Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Blaðsíða 12
Jólablað 20.–27. desember 201312 Fréttir Þ egar sumir voru að kaupa sér bíl, keypti ég mér brjóst,“ segir Helga Finnsdóttir. Ein- læg frásögn Helgu af eftirsjá hennar vegna brjóstastækk- unar vakti mikla athygli og umræðu í nóvember. Helga greindi frá því að hún hefði verið átján ára þegar hún fór í brjóstastækkun. Í dag segist hún sjá eftir aðgerðinni, hún hefði ef til vill átt að bíða og hugsa málið betur, en segist vita sjálf að eflaust hefði hún samt sem áður látið slag standa. „Ég var alveg harðákveðin í þessu á sínum tíma og lét ekkert stoppa mig ekki einu sinni varnaðarorð móður minnar,“ segir hún. Pamela Anderson fyrirmyndin Í dag horfir þetta öðruvísi við konu sem er orðin þrítug og búin að eign- ast sitt fyrsta barn. Hún vill vekja athygli á þessu og tengir sína eigin þörf fyrir brjóstastækkun við klám- væðingu og óraunhæfar fyrirmyndir. „Ég horfi á þetta út frá mér því ég er ein af þeim sem var með fullkom- lega eðlileg brjóst í skálastærð c en einhvern veginn fannst mér það ekki nóg, þau voru ekki nógu stór og stinn. Ég var óánægð með útlit þeirra enda hafði ég alist upp við að horfa á Pamelu Anderson í Baywatch fyrir kvöldfréttir og fann á samfélaginu, bæði konum og körlum, að svona ætti hin fullkomna kona að líta út,“ sagði Helga í pistlinum sem hún birti á vef Kvennablaðsins. Hann vakti sem áður sagði, mikla athygli, svo mikla að vefsíðan stóðst vart álagið vegna lestrar hans. „Mér fannst mjög mikilvægt að segja frá þessari hlið,“ segir Helga í samtali við DV og segir að umfjöllun snúist oftast um mistök sem eigi sér stað í fegrunaraðgerðum eða þá að talað sé um þær á léttu nótun- um. En fegrunaraðgerðir eru stór- mál, segir Helga. „Það þarf að koma fram að tískan er breytileg og samfé- lagið hefur mikil áhrif á okkur. Miklu meiri en við gerum okkur grein fyrir. Það sem er „in“ í dag er ekki „in“ á morgun, við ættum ekki að leggjast undir hnífinn til að ná einhverjum ímynduðum stöðlum,“ segir Helga um kveikjuna að pistlinum. Var kappsmál „Þetta var mikið kappsmál fyrir mig og ég var alveg búin að bíta þetta í mig, að þetta ætlaði ég að gera. Ég er næstum því viss um að ég hefði ekki hlustað á konu eins og mig í denn, en það má vona að einhver ung stúlka sem er að lesa og er að spá í að fara í aðgerð sé með meira sjálfstraust en ég var með og sé reiðubúin að hugsa aðeins áður en hún fer í svona að- gerð,“ segir hún. „Mér fannst ég aldrei alveg eins og ég ætti að vera. Það var alltaf eitthvað að og mér fannst þau ekki nógu full- komin,“ segir hún. „Þetta gerjaðist mjög lengi innra með mér, ég ákvað þetta alveg þegar ég var sautján ára og fór svo í aðgerðina þegar ég varð átján ára.“ Fyrst var Helga mjög ánægð með aðgerðina. Hún segist hafa upplifað doða í brjóstunum. „Það hefur áhrif, bæði þegar ég var með dóttur mína á brjósti og líka bara til dæmis varð- andi kynlíf. Ég hef ekki sömu tilfinn- ingu í brjóstunum og ég hafði áður. Mér finnst annað brjóstið betra en hitt. Það fylgir þessu oft ákveðinn fórnarkostnaður, eitthvað sem fólk gerir sér ekki endilega grein fyrir,“ segir hún en tekur fram að í fyrstu hafi hún verið afskaplega ánægð. Ánægjan fór hins vegar þverrandi eftir því sem á leið. Breyttist „Fyrst var ég bara ánægð og sátt við mína ákvörðun. Þetta var alveg það besta sem ég hafði gert fyrir sjálfa mig hélt ég, en þegar ég fór að skoða þetta betur þá áttaði ég mig á því að þetta var ekki alveg svo einfalt. Ég setti upp ákveðinn „front“ og hunds- aði það að ég væri með þennan doða til dæmis. Ég er bara þannig að ég reyni að horfa á jákvæðu hliðarnar, en efasemdirnar voru þarna samt sem áður.“ Vill fleiri sjónarmið Hún bendir líka á að hennar skoðun og upplifun verði ekki heimfærð upp á allar konur sem fara í slíkar að- gerðir. Hins vegar sé það mikilvægt að fólk velti þessu fyrir sér, enda sé um stórt inngrip að ræða. „Ég ræddi þetta bara við lýtalækninn. Hann hefur auðvitað hag af því að fólk fari í svona aðgerðir. Hvernig væri ef fólk þyrfti að fara í tvo tíma til sálfræðings áður en það fer undir hnífinn?“ Helga segist samt vona að viðhorf til slíkra aðgerða fari að breytast. „Mér finnst konur og fólk al- mennt tala mjög óvarlega um fegr- unaraðgerðir, svona eins og þetta sé bara ekkert mál. Þú getur pantað tíma og þú kemst næstum strax að. Það er mín von að einn daginn, frekar fyrr en seinna, munum við líta fegrunaraðgerðir á brjóstum og kynfærum sömu augum og við horf- um Liljufótinn [breytingum á fótum ungra asískra kvenna, innsk.blm.] í dag sem hrylling og sem hálfgerðar misþyrmingu á konum. Ég fór í að- gerð vegna þess að ég hafði alist upp með þetta fyrir augunum og svona fannst mér hinn fullkomna kona ætti að vera,“ segir hún. Mikill þrýstingur á konur Mátti ekki kaupa vín, en gat farið í aðgerð En hvað breyttist þá hjá henni? „Það sem breytist hjá mér var að ég öðlaðist meira sjálfstraust með árunum, og þroska, og fór að horfa á samfélagið og sjálfa mig með gagn- rýnum augum. Það hefur svo bara aukist eftir að ég nýlega eignaðist dóttur og mig langar að breyta því samfélagi sem við búum við í dag. Öfgarnar verða sífellt meiri og sam- félagslegur þrýstingur á kvenfólk, nú orðið þykir silíkon ekkert tiltöku- mál og nú er mikið í umræðunni að konur séu að fara í aðgerðir á kyn- færum ýmist til að þrengja leggöng eða skera af skapabörmum. Hvenær ætlum við að opna augun og spyrna gegn þessari þróun. Stundum heyr- ast þær raddir þegar þessi mál eru rædd hvað konur séu ósjálfstæðar og spurt hvort þær fari bara eins og viljalaus verkfæri í þessar aðgerðir. Þeir hinu sömu geta spurt sig að því hvort samfélagið hafi virki- lega engin áhrif haft á þá. Standa þeir sjálfir gegn þeim þrýsting sem samfélagið setur þeim? Ég er þarna 18 ára unglingur, þó ég væri sjálf- ráða þá mátti ég ekki kaupa mér áfengi sem dæmi, en ég mátti breyta líkama mínum. Hefði ég beðið í tvö ár eru ef til vill nokkrar líkur á að ég hefði ekki farið. Þessi þróun, að hafa klámvæðingu í nánast öllu til að ná til fólks, til að sjokkera, eða hver sem tilgangurinn er, hefur ekki góð áhrif á unga fólkið okkar. Það er komin tími til að hreinsa til og uppfræða og þetta er mitt fyrsta skref,“ segir hún að lokum. n Lýtaaðgerðir og fegrunaraðgerðir eru algengar á Íslandi og hefur DV að undan- förnu fjallað mikið um slíkar aðgerðir. Í vikublaðinu þessa vikuna má meðal annars finna ítarlega úttekt á aðgerð- um á skapabörmum og þrengingum á leggöngum kvenna. Ljósmæður hafa tekið eftir nokkrum tilfellum á Íslandi þar sem konur hafa ákveðið að þrengja leggöng sín til þess að standast kröfur karlmanna um kynlíf. Þrengri leggöng skili körlum meiri örvun. Ebba Margrét Magnúsdóttir, fæðingar- og kvensjúkdómalæknir, hefur fjallað um mikla fjölgun lýta- aðgerða á kynfærum kvenna og veltir upp spurningum varðandi hvort þörfin fyrir aðgerðirnar sé líkamleg eða andleg og hversu raunveruleg hún sé. Á ráð- stefnu um aðgerðir sem þessar sagði hún klámvæðingu og útlitsdýrkun hafa leitt til hættulegrar þróunar, ekki síst varðandi kynheilbrigði kvenna. „Ég er samt ekki að mælast til þess að fegrunaraðgerðir verði bannaðar. Auðvitað hefur fólk rétt til að gera það sem það vill og ég skil líka fullkomlega að fólk skuli sækja í svona lausnir þegar þrýstingurinn frá samfélaginu um að líta út á ákveðinn hátt er svona gríðarlegur. En það verður að hafa í huga að þegar fegrunaraðgerðir eru gerðar að einhvers konar normi, þá fara venjulegir líkamar að virðast óvenjulegir. Þetta er það sem hefur verið að gerast smátt og smátt í vestrænum samfélögum undanfarna áratugi. Hér áður fyrr þótti ekkert óeðlilegt að vera með lítil eða lafandi brjóst, til dæmis. Ég hef áhyggjur af því hvaða áhrif þessi skilaboð hafa á samfélagið,“ sagði Gabríela Ernudóttir í umfjöllun DV um algengar lýtaaðgerðir í nóvember sl. Hún vísaði í umfjöllun þar sem lýtalæknir svarar lesendum á vefmiðli, og benti á að í mörgum tilfellum megi líklega rekja eftirspurn eftir upplýsingum og aðgerðum til útlitsdýrkunar og óraunhæfra glansmynda sem haldið er á lofti af fjölmiðlum. „Mér fannst ég aldrei alveg eins og ég ætti að vera Láta þrengja á sér leggöngin til að standast kröfur um kynlíf Aðgerð en ekkert áfengi „Ég er þarna 18 ára unglingur, þó ég væri sjálfráða þá mátti ég ekki kaupa mér áfengi sem dæmi,“ segir Helga og bendir á að hún hafi þó mátt fara í lýtaaðgerð. Mynd Sigtryggur Ari Mistök að stækka brjóst n Varar ungar konur við brjóstaaðgerðum n Mega kaupa ný brjóst en ekki áfengi Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.