Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Side 8
8 Fréttir Jólablað 20.–27. desember 2013
Gengið
til friðar
Friðargöngur á Þorláksmessu
Íslenskir friðarsinnar hafa efnt
til friðargöngu niður Laugaveg
inn á Þorláksmessu undanfarin
þrjátíu og fimm ár og verður
slíkt hið sama gert að þessu
sinni. Fyrir marga hefur gangan
orðið hluti af jólaundirbún
ingnum. Líkt og undanfarin ár
verða slíkar göngur einnig á
Þorláksmessu á Akureyri og á
Ísafirði. Það er Samstarfshópur
friðarhreyfinga sem stendur fyr
ir göngunni í Reykjavík þann 23.
desember. Safnast verður saman
á Hlemmi frá klukkan 17.45 og
leggur gangan af stað klukkan
18.00. Fólk er hvatt til að mæta
tímanlega og munu friðarhreyf
ingarnar selja kerti fyrir göngu
fólk á Hlemmi.
Í Reykjavík verður það Guð
rún Margrét Guðmundsdóttir
mannfræðingur sem flytur ávarp
að göngu lokinni. Söngfólk úr
Hamrahlíðarkórnum og Kór
Menntaskólans við Hamrahlíð
syngur í göngunni og við lok
fundar undir stjórn kórstjórans
Þorgerðar Ingólfsdóttur.
Friðargangan á Ísafirði hefst
við Ísafjarðarkirkju klukkan
18.00 og er gengið niður á Silfur
torg. Pétur Markan flytur hug
vekju að lokinni göngu. Á Akur
eyri stendur Friðarframtak fyrir
blysför sem hefst klukkan 20 frá
Samkomuhúsinu Hafnarstræti
og er gengið út á Ráðhústorg.
Ræðumaður kvöldsins er dr.
Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðla
fræðingur.
„Samstarfshópur friðar
hreyfinga minnir á að málstað
ur og rök friðarsinna skipta jafn
miklu máli nú og fyrir þrjátíu
árum. Stöðugt berast fregnir af
ofbeldisverkum þjóða á milli og
innan samfélaga. Óheyrilegum
fjárhæðum er enn sóað í víg
væðingu og ekkert lát virðist á
hernaðarátökum í heiminum,“
segir í tilkynningu samstarfs
hópsins vegna göngunnar.
astasigrun@dv.is
Leynd hvílir yfir
1.500 milljónum
n Fyrrverandi starfsmaður Morgan Stanley og Exista-maður flytja inn fé
E
ignarhaldsfélag sem stýrt er
af Bjarna Brynjólfssyni og
Sigurði Arngrímssyni stefn
ir á innflutning á allt að 1.500
milljónum króna í gegnum
fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands.
Félagið, sem heitir Ursus Maritimus,
hefur farið í skuldabréfaútboð og
nú þegar gefið út bréf fyrir nærri
300 milljónir króna af þessari 1.500
milljóna króna heimild. Þetta kemur
fram á heimasíðu Verðbréfaskrán
ingar Íslands. Fjármunir erlendis frá
eru svo notaðir til að kaupa skulda
bréfin og fæst 20 prósenta afsláttur af
krónunum sem notaðar eru til þess.
Þessi krónuafsláttur er hluti af fjár
festingarleið Seðlabanka Íslands.
Sigurður Arngrímsson hefur um
árabil unnið hjá fjárfestingarbankan
um Morgan Stanley og tengdist með
al annars Vafningsmálinu svokallaða
þar sem hann var sá starfsmaður
bankans sem sá um lánveitingar
til íslenskra eignarhaldsfélaga eins
og Milestone. Sigurður gaf með
al annars vitnaskýrslu fyrir dómi í
Vafningsmálinu í fyrra. Nú hefur Sig
urður hins vegar stofnað ráðgjafar
fyrirtæki sem staðsett er í London
og heitir það Arngrimssonadvisors.
Svo virðist, út frá útgáfulýsingunni í
skuldabréfaútboðinu, sem ráðgjafa
fyrirtæki Sigurðar standi fyrir því.
Neitar að gefa upplýsingar
Sigurður er skrifaður fyrir skulda
bréfaútgáfunni ásamt starfsmanni
Arngrimssonadvisors, Bjarna Brynj
ólfssyni, fyrrverandi starfsmanni
Exista sem sá um deild eigin við
skipta fyrirtækisins á árunum fyrir
hrunið 2008. Bjarni hefur verið til
rannsóknar hjá sérstökum sak
sóknara vegna málefna Exista og
hefur verið yfirheyrður í málinu.
Bjarni neitar aðspurður að ræða
um skuldabréfaútboðið í samtali
við DV. Hann er spurður um upp
runa þess fjármagns sem notaður er
til að kaupa skuldabréfin sem Ursus
Maritimus hefur gefið út og í hvað
eigi að nota þá fjármuni sem um
ræðir, til hvers konar fjárfestingar.
Svör Bjarna eru hins vegar takmörk
uð. „Nei, nei,“ segir Bjarni þegar
hann er beðinn um að svara þessum
spurningum.
DV gerði tilraun til að fá svör við
spurningum um skuldabréfaútboði
hjá Sigurði Arngrímssyni en hann
svaraði ekki erindi blaðsins.
Gæti verið í eigu annars aðila
Ómögulegt er að segja til um hver
það er sem á fjármunina sem fluttir
eru til landsins í gegnum Ursus
Maritimus. Fyrst Bjarni og Sigurður
vilja ekki greina frá því er erfitt að
komast að því. Miðað við upphæð
ina sem um ræðir, 1.500 milljónir,
er hins vegar ólíklegt að Sigurður
eða Bjarni eigi þessa fjármuni sjálf
ir. Líklegt er því að fjármagnsflutn
ingarnir eigi sér stað fyrir hönd ein
hvers þriðja aðila.
Líkt og DV hefur fjallað um oft
áður þá nýta margir íslenskir og
erlendir aðilar sér fjárfestingar
leið Seðlabanka Íslands til að flytja
inn fjármuni til landsins í gegnum
Seðlabanka Íslands og kaupa krón
ur á afslætti. Með þessum hætti fæst
20 prósenta afsláttur af íslenskum
krónum og eru þeir sem flytja pen
inga til landsins þannig í betri stöðu
en aðrir fjárfestar þar sem þeir geta
keypt eignir hér á landi ódýrar en
aðrir. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Ráðgjafarfyrirtæki í London
Sigurður Arngrímsson rekur nú
ráðgjafarfyrirtæki í London sem
heitir eftir honum. Félagið stendur
í fjármagnsflutningum til Íslands í
gegnum fjárfestingarleiðina.
Sölu Hressó var rift
Hæstiréttur staðfesti riftun á sölu nokkurra fasteigna Sundaranna
H
æstiréttur Íslands hefur rift
sölu eigenda fjárfestingar
félagsins Sunds á tíu fast
eignum eftir hrunið 2008.
Dómurinn í málinu féll á þriðju
daginn og staðfesti Hæstiréttur dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu.
Fasteignunum skal skilað inn í
þrotabú Iceproperties ehf. DV hefur
fjallað nokkuð um viðskiptin sem
áttu sér stað í október 2008.
Þekktasta fasteignin sem um
ræðir er Hressingarskálinn í Austur
stræti en hinar eignirnar eru í
Kringlunni og í Kópavogi, nánar til
tekið á Digranesvegi. Heildarverð
mæti fasteignanna var um 870 millj
ónir króna samkvæmt ársreikningi
Ice Properties fyrir árið 2007.
Þegar DV fjallaði um málið í
október 2011, við þingfestingu þess,
kom fram sú krafa að færslunni á
fasteignunum út úr IceProperties
yrði rift á þeim forsendum að fé
lagið hefði verið tæknilega gjald
þrota þegar viðskiptin áttu sér
stað. Eitt af því sérstaka við mál
ið er að sama dag og fasteignirnar
fóru út úr Ice Properties, þann 20.
október 2008, voru eignirnar færð
ar yfir í eignarhaldsfélag sem heit
ir Fasteignafélagið okkar. Félagið er
í eigu eignarhaldsfélagsins Pluma
ehf. sem aftur er í eigu Páls Þórs
Magnús sonar. Eignirnar voru hins
vegar seldar út úr Ice Properties
án endurgjalds, líkt og áður segir.
Byggði málareksturinn á því að um
gjafagerning hafi verið að ræða þar
sem ekkert endurgjald hafi komið
fyrir fasteignirnar.
Nú hefur Hæstiréttur Íslands
dæmt þrotabúi Iceproperties ehf. í
vil. n ingi@dv.is
Rift hjá Páli Ein af fasteignunum var
seld til Páls Þórs Magnússonar, fram-
kvæmdastjóra Sunds, og hefur sölu hennar
nú verið rift.