byrjaði að æfa af alvöru 16 ára
Diego Costa fæddist í Lagarto í
Sergipe-sýslu í Brasilíu þann 7.
október 1988. Hann stundaði götu-
bolta til 16 ára aldurs en fór þá að æfa
með Barcelona Esportive Capelo, í
höfuðborginni Sao Paulo. Árið 2006
gekk fékk hann sitt fyrsta tækifæri sem
atvinnumaður, Braga í Portúgal fékk
hann til liðs við sig. Þar fékk hann ekki
að spila en var lánaður til annarrar
deildar liðsins F.C. Penafiel. Þar skor-
aði hann fimm mörk í 13 leikjum, sín
fyrstu á atvinnumannsferlinum.
Hann staldraði stutt við hjá Braga
því árið 2007 var Costa, sem heit-
ir fullu nafni Diego da Silva Costa,
keyptur til Atletico Madrid. Hann
spilaði ekki leik fyrir Atletico fyrr en
löngu síðar. Frá félaginu var hann
fyrst lánaður til Braga, því næst til
Celta á Spáni og loks til Al-
bacete, líka á Spáni. Árið 2009
keypti Atletico Madrid mark-
vörðurinn Sergio Asenjo frá
Valladolid. Costa var ekki
hærra skrifaður en svo að hann
var settur upp í, sem hluti af
greiðslu. Atletico auðnaðist þó
að koma inn ákvæði um for-
kaupsrétt við lok leiktíðarinnar.
Notaður sem skiptimynt
Hjá Valladolid byrjaði hann
vel og skoraði sex mörk í fyrstu
tólf leikjunum. Hann skoraði
hins vegar lítið það sem eftir
var leiktíðar og svo fór að liðið
féll um vorið. Atletico ákvað, þrátt
fyrir misjafnt gengi, að nýta sér for-
kaupsréttinn. Félagið greiddi Braga
þriðjung kaupverðsins auk þess sem
Atletico greiddi upp samning, 126
milljónir króna, umboðsskrifstof-
unnar Gestifute, sem átti hlutdeild í
leikmanninum.
Atletico sá fyrir sér að Costa yrði
varamaður fyrir ekki minni menn en
Sergio Agüero og Diego Forlán.
Skoraði þrennu í fjarveru Forláns
Costa fékk sitt fyrsta tækifæri í byrj-
unarliðinu þegar Agüero meiddist,
þann 26. september 2010. Hann
nýtti tækifærið vel og skoraði eina
mark leiksins gegn Real Zaragoza.
Árið eftir vakti hann aftur athygli
þegar hann kom inn í liðið á kostn-
að Diegos Forlán. Hann skoraði öll
mörk Atletico í 3–2 sigri á Osasuna.
Hann skoraði sex mörk í þeim 28
leikjum sem hann kom við sögu í.
Fór næstum til Tyrklands
Meiðsli settu um sumarið strik í
reikninginn hjá Costa. Hann meiddist
illa á hné á undirbúningstímabilinu, í
júlí 2011, og tímabilið var í uppnámi.
Fram hefur komið að Besiktas í Tyrk-
landi hafi einhverju síðar reynt að
kaupa leikmanninn en forráðamenn
liðsins hættu við eftir læknisskoðun.
Eftir áramótin, í janúarlok, var Costa
enn á ný lánaður til annars félags, að
þessu sinni til Rayo Vallecano. Þar lék
hann í hálft ár og skoraði fjögur mörk
í fyrstu þremur leikjunum, þar á með-
al tvö í 5–3 sigri á Levante.
Hann skoraði 10 mörk í 16 leikj-
um alls fyrir Rayo Vallecano.
Agabrot
Um sumarið sneri
Costa aftur til Madrid.
Hann vann sér sæti
í byrjunarliðinu og
skoraði alls 20 mörk 44
leikjum fyrir Atletico á
leiktíðinni. Liðinu gekk
vel og hafnaði í þriðja
sæti deildarinnar, eft-
ir að hafa verið í öðru
sæti lengst af. Tvö atvik
fyrir jól settu þó blett
á tímabilið hjá þess-
um frábæra leikmanni.
Hann slapp við bann
eftir að hafa fengið rautt
spjald eftir glórulausa
tæklingu í tapleik gegn Real Madrid.
Stöðva þurfti leikinn og handalögmál
brutust út í kjölfar brotsins. Fleiri um-
deild atvik komu upp í þeim leik. Á
Youtube má til að mynda sjá mynd-
band af því hvernig Costa virðist hafa
klínt hori, oftar en einu sinni í Sergio
Ramos, leikmann Real Madrid. Fleiri
leikmenn gerðust sekir um viðlíka
hegðun, svo sem gáfnaljósið Pepe, en
mörg ljót leikbrot áttu sér stað í leikj-
um liðanna á tímabilinu.
Í næsta leik, Evrópuleik gegn Vikt-
oria Plzen, missti Costa aftur stjórn á
skapi sínu þegar hann skallaði and-
stæðing. Hann var rekinn af velli og
dæmdur í fjögurra leikja bann. Aga-
brotin komu ekki í veg fyrir að Diego
Simone þjálfari héldi áfram að velja
hann í liðið. Costa skoraði í öðrum
hverjum leik og var sérstaklega
skæður í bikarkeppninni, þar sem
hann skoraði átta mörk í jafn mörg-
um leikjum. Hann kom sér rækilega
á kortið á leiktíðinni.
Liverpool vildi fá hann
Í ágúst 2013 var Costa ítrekað orðaður
við félagaskipti til Liverpool. Félagið
bauð uppsett lágmarksverð, 25 millj-
ónir punda, í leikmanninn og bauðst
til þess að þrefalda launin hans. Hann
valdi að vera áfram í Madrid og skrif-
aði undir fimm ára samning við félag-
ið, sem tvöfaldaði launin hans.
Hann sér líklega ekki eftir því.
Atletico Madrid spilaði frábærlega á
leiktíðinni og stóð uppi sem spænskur
meistari síðastliðið vor, auk þess sem
liðið varð naumlega af sigri í Meist-
aradeild Evrópu, eftir dramatískan
úrslitaleik gegn Real Madrid. Hann
skoraði 27 deildarmörk í 35 leikjum
en 36 mörk alls í öllum keppnum fyrir
liðið á leiktíðinni.
Það var svo í sumar sem Chelsea
tilkynnti að félagið hefði komist að
samkomulagi um kaup á kappanum.
32 milljónir punda runnu úr djúpum
vösum Romans Abramovic og Costa
var mættur í ensku úrvalsdeildina.
Sló til Gylfa
Þó Costa hafi farið á kostum í fyrstu
fjórum leikjum úrvalsdeildarinnar,
og verið valinn leikmaður ágúst-
mánaðar, hefur hann ekki alveg
komist átakalaust í gegnum leikina.
Hann varð uppvís að því, í viðskipt-
um sínum við landsliðsmanninn
Gylfa Þór Sigurðsson, í leik Chelsea
og Swansea um liðna helgi, að slá til
leikmannsins. Dómarar leiksins sáu
atvikið ekki en það mátti hins vegar
glögglega sjá á upptökum. Enska
knattspyrnusambandið mun ekki
taka atvikið fyrir. Það mun hins vegar
ef til vill verða til þess að beina sjón-
um þeirra að hegðun leikmannsins
markheppna, en hann fékk 68 gul
spjöld og sjö rauð á þeim átta árum
sem hann lék á Spáni. n
n Diego Costa byrjaði að æfa 16 ára n áskrifandi að rauðum spjöldum
Sneri baki
við Brasilíu
Gerðist spænskur ríkisborgari
n Í september í fyrra sendi spænska
knattspyrnusambandið þá beiðni til
FIFA að Costa yrði gjaldgengur í spænska
landsliðið. Honum hafði verið veittur
spænskur ríkisborgararéttur. Í október
lýsti hann því yfir opinberlega að hann
vildi fá að spila með Spáni – og sendi bréf
til brasilíska knattspyrnusambandsins
þess efnis. Felipe Scolari, þjálfari Brasilíu,
gerði mönnum ljóst að krafta hans væri
ekki óskað. „Brasilíumaður sem neitar
að spila fyrir þjóð sína er sjálfkrafa út
úr myndinni. Hann er að snúa baki við
draumi allra brasilískra knattspyrnu-
manna, um að spila fyrir hönd fimmfaldra
heimsmeistara á HM í knattspyrnu.“
Costa hefur spilað tvo leiki fyrir hönd
Brasilíu en fjóra fyrir hönd Spánar. Hann
kom aðeins við sögu á HM í sumar en
tókst ekki að setja mark sitt á leik liðsins.
Spánverjar komust ekki upp úr riðlinum.
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Sló Gylfa Costa skeytti skapi sínu á Gylfa Þór Sigurðssyni í leik Chelsea og Swansea um síðustu helgi.
Sjö mörk
Costa
hefur byrjað
leiktíðina
frábærlega.
MyNd ReuTeRS