Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Page 60

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Page 60
Jólablað 20.–27. desember 201360 Menning Vel skrifuð þroska- og persónusaga A lla mína stelpuspilatíð nefnist bók sem Mál og menning gefur út eftir Sig- ríði Kristínu Þorgríms- dóttur. Titillinn er tilvitnun í orðatiltæki sem afi höfundar viðhafði jafnan þegar hann spilaði við sonardætur sínar í bernsku þeirra. Hann glaðbeittur á þeim stundum en þær hálf skömmustu- legar yfir því að skemmta sér með „óvininum“, manninum sem í reynd þrúgaði allt heimilislífið með skap- brestum sínum og vanlíðan sem átti til að brjótast fram í andlegu og líkam legu ofbeldi þegar verst lét. Þessi bók er nokkurskonar sjálfsævisaga, að hluta til fjölskyldu- og samtímasaga, en einkum þó þroskasaga Sigríðar sjálfrar. Hún hefur áður skrifað tvær bækur um sagnfræðileg efni auk greina og rit- gerða af sama tagi. Sigríður Kristín er dóttir hjónanna Jakobínu Sig- urðardóttur skáldkonu og Þorgríms Starra Björgvinssonar, bónda og hagyrðings í Mývatnssveit, eins og greint er frá á bókarkápu. Tortryggni og sveitungarígur Foreldrar Sigríðar voru þjóðþekkt fólk og vegna þess vekur bókin strax forvitni og áhuga, ekki síst þeirra sem unnað hafa ritverkum Jak- obínu. Bókartitillinn gefur ekki of miklar upplýsingar um innihaldið, en er engu að síður táknrænn fyrir efnistökin. Í bókinni greinir Sigríður frá upp- vexti sínum í Mývatnssveit og heim- ilishögum hjá þeim Jakobínu og Þor- grími Starra. Sú frásögn er um margt áhugaverð, því ljóst er að þau hjón hafa ekki bundið sína bagga sömu hnútum og samferðamenn að öllu leyti, og fyrir vikið orðið fyrir tor- tryggni og sveitungaríg. Átti það ekki síst við um Jakobínu sem upprunnin af Hornströndum kemur sem að- komukona í Mývatnssveit og binst hjúskaparböndum við bóndasoninn Þorgrím Starra undir tortryggnu augliti sveitunganna og tengdafor- eldra sinna, einkum tengdaföður sem tók henni aldrei og lagði meira að segja á hana hendur, búandi á sama heimili. Ekki bætti úr skák að Jakobína skrifaði bækur „með orð- bragði“ og um málefni sem olli kurr meðal sveitunganna. Börnin fóru ekki varhluta af þessum ríg og sættu um skeið einelti og aðkasti. Þrátt fyrir þetta leitast höfundur við að forðast biturleika – hún vill ekki „gæla við reiði eða særindi í garð skólafélaga … sveitunga eða ættingja“ eins og hún segir sjálf heldur leitast við að fjalla um uppvöxt sinn af raunsæi þroskaðrar konu (110–111). Kvenréttindi og samskipti kynjanna Þetta tekst henni, og þrátt fyrir allt má glöggt greina hversu annt henni er um Mývatnssveitina og samfé- lagið þar, þegar hún lítur til baka yfir farinn veg. Þetta kemur ekki hvað síst fram þegar hún minnist 40 ára sprengjuafmælisins við Mið- kvísl árið 2010, en „þar mættu flest- ir sveitungarnir og ég held líka þeir sem voru farnir yfir móðuna miklu. Pabbi var þar. Og mamma.“ (111) Síðari hluti bókarinnar vekur ekki jafn mikinn áhuga og sá fyrri, enda er frásögnin þar farin að hnit- ast meira um einkahagi höfundar, hugleiðingar og skoðanir á mönn- um og málefnum. Ljóst er af þeim lestri að höfundur er léttfær á lykla- borðið og henni er liðugt um mál- beinið, því mælsku skortir hvorki né frásagnargleði. Samtímafólk les þarna margt sem rímar við reynslu þeirrar kynslóðar sem fædd er á sjötta áratug síðustu aldar – kyn- slóðarinnar sem stóð á mörkum tæknibyltingarinnar, með annan fótinn í menningu hins deyjandi bændasamfélags, en hinn í að- steðjandi hugmyndastraumum kvenfrelsis og nútímamenningar eins og við þekkjum hana í dag. Kvenréttindi og samskipti kynj- anna eru höfundi afar hugleikin og má segja að þau séu nokkurskon- ar leiðarhnoð í gegnum alla bók- ina. Sú umræða er þó misáhuga- verð, og ekki alls kostar hnitmiðuð. Einhverjum kann að þykja þar örla á prédikunartóni og full persónu- legri nálgun. Persónuleg og hispurslaus „Við fæðumst ekki heldur verðum konur“ sagði Simone de Beauvoir. Segja má að Sigríði Kristínu Þor- grímsdóttur takist ágætlega að sýna fram á það í þessari hispurslausu og persónulegu bók þar sem hún horf- ir á bak sinni eigin „stelpuspilatíð“ og tekst á við það hlutskipti að lifa og skrifa sem þroskuð kona. Von- andi fá íslenskir lesendur meira að sjá af tilþrifum hennar á ritvellinum framvegis. Niðurstaða: Vel skrifuð þroska- og persónusaga. n „Börnin fóru ekki varhluta af þessum ríg og sættu um skeið einelti og aðkasti.Alla mína stelpuspilatíð Höfundur: Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir Útgefandi: Forlagið 315 blaðsíður Ólína Þorvarðardóttir ritstjorn@dv.is Dómur S veitalíf við upphaf 21. aldar er ekki algengt sögusvið í bókmenntum um þessar mundir. Einhverjum kann að finnast það heldur ólíkleg- ur bakgrunnur mergjaðra atburða á vorum tímum. Enda er vanda- samt fyrir rithöfund að velja sér sveitina sem sögusvið nema þekkja vel til hennar, mannlífsins þar, sam- skiptahátta og aðstæðna. Þetta gerir Óskar Magnússon þó prýðisvel í bók sinni Látið síga piltar. Sagan gerist í Hlíðardal, fallegri sveit, við undirnið voldugra náttúruafla og mannlegra tilfinninga sem líka krauma. Lífið er einfalt og afdráttarlaust í fyrstu. Karlar og konur ganga til verka, hittast á manna mótum þar sem menn karpa og klappa hver öðrum á öxl, hafa skoðanir, súpa á, sækja svo fé af fjalli og … standa saman þegar á reynir. Samfélagsbaksviðið er miss- erin fyrir hrun. Fjármálarándýrin í Landbúnaðarbankanum hafa kom- ið auga á gróðavon í sveitum lands- ins og gera nú áhlaup á Hlíðardalinn þar sem varnir eru litlar lengi vel. Samtímis eykst spennan undir jarð- skorpunni þar sem kvikan hleypur til og leitar upprásar. Íbúar dalsins verða því fyrir tvenns konar ham- förum um svipað leyti. Þá ríður á að sýna þrautseigju og finna úrræði. Íbúar Hlíðardals eiga ráð undir rifi hverju enda hafa þeir vanist því að sýna órofa samstöðu þegar á reynir, eins og ein aðalpersónan orðar það: „Þegar að okkur er sótt. Þá stöndum við saman öll, öll, öll.“ (186) Lætur að sér kveða Óskar Magnússon lét nýlega að sér kveða á ritvellinum. Áður hafa kom- ið út eftir hann tvö smásagnasöfn: Borðaði ég kvöldmat í gær? (2006) og Ég sé ekkert svona gleraugnalaus (2010). Landsmenn þekkja hann þó betur sem athafnamann í stjórnum fyrirtækja, lögfræðing og fjölmiðlung um árabil en sem rithöfund. Á inn- kápu er mynd af honum þar sem andlit hans er lýst að hálfu, en annar vanginn hulinn skugga, eins og mað- urinn sé að birtast. Þetta er á sinn hátt táknrænt, því rithöfundurinn Óskar Magnússon er sannarlega að koma í ljós með þeim bókum sem út hafa komið eftir hann. Af tiltektum hans með stílvopnið má sjá að hann er rit- fær söguhöfundur og þessi bók ber þess merki að hann kann til verka og þekkir söguefnið. Á það jafnt við um samfélag sveitarinnar sem andrúms- loftið í fjármálaheiminum fyrir hrun. Hvort tveggja skilar sér með ágætum í söguþræði sem auk þess að vera lipur aflestrar er leiftrandi af húmor og frá- sagnargleði þess sem nýtur að skrifa. Víða í textanum má finna lítt dulbún- ar tilvísanir í menn og staðhætti. Eina skekkju varð ég vör við, sem skemmdi þó ekki mikið fyrir, en truflaði samt. Það var þegar fyrsti þingmaður kjör- dæmisins, Valdís Hauksdóttir (128) varð að karlmanni (135) sem hlaut nafnið Björgvin síðar í bókinni. Smá- vægileg yfirsjón en óþörf. Heimasmíðuð siðfræði Sagan er á sinn hátt spennandi, vel uppbyggð og söguþráðurinn þjáll. Litla sveitasviðið sem sagan gerist á hefur víðari skírskotun til samfélagsins alls þar sem kunnug- legar sviptingar eiga sér stað. Teflt er fram hefðbundnum andstæð- um þar sem sveitin stendur fyrir friðsæld, jafnvægi, nægjusemi, samstöðu og siðferði en borgin er fulltrúi fyrir stjórnleysi, áhættu, ágirnd, sundurlyndi og siðleysi. Þó er ekkert einhlítt í þessu. Þar sem menn hafa þurft að standa saman á fjalli við smölun af afrétti, hefur líka myndast afdráttar leysi hinnar heimasmíðuðu siðfræði sem tekur ekki endilega mið af bókstaf lag- anna heldur leiðir mál til lykta á eigin forsendum. Að því leyti kallast upphaf og endir bókarinnar hagan- lega á. Niðurstaða: Hæðin og gamansöm samfélagsádeila, krydduð hispurs- leysi og spennu. Hittir í mark. Ólína Þorvarðardóttir n Hittin samfélagsádeila Látið síga piltar Höfundur: Óskar Magnússon Útgefandi: Forlagið 350 blaðsíður Ólína Þorvarðardóttir ritstjorn@dv.is Dómur „Börnin fóru ekki varhluta af þess- um ríg og sættu um skeið einelti og aðkasti. Víð skírskotun til samfélagsins Sagan er á sinn hátt spennandi, vel uppbyggð og söguþráður- inn þjáll. Mynd SigTryggur Ari Vel skrifuð þroska- og persónusaga Í bókinni Alla mína stelpuspilatíð greinir Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir frá uppvexti tsínum í Mývatnssveit.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.