Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Blaðsíða 42
Jólablað 20.–27. desember 201342 Sport
L
uis Suárez, leikmaður Liver-
pool, var á mánudaginn kjörinn
leikmaður ársins á Englandi.
Hann tók við verðlaunum á
Emirates-leikvanginum ásamt
eiginkonu sinni, skömmu eftir að hafa
farið svo illa með varnarmenn Totten-
ham, að knattspyrnustjórinn var
rekinn frá Lundúnaliðinu.
Suárez hefur farið á kostum á
keppnistímabilinu, þrátt fyrir að hafa
verið í leikbanni í fyrstu fimm um-
ferðunum. Hann hefur skorað 17 mörk
í 11 leikjum. Það er kannski ekki eins
fyrirferðarmikið í umræðunni, en
hann hefur jafnframt lagt upp 10 mörk
fyrir liðsfélaga sína – næstum eitt mark
að meðaltali í leik. Hann hefur skor-
að sjö mörk og lagt upp önnur sjö í
síðustu þremur leikjum. Þrátt fyrir að
hafa byrjað leiktíðina í leikbanni hefur
hann sjálfur skorað meira en þrettán
úrvalsdeildarlið. Það er lygileg töl-
fræði.
Skilnaðarbarn
En hver er Suárez og hvaðan kem-
ur hann? Luis Suárez fæddist í Salto í
Úrú gvæ og er fjórði sjö bræðra. Hann
er 26 ára. Fjölskyldan flutti til Monte-
video þegar hann var sjö ára og for-
eldrar hans skildu tveimur árum síðar.
Hann bjó hjá móður sinni og bræðrum
en hélt þó sambandi við föður sinn.
Suárez spilaði fótbolta allan liðlangan
daginn á götum Montevideo. Einn
eldri bræðra hans, Paolo, er einnig at-
vinnumaður í knattspyrnu og leikur
með Isidro Metapán í El Salvador. Árið
2009 giftist Suárez æskuástinni, Sofiu
Balbi, og eiga þau saman tvö börn,
Delfinu og Benjamin.
Hæfileikaríkur og kraftmikill
Suárez skorar mörk í öllum regnbog-
ans litum. Hann er mjög skotfastur,
býr yfir feiknalegum stökkkrafti og
þykir hafa yfir að ráða mikilli tækni.
Knattspyrnustjórinn Harry Redknapp
hefur sagt um Suárez að hann geti
jöfnum höndum spilað sem fremsti
maður (e. target striker) eða næst
fremsti maður, fyrir aftan annan fram-
herja. Óscar Tabárez, þjálfari landsliðs
Úrúgvæ, hefur sagt að hann sé stór-
kostlegur leikmaður; afbragð annarra
framherja.
Kenny Dalglish, goðsögnin frá
Liverpool, hefur látið hafa eftir sér að
Suárez sé greindur leikmaður sem hafi
fengið frábært knattspyrnulegt upp-
eldi hjá Ajax, þar sem Suárez spilaði
á árunum 2007 til 2011. Suárez þykir
afar ósérhlífinn á velli; hann er vinnu-
samur og hleypur þindarlaust í níu-
tíu mínútur. Hann er fljótur að rekja
knöttinn og þykir svo flinkur með bolt-
ann að um hann hefur verið sagt að
hann gæti „klobbað“ hafmeyju.
Akkilesarhællinn
En enginn er fullkominn. Suárez hefur
verið legið á hálsi fyrir að falla of auð-
Skúrkurinn
n Suárez hefur farið á kostum í haust n Breytist í „djöful“ á vellinum
Sem varð hetja
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Axarsköft Suárez
Skallaði dómara
2002
n Suárez var fimmtán
ára þegar hann fyrst
stofnaði til illinda á
knattspyrnuvellinum. Í leik
með Nacional skallaði hann dómara.
Hann var síðar staðinn að áfengisdrykkju
og var veitt tiltal af þjálfara liðsins.
Reifst við samherja
Mars 2009
n Suárez var dæmdur í eins leiks bann
eftir heiftarlegt rifrildi sem hann átti í
leikhléi við liðsfélaga sinn, Albert Luque.
Þá greindi á um hvor þeirra ætti að taka
aukaspyrnu á hættulegum stað.
Varði með höndinni
Júní 2010
n Þátttöku Suárez á HM í Suður- Afríku
lauk fremur snögglega. Liðið var
komið í 8-liða úrslit og atti kappi við
Gana. Í framlengingu varði Suárez skot
leikmanns Gana með höndinni. Fyrir það
fékk hann beint rautt spjald. Asamoah
Gyan skoraði ekki úr vítaspyrnunni og
Suárez var vændur um óíþróttamanns-
lega framkomu. Úrúgvæ vann leikinn að
lokum, fyrir tilstilli Suárez, en liðið féll úr
leik í undanúrslitum, þar sem hann var
í banni.
Beit mótherja
Nóvember 2010
n Í leik Ajax gegn PSV
í Hollandi beit Suárez
Otman Bakkal, liðs-
mann PSV, í öxlina. Hann
var dæmdur í sjö leikja bann
og var sektaður af félagi sínu. Hollenska
dagblaðið De Telegraaf uppnefndi
leikmanninn „Cannibal of Ajax“. Suárez
baðst afsökunar í myndbandi sem hann
deildi á Facebook.
Kynþáttaníð gegn Evra
Október 2011
n Suárez var af enska knattspyrnusam-
bandinu fundinn sekur um kynþáttaníð
gegn Patrice Evra, leikmanni Manchester
United. Hann var dæmdur í átta leikja
bann frá öllum keppnum sambandsins
og litaði þetta atvik alla umræðu um
leikmanninn það keppnistímabilið. Hann
var sektaður um hálfa áttundu milljón
króna.
Sendi fingurinn
Febrúar 2012
n Suárez sendi stuðningsmönnum Ful-
ham fingurinn í viðureign liðanna. Fyrir
vikið fékk hann eins leiks bann.
Lét sig detta
Október 2012
n Suárez
viðurkenndi að
hann hafi látið sig
falla í +teignum
í leik gegn Stoke í
október 2012. Brendan
Rodgers, stjóri Liverpool, sagði í kjölfarið
að slík hegðun væri óásættanleg og
á málinu yrði tekið innanhúss hjá
félaginu. Fyrir þessar sakir stillti spænski
knattspyrnuvefurinn El Gol Digital
Suárez upp í fimmta sæti yfir slóttugustu
knattspyrnumenn heimsins.
Beit mótherja – aftur
Apríl 2013
n Í viðureign Liverpool og Chelsea á
Anfield í vor beit Suárez varnarmann-
inn Branislav Ivanovic, eftir viðskipti
þeirra í vítateignum. Dómarinn sá ekki
atvikið og Suárez skoraði jöfnunarmark
í uppbótatíma. Sérstök nefnd á vegum
knattspyrnusambandsins dæmdi
hann í tíu leikja bann. Hann mótmælti
ákvörðuninni og hlaut bágt fyrir.
veldlega í teignum. Liðsfélagar hans,
þjálfarar og ýmsir álitsgjafar hafa látið
hafa eftir sér að það orðspor hans hafi
komið í veg fyrir að hann fái augljósar
vítaspyrnur.
Marco van Basten, fyrrverandi
þjálfari Suárez hjá Ajax, gagnrýndi
Suárez á sínum tíma fyrir að safna
gulum spjöldum. Hann sagði sam-
band sitt við leikmanninn á köflum
spennuþrungið (e. tense), jafnvel þó
hann gæfi liðinu mikið. „Luis er óút-
reiknanlegur, það er erfitt að hafa
áhrif á hann en það er einmitt það
sem gerir hann einstakan.“ Akkilesar-
hæll leikmannsins, en um leið stærsti
kostur hans, er einmitt skapið þegar
inn á völlinn er komið. Hér til hlið-
ar eru rifjuð upp nokkur atvik inni
á vellinum sem gert hafa það að
verkum að leikmaðurinn er einn sá
umdeildasti í boltanum. Hann hefur í
gegnum tíðina ýmist verið skúrkur eða
hetja.
Kaldhæðni örlaganna
Það var ef til vill kaldhæðnislegt að
verðlaunaafhendingin á mánudag
fór fram á heimavelli Arsenal. Félagið
reyndi hvað það gat í sumar að fá leik-
manninn til liðs við sig, þegar Suárez
var í ónáð hjá Liverpool og vildi kom-
ast þaðan. Fjörutíu milljóna punda
boði Arsenal var hafnað. Sú ákvörðun
stjórnar Liverpool hefur heldur betur
borgað sig.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, lét
hafa eftir sér á dögunum að hann væri
mikill aðdáandi Suárez. „Hann er mik-
ill og ögrandi persónuleiki. Af þeim
upplýsingum sem ég varð mér úti um
í sumar mátti dæma að það væri auð-
velt að vinna með honum, svona dags-
daglega. Utan vallar er hann sem eng-
ill; hann elskar að æfa og leggur sig
alltaf allan fram. Þegar hann kemur
inn á völlinn breytist hann í djöful. Alla
stjóra dreymir um að hafa þannig leik-
menn í liðinu.“ n
Ferillinn
Félag Leikir Mörk
Nacional 34 12
Groningen 37 15
Ajax 159 111
Liverpool 108 68
Landsliðið 71 39
Samtals 409 245
Frábær leikmaður Suárez
hefur sjálfur skorað meira en
þrettán úrvalsdeildarlið á
leiktíðinni. Mynd REutERS „Luis er óútreiknan-
legur, það er erfitt
að hafa áhrif á hann en
það er einmitt það sem
gerir hann einstakan.