Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Síða 2
Jólablað 20.–27. desember 20132 Fréttir
H
átíð ljóss og friðar er á
næsta leiti en á þeim tíma
er mikilvægt að muna eft-
ir þeim sem minna mega
sín. Krakkarnir í 6. bekk í
Heiðarskóla í Reykjanesbæ vildu láta
gott af sér leiða um jólin og fórnuðu
litlu jólunum fyrir „fátæku börnin“
eins og þau sögðu sjálf þegar blaða-
maður DV heimsótti þau í skólann á
dögunum.
„Ég ætla rétt að vona ekki“
Krakkarnir söfnuðust saman í eina
skólastofu þegar blaðamann DV bar
að garði. Þau voru þá nýbúin að setja
gjöfina undir jólatréð í Keflavíkur-
kirkju en þaðan er þeim dreift til
þeirra sem minna mega sín yfir há-
tíðarnar.
„Okkur langaði að gefa fátæku
börnunum pakka,“ segir Þór Einars-
son sem er 11 ára. Aðspurður
hvort það séu mörg fátæk börn í
Reykjanesbæ þá er Þór fljótur að
svara: „Ég ætla rétt að vona ekki.“
Stelpurnar keyptu stelpugjöf
Þór segir krakkana hafa verið í
stærðfræðitíma þegar þeir ákváðu
að safna peningi og kaupa gjöf fyrir
börn sem þurfa á því að halda.
„Við ákváðum að koma með 500
krónur í skólann í staðinn fyrir að
gefa hvort öðru pakka á litlu jólun-
um. Síðan skiptum við peningunum
í tvennt, strákarnir keyptu stráka-
gjöf og stelpurnar keyptu stelpu-
gjöf,“ segir Þór.
Ætla að gera þetta aftur
„Já, alveg pottþétt,“ sögðu krakkarnir
þegar blaðamaður spurði hvort þau
ætluðu að gera þetta aftur á næsta
ári.
Þrátt fyrir ungan aldur virðast
þau gera sér grein fyrir neyðinni og
að ekki allir sitji við sama borð yfir
hátíðarnar. Ekki sé verið að metast í
skólanum um flottustu skógjafirnar
eða hvað hver og einn sé hugsan-
lega að fá í jólagjöf.
Erla María Andrésdóttir, ein af
kennurum hópsins, er stolt af þeim
fyrir framtakið. Hún segir fleiri
bekki í skólanum hafa ákveðið að
sleppa því að gefa gjafir á litlu jólun-
um og þess í stað safna fyrir góðan
málstað.
Fleiri safna til góðs
„8. bekkur kom líka með pening
sem hann safnaði saman. Krakk-
arnir ætla að færa Grensás upphæð-
ina en nemandi í þeirra árgangi er
búinn að vera í endurhæfingu þar
síðan um páskana í fyrra og mætti
aftur í október,“ segir Erla María.
Þá ákváðu unglingarnir í 10.
bekk að sleppa sínum litlu jólum og
ákváðu þess í stað að færa Ljósinu,
endurhæfingar- og stuðningsmið-
stöð fyrir krabbameinsgreinda og
aðstandendur þeirra söfnunarfé.
Unglingarnir misstu einn af uppá-
haldskennurum sínum á dögunum
og vildu með þessu heiðra minn-
ingu hennar. n
Atli Már Gylfason
atli@dv.is
Útgáfa DV
Ekkert vikublað kemur út á
þriðjudaginn, aðfangadag. Næsta
tölublað DV verður glæsilegt
Völvublað sem út kemur laugar-
daginn 28. desember. Þar verð-
ur árið gert upp auk þess sem
völvan spáir í árið sem senn fer í
hönd. Fréttaþjónusta verður með
hefðbundnu sniði yfir hátíðarnar
á vefnum, DV.is.
DV óskar lesendum sínum,
velunnurum og landsmönn-
um öllum gleðilegrar hátíðar og
þakkar fyrir samfylgdina á árinu
sem er að líða.
G
istiskýlið við Þingholts-
stræti hefur fengið fleiri rúm
fyrir skjólstæðinga sína.
Karl Matthíasson, fram-
kvæmdastjóri Samhjálpar, þakkar
aðkomu borgarfulltrúans og vara-
þingkonunnar Bjarkar Vilhelms-
dóttur sérstaklega þessa fjölgun
rúma. „Þetta þýðir að við höfum
ekki þurft að vísa neinum í burtu
í nokkurn tíma,“ segir hann. Sama
verklag er til staðar, en þeir heimil-
islausu karlmenn sem leita á náðir
gistiskýlisins fara í Þingholtsstræti, en
þegar öll rúm hafa verið fyllt þar eru
aðrir sendir í nýja húsnæðið. Hús-
ið er opið frá 17.00 til 10.00 næsta
dag. Samkvæmt húsreglum skal vera
komin á ró á miðnætti. Á fyrstu fjór-
um mánuðum þessa árs þurfti að vísa
138 manns frá skýlinu vegna pláss-
leysis, en á sama tíma árið 2012 voru
þeir 24. Í haust þurfti að vísa allt að tíu
manns frá á hverju kvöldi.
Mikil umfjöllun hefur verið um
Gistiskýlið að undanförnu, en Sam-
hjálp rekur það fyrir Reykjavíkurborg.
Þangað geta heimilislausir karlmenn
leitað og fengið gistingu yfir nóttina.
Skyndileg fjölgun þeirra sem ekki áttu
í nein önnur hús að venda varð til þess
að vísa þurfti fjölmörgum frá skýlinu.
Á vormánuðum 2014 verður að-
staðan flutt að Lindargötu 48 og lýkur
þá 40 ára sögu Gistiskýlisins í Farsótta-
húsinu við Þingholtsstræti. Húsnæðið
við Þingholtsstræti uppfyllir ekki kröf-
ur um öryggissjónarmið eða aðgengi.
Við Lindargötu verður rúmum þó ekki
fjölgað, en framkvæmdir eiga að hefj-
ast fljótlega svo hægt verði að opna. n
astasigrun@dv.is
Þurfa ekki lengur að vísa frá
Karl Matthíasson hjá Samhjálp þakkar Björk Vilhelmsdóttur aðstoðina
Meira pláss Aðstaða Gistiskýlisins
hefur verið bætt svo að undanförnu hefur
starfsfólk ekki þurft að vísa heimilislausum
karlmönnum frá. Mynd SiGtryGGur Ari
Björguðu
fjölskyldu
Íslendingarnir Gunnar Þór Nil-
sen og Friðrik Elís Ásmundsson
björguðu á fimmtudags-
morgun rúmenskri fjölskyldu
úr brennandi íbúð í Árósum í
Danmörku. Gunnar var að koma
heim eftir að hafa keyrt dóttur
sína í skólann þegar hann sá
eldinn inn um glugga íbúðar fjöl-
skyldunnar. Hann rauk af stað og
hringdi á slökkvilið og bað svo
Friðrik vin sinn að aðstoða sig.
Hitinn í íbúðinni var mikill og
sprungu rúðurnar nálægt þeim
Gunnari og Friðriki. Þeir brutu
sér leið inn í íbúðina og hjálp-
uðu fjölskyldunni út, þar á með-
al konu með nýfætt barn. Fjöl-
skylduna tóku þeir svo með sér
heim og hlúðu að þeim, með-
al annars með því að klæða þau
í íslenskar lopapeysur. Mbl.is
greindi frá.
Fórnuðu litlu jólunum
fyrir fátæku börnin
n Krakkarnir í 6. bekk í Heiðarskóla söfnuðu fyrir þá sem minna mega sín
Með gjafirnar Krakkarnir glaðir á svip með gjafirnar.
Krakkarnir í
6. bekk Vildu
gera góðverk
um jólin.