Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Síða 4
föstudagur 8. ágúst 20084 Fréttir DV Sandkorn n Ólafur F. Magnússon borg- arstjóri virðist ekki hafa gleymt því þegar sjálfstæðismenn töldu honum trú, í fyrndinni, um að þeir ætluðu að mynda með honum meiri- hluta þegar þeir voru í raun að ná samningum við Framsóknar- menn. Hanna Birna Krist- jánsdóttir og félagar hafa hingað til talið sér nægja að telja niður dagana þar til borgarstjórasætið er þeirra. Nú heyrast þær raddir hins vegar sí- fellt háværari innan borgarstjórn- arflokks Samfylkingar að Ólafur ætli að launa þeim lambið gráa og hætta í stjórnmálum þegar hann þarf að láta stólinn. Vandi sjálfstæðismanna yrði þá enn meiri en áður enda enginn annar í borginni sem virðist vilja vinna með þeim. n Óánægja kjósenda með störf borgarstjórnarflokk sjálfstæðis- manna er orðin út- breiddari en áður. Jafnvel heiðblá- ir borgarar eru farnir að efast og þykir helst til mik- ið um valda- brölt sinna manna. Hanna Birna Kristjánsdóttir, krónprinsessa borgarinnar, hefur ekki farið var- hluta af þessu þó hún hafi fengið mestan meðbyr til borgarstjórn- arembættisins. Því er ekki að undra að hún óttist opið prófkjör fyrir næstu kosningar þar sem lík- legt má telja að hún yrði að borga fyrir afglöp flokksins líkt og aðrir þó henni hafi verið hlíft hing- að til. Hennar í stað hafa margir horft til Ásdísar Höllu Bragadótt- ur sem stýrt hefur bæði Byko og Garðabæ með glæsibrag. n Oddný Sturludóttir borgarfull- trúi er ötul baráttukona fyrir jafn- rétti kynjanna. Þannig leggur hún sig fram við að vera góð fyrirmynd barna sinna, móðir sem jafnt skúrar gólfin og ræðir pól- itík. Þriggja ára dóttir hennar fer reglulega í hlutverka- leiki eins og barna er vísa. Oddný sárnaði þó eitthvað að stúlkan léti pabbann alltaf vera í aðalhlut- verki sem foreldri og spurði for- viða hvar mamman væri. „Svar- ið er stutt og laggott; Hún er á fundi,“ skrifar Oddný á Eyjunni. n Írönsku flóttamennirnir sem Magnús Þór Hafsteinsson, bæj- arfulltrúi á Akranesi, mótmælti svo mjög að kæmu til bæjar- ins eru væntanlegir í byrjun september. Skessuhorn greindi ný- lega frá því að söfnun húsgagna og annarra nytja sem Akranes- deild Rauða Krossins stóð fyrir handa fólkinu, hefur gengið það vel að á dögunum þurfti að afþakka fleiri muni. Viðtökurnar eru því talsvert jákvæðari en Magnús Þór hefur búist við og ætti að vera lít- ið mál fyrir Akurnesinga að taka á móti enn fleiri flóttamönnum enda gnótt tómra nýbygginga í bænum sem sárvantar íbúa. erla@dv.is Bátur Ásmundar Jóhannssonar, sjómanns í Sandgerði, var í gær innsiglaður. Ás- mundur hefur enda róið til fiskjar, kvóta- og veiðileyfislaus, um nokkra hríð til þess að mótmæla kvótakerfinu. Ásmundur segir að áfanga í baráttunni sé náð. Hann hafi verið þvingaður til borgaralegrar óhlýðni, en ætlar ekki að brjóta meira af sér að sinni. Ás- mundur segir almenning vera með sér í liði en stjórnvöld séu huglaus. ÞORA EKKI AÐ HAFA SKOÐUN Eitthvað uppbyggilegt Skáldið Skrifar Kristján Hreinsson sKáld sKrifar. „Og þá komum við að kjarna málsins sem er sjálfselskan.“ S jálfselska er ein af þeim dyggðum sem fæstir viðurkenna opinberlega en öll- um er þó ljóst að án hennar verður ekkert vit í tilverunni. Hún er nefnilega eins nauðsynleg framþróun mann- legra samskipta og letin er vítamínsprauta vís- indanna. Án letinnar verður ekkert fundið upp sem léttir okkur störfin og án sjálfselskunnar getur okkur aldrei lærst að þykja vænt um ann- að fólk. Ég dreg fram vangaveltur mínar um sjálfsel- skuna af illri nauðsyn og að gefnu tilefni. En ég frétti það um daginn að ung hjón hefðu fallið frá og á milli dánardægranna voru aðeins nokkrir sólarhringar. Það fylgdi sögunni að þau átt nokk- ur börn. Og svo frétti ég af konu á besta aldri sem fór til vinnu og varð bráðkvödd um leið og hún settist við skrifborð sitt. Ungur maður kom heim eftir vinnu, lagðist í sófa og dó. Ung kona var að bíða eftir leigubíl utan við hús vinkonu sinnar og fékk hjartastopp eða eitthvað slíkt, með þeim af- leiðingum að hún dó. Dauðsföll þessi eru rifjuð upp til að benda okkur á lífið sjálft – á þá óumflýjanlegu stað- reynd að við lifum um leið og okkar bíður hið óvænta sem ætti þó engum að koma á óvart. Og á sama tíma og fólk á besta aldri fellur frá, þá er annað fólk – einnig á besta aldri – sem ekki getur sætt sig við lífið einsog það er. Við sjáum daglega fólk sem lætur örfína agnúa, algjör aukaatriði, smávægilegt tuð og tittlingaskít eyðileggja ann- ars ágæta daga. Það að einhver sagði eitthvað verður til þess að ást gleymist, umhyggja hverf- ur, hamingja týnist og von verður að engu. Við gleymum því að fjöreggið er brothætt og við gleymum að elska þá sem standa okkur næst. Við gleymum því að lífið er einsog blóm – ef við önnumst það vel þá ilmar það lengi. Og þá komum við að kjarna málsins sem er sjálfselskan. Án þeirrar merkilegu dyggðar erum við varnarlaus. En ef við notum hana ekki öðr- um til framdráttar þá nýtist hún okkur ekki. Svo einkennileg er hún nú þessi ágæta dyggð þegar öllu er á botninn hvolft. Sá einn sem elskar sjálf- an sig er fær um að sýna öðrum ást. Og þegar sjálfselska okkar er ómeðvituð og án tildurs og uppgerðar, þá njótum við lífsins – áhyggjulaus og sátt við núið sem nær aldrei að líða. Mundu það, lesandi góður, að sjálfselskan er dyggð – hún er sú mesta góðvild sem þú getur sýnt þér sjálfum og er um leið lykill að leyndar- málum lífsins. Góðvild heimtar langa leit og líka náin kynni því öðlingurinn ekki veit af allri gæsku sinni. „Þjóðin er mér að langstærstum hluta sammála en stjórmálamenn- irnir þora ekki að mynda sér skoð- un.“ Bátur Ásmundar Jóhannssonar, kvótalausa sjómannsins sem róið hefur kvótalaus frá Sandgerði upp á síðkastið, var í gær innsiglaður af lögreglu. Ásmundur ætlar ekki að rjúfa innsiglið og halda aftur á sjó. „Ég neyddist til þess að beita svokallaðri borgaralegri óhlýðni til þess að ná ákveðnu marki. Ef ég geng lengra þá er ég orðinn að hættulegum glæpahundi,“ segir hann. Landhelgisgæslan fór um borð hjá Ásmundi þar sem hann var á veiðum í gærdag og sigldi bát hans í land. Búist var við skýrslutökum við komuna í land en Ásmundur sagði að sér lægi ekkert á. „Ég sagði þeim að ég myndi koma til þeirra á mánudaginn.“ Áfanga náð Ásmundur segir að nú sé ákveðnum áfanga náð í baráttu gegn óréttlátu kvótakerfi. Nú sé tími til þess að huga að næstu skrefum. Hann kveðst hafa undir- búið sig undir þessa baráttu í fjög- ur ár og sé til í slaginn. „Ég hef setið og viðað að mér gögnum á þjóð- skjalasafni og í Bókhlöðunni. Brátt taka við málaferli sem vonandi draga fram kjarna málsins. Það athyglisverðasta í andránni er að aðeins einn stjórnmálamað- ur hefur sýnt málinu áhuga, og þó hef ég rætt við marga,“ segir Ás- mundur. Hann segir Grétar Mar Jónsson, þingmann frá Sandgerði, hafa lagt sér lið í baráttunni. Fæst- ir hinna stjórmálamannanna skilji um hvað málið snýst. Dauðans druslur „Ég ræddi meðal annars við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur þegar ég ákvað að leggja út í þenn- an slag fyrir um fjórum árum síð- an. Hún tók erindi mínu dauflega og virtist ekki skilja hvað það var sem ég ætlaði mér að gera,“ held- ur Ásmundur áfram. Hann segir að þetta sé staðan þrátt fyrir að í stjórnarsáttmála Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sé sérstakt ákvæði um að leiða verði til lykta ágreining um þjóðareign á náttúruauðlind- um, „í ljósi niðurstöðu sérnefndar um stjórnarskrármál um það at- riði,“ eins og segir í sáttmálanum. „Þetta virðast vera dauðans druslur mestallt, þessir stjórnmála- menn, að hafa ekki áhuga á máli eins og þessu sem varðar alla þjóð- ina. Þjóðin er mér að langstærstum hluta sammála en stjórmálamenn- irnir þora ekki að mynda sér skoð- un.“ Grunaður um brot Bátur Ásmundar var sviptur veiðileyfi í júní síðastliðnum en Ásmundur hefur róið staðfastlega. Þegar yfirvöld komu um borð til Ásmundar í gær hafði hann fiskað hátt í 800 kíló, að eigin sögn. Land- helgisgæslan sendi frá sér tilkynn- ingu í gær þar sem sagt var að tekið yrði á móti Ásmundi með viðeig- andi hætti. Það kemur svo í hlut lögreglu- stjórans á Suðurnesjum að rann- saka mál Ásmundar, þar eð hann er grunaður um brot á lögum um stjórn fiskveiða, eins og það er kall- að. SiGtryGGur Ari JóhAnnSSon blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is Komið í land ásmundur ætlar ekki að róa meira í bili. Báturinn hefur verið innsiglaður og hann ætlar ekki að brjóta fleiri lög en hann kemst af með til þess að fá umfjöllun um kvótakerfið. H&N-mynd DV-MYND GUNNAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.