Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Qupperneq 54
Helgarblað 19.–22. september 201454 Fólk
Karen Grétars
með Hollywood-
stjörnu
Karen Grétarsdóttir og banda-
ríski leikarinn Amaury Nolasco
eru nýtt par. Séð og heyrt greinir
frá þessu. Karen er dóttir Grétars
Örvarssonar, söngvara í Stjórn-
inni, og býr í Los Angeles ásamt
systur sinni, tónlistarkonunni
Grétu Karen. Nolasco er hvað
þekktastur fyrir hlutverk sitt sem
Fernando Sucre í sjónvarpsþátt-
unum Prison Break sem nutu
mikilla vinsælda fyrir nokkrum
árum. Töluverður aldursmunur
er á parinu, eða 21 ár. Nolasco er
43 ára en Karen aðeins 22 ára.
Móðgaði afgreiðslukonu á lestarstöð
Unnur Eggertsdóttir ætlar aldrei að segja „what“ aftur
S
öng- og leikkonan Unnur
Eggertsdóttir komst aldeilis
í hann krappan á dögunum
þegar hún bað afgreiðslu-
konu í neðanjarðarlestar-
stöð í New York um að aðstoða sig
með lestarkortið. „Hún var eigin-
lega alveg eins og Donna í Parks
and Rec (ef þið horfið á þá brilliant
þætti) og var að útskýra eitthvað
fyrir mér. Ég heyrði ekki alveg síð-
asta orðið svo ég sagði „what?“ og
þá ta-rylltist hún. „You did not just
say 'what' to me young lady“ með
svona divu-handahreyfingum og
ALLT. Ég varð skíthrædd og var al-
veg „Oh I'm sorry, I meant pardon.“
En skvís var ekki ánægð með mig,
hreytti í mig að hún ætlaði að opna
hliðið fyrir mig og sagði mér að
hurry up,“ skrifar Unnur á blogg-
síðuna sína um atvikið. „Ég mun
aldrei segja what aftur,“ bætir hún
við að lokum.
Rottur í ruslapokum
Unnur flutti til New York í haust
en hún komst í eftirsótt leiklistar-
nám við The American Academy
of Dramatic Arts í borginni. Unn-
ur hefur haldið úti líflegri bloggsíðu
frá því hún flutti út þar sem hún seg-
ir meðal annars frá því þegar hún
sá þrjár rottur koma hlaupandi úr
ruslapokum beint fyrir framan sig,
þegar hún týndist þegar hún var úti
að hlaupa í Central Park og lífinu á
Manhattan. Í fyrstu færslunni sem
hún birti eftir að hún flutti til New
York skrifar hún meðal annars. „Þá
er ég komin til New York. Ég veit
ekki hvað ég er að gera. Ég er búin
að gráta stanslaust síðustu daga
því mér finnst ég vera gjörsamlega
geðsjúk að vera að fara frá öllum
vinum mínum, og yfirgefa það full-
komna heimili sem Hótel Mamma
er.“ Af næstu færslum að dæma hef-
ur Unnur hins vegar tekið borgina
í sátt og virðist njóta lífsins til hins
ýtrasta.“ n
aslaug@dv.is
Góður penni Unnur
Eggertsdóttir heldur úti
skemmtilegu bloggi frá
New York. Mynd SiGtRyGGUR ARi
Margeir fékk bréf frá
meintri barnsmóður
n DJ Margeir hlýtur makleg málagjöld fyrir gamlan hrekk
É
g á dásamlega vini. Vini sem
eru tilbúnir til að leggja mik-
ið á sig til að gleðja mig, en
einnig til að hrekkja mig,“
segir Margeir Steinar Ingólfs-
son, betur þekktur sem DJ Mar geir,
á Facebook-síðu sinni á fimmtu-
dag. Tilefnið er bréf sem hann fékk
sent á skrifstofuna sína en þar er
honum tilkynnt að hann eigi þrett-
án ára dóttur. „Ég þarf að tilkynna
þér eitt. Hef frestað því of lengi þar
sem ég hef verið í mikilli afneitun
og verið að díla við fleiri tilfinn-
ingaleg vandamál síðustu árin.
Fyrir 13 árum eignaðist ég yndis-
lega dóttur. Stuttu seinna byrjaði
ég með manni sem gekk henni í
föðurstað. Við erum nýskilin og
nú þarf ég að horfast í augu við
sannleikann. Þú ert faðir hennar.
Enginn annar kom nokkurn tíma til
greina,“ segir meðal annars í bréf-
inu en þess skal getið að það inni-
heldur margar innsláttar villur og
er nánast hvert einasta orð skrifað
með stórum staf.
„Ég myndi alls ekki vilja valda
óþarfa vandræðum. Ég vona að þú
getir skilið mína hlið en ég gef þér
tíma til að melta þetta. Ég hefði vilj-
að tala við þig augliti til auglitis en
ég fékk mig ekki til þess. Ég ætla
að gefa þér dá-
lítinn tíma til
að spá í þessu
og hef svo sam-
band símleið-
is til að spjalla
nánar. Vona að
þú getir fyrirgef-
ið mér,“ segir að
lokum í bréfinu
sem er einungis
undirritað með
bókstafnum A.
Þá bætir viðkom-
andi við að lagið
Something About
Us með Daft Punk
minni sig alltaf á
Margeir.
Makleg
málagjöld
„Það verður að
viðurkennast að
það var undarleg tilfinning að eign-
ast og missa strax aftur dóttur sem
ég vissi ekki að væri til. En maður
verð-
ur víst að sætta sig við það að manns
eigin stríðni getur komið margfalt
til baka. Vel gert!“ skrifar Margeir
að lokum og ljóst að fleiri hrekkir
hafa tíðkast í
vinahópnum. Í
samtali við DV
viðurkenndi
Margeir að hér hefði gam-
all félagi verið að hefna fyrir forn-
an hrekk en Margeir þykir sjálfur af-
skaplega stríðinn meðal kunningja.
DJ Margeir er einn vinsælasti
plötusnúður landsins um þessar
mundir. Sem dæmi þá gaf hann
nýverið út plötu í samstarfi
við Bláa lónið, hann valdi tón-
listina sem spiluð er um borð í af-
þreyingarkerfi flugvéla Icelandair
og hélt tónleika á toppi Esjunnar í
samstarfi við símafyrirtækið Nova
í sumar. n
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
dJ Margeir
Plötusnúðurinn
hlaut makleg
málagjöld á
dögunum.
Mynd FAcEbooK.
bréfið Hér má sjá
bréfið sem Margeir fékk
sent á skrifstofuna.
Mynd FAcEbooK.
Á leið í
heimsreisu
Útvarpsmaðurinn Frosti Logason
heldur brátt í sex vikna heims-
reisu um Asíu og Afríku ásamt
vini sínum, Sigurði Þorsteinssyni.
Félagarnir ætla meðal annars í
safarí í Suður-Afríku, búa hjá ind-
verskri fjölskyldu á Indlandi, fara
á brimbrettanámskeið á Balí og
læra að kafa í Taílandi. Þetta kom
fram í Fréttablaðinu á fimmtu-
dag. „Við erum sjúklega spennt-
ir að fara enda ævintýri og í raun
langþráður draumur hjá okkur
báðum,“ segir Frosti í samtali
við Fréttablaðið. Hann mun síð-
an skrifa reglulega pistla á Vísi
úr reisunni og þá verður hann
einnig með innslög í útvarps-
þættinum Harmageddon. Áhuga-
samir ættu því að geta fylgst vel
með ferðalaginu.
„Ég get hætt
að hlusta á
tónlist“
„Ég get hætt að hlusta á tónlist.
Nú hefur Bubbi flutt fyrir mig
De smukke unge menesker eftir
Kim Larsen,“ skrifar leikkonan og
grínistinn Saga Garðarsdóttir á
Facebook og birtir mynd af sér og
poppkónginum með gítarinn.
Myndin er tekin í Borgarleik-
húsinu við æfingar á leikritinu
Kenneth Máni sem Saga skrif-
ar ásamt þeim Jóhanni Ævari
Grímssyni og Birni Thors.
Saga segir augnablikið hafa
verið algjört „double rainbow“
fyrir hana, því ef henni finnist
einhver yndislegri en Larsen sé
það Bubbi.
Bubbi virðist sjálfur ekkert
minna hrifinn og ritaði
athugasemd við myndina. „Fyrir
mig að fá að syngja fyrir þig var
dásemd.“