Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Blaðsíða 23
föstudagur 8. ágúst 2008 23Umræða
Maður heyrir ekki oft um fólk sem
hefur verið jafnlengi í hjónabandi
og þau Oddný Kristjánsdóttir og Ás-
mundur Eiríksson, en þau bjuggu alla
sína tíð að Ferjunesi í Flóa. Sagt er
að hjónaband þeirra sé það áttunda
lengsta á Íslandi en þegar Ásmundur
lést árið 2006 höfðu þau hjónin notið
samvista í blíðu og stríðu í 72 ár og 209
daga. Tæpu ári eftir dauða Ásmundar
gerðist svo það sem svo oft gerist eft-
ir langt samlíf að Oddný fylgdi manni
sínum í „lundina grænu með rósun-
um vænu“.
Það er eitthvað fallegt við þetta allt
saman og næsta víst að þau Oddný og
Ásmundur hafi lumað á galdri sem
hefði verið spennandi að skyggnast
inn í og læra af. En spjall við reynslu-
ríkt og gefandi fólk er örugglega á
við ótal marga sálfræðitíma; það er
nefnilega bráðnauðsynlegt að læra af
reynslunni og þá ekki bara af sinni eig-
in heldur annarra - samhæfa reynslu,
styrk og vonir - einsog segir á góðum
stað til að koma í veg fyrir að festast í
vanahlekkjunum.
Nú veit ég ekkert um hver um-
ræddur tímagaldur þeirra Oddnýj-
ar og Ásmundar var, en eftir að hafa
notið frábærrar leiðsagnar Bergþóru
staðarhaldara um yfirlitssýningu á
verkum Oddnýjar, sem nú stendur
yfir í listasmiðjunni „Tré og list“ í For-
sæti III í Flóahreppi – flott smiðja og
hugvitsamleg – er ég nokkuð viss um
þetta fernt:
1. Oddný hefur verið lífsglöð kona
– það sýna meðal annars litirnir sem
hún velur verkum sínum en í smiðj-
unni getur að líta stórar og smá-
ar flíkur, teppi, vefnaði og allskyns
handverk.
2. Hún hefur verið skemmtileg
– það sýnir hressilegt, spennandi og
stundum bráðfyndið efnisvalið.
3. Hún hefur verið víðsýn og næm
– það sýna ljóðin sem hún deildi
með lesendum í tveimur bókum auk
frásagna og ljóða í öðrum bókum og
tímaritum.
4. Oddnýju hefði ekki tekist að
koma öllu því í verk sem henni tókst,
sem er kapítuli út af fyrir sig og hægt
er að fræðast um hann á sýningunni,
nema vegna þess að Ásmundur var
ekki bara eiginmaður hennar eftir
orðanna undarlegu hljóðan heldur
líka vinur hennar og félagi.
Satt að segja mundi ég éta trefil-
inn minn, einsog konan gerði forð-
um og kafnaði ekki, ef ég hefði ekki
að einhverju leyti rétt fyrir mér. Um
leið dreg ég þá ályktun, af því ég er
svo ályktanaglöð manneskja, að trú-
lega hefði Oddný Kristjánsdóttir ekki
verið – lífsglöð, skemmtileg, víðsýn
og næm – nema vegna þess að hún
var sjálfstæð manneskja og ham-
ingjusöm í sínu langa hjónabandi
með Ásmundi Eiríkssyni sem hefur
örugglega verið jafnheppinn og far-
sæll og hún.
Það er nefnilega sjálfstæðið og
frelsið sem er aðalmálið í öllum sam-
skiptum og í hjónabandinu líka. Og
alls ekkert bull að sjálfstætt fólk geti
lyft Grettistaki.
Að lokum legg ég til að samið
verði sem fyrst við ljósmæður.
Sandkassinn
Af einhverjum ástæðum er ég
haldin fortíðarþrá. Það lýsir sér
ekki í ljúfum minningum barn-
æskunnar held-
ur löngun í allt
sem er gamal-
dags. Ef ég fengi
að ráða væri ég
ensk sveita-
stúlka á 18.öld
sem berðist fyrir
kvenréttindum.
Draumurinn
væri að hlaupa
í strekktum hvítum sumarkjól á
fallegum grænum engjum með
slöngulokka í hárinu. Heimil-
ið væri veggfóðrað með blóma-
mynstri og biðillinn væri handan
við hornið.
ÞettA er afleiðing þess að alast
upp í þorpi þar sem eina sjón-
varpsstöðin var Ríkissjónvarpið.
Það sést best í ólíkum draum-
um okkar systkinanna en yngri
bróðir minn hefur alist upp við sí-
bylju bandarískra unglingaþátta.
Draumur hans er sá bandaríski.
Ísland er ekki
töff og engan
vegin saman-
burðarhæft við
svarta „bræð-
ur“, gettókeðjur
og bling bling.
Hans æðsti
draumur er að
fara til Banda-
ríkjanna og vera þáttakandi í high
school, ná sér í klappstýru og vera
í ruðningsliðinu.
ÞessAr fantasíur sýna glögglega
þau áhrif sem sjónvarpið hefur
á unglinga. Í vikunni horfði ég á
Britain‘s next top model, systur-
þátt þess bandaríska og velti fyrir
mér þeim áhrifum sem þættirnir
hafa á unglingsstúlkur. Að horfa
upp á þær rembast við að falla inn
í fyrirfram ákveðið form og lifa í
ótta við að detta úr leik getur varla
talist hollt uppeldisefni.
Ég er í það minnsta fegin að þessi
þáttur var ekki innan seilingar á
mínum unglingsárum. Það er við-
búið að ég hefði reynt að uppfylla
kröfur Tyru Banks um hvern-
ig stúlkur eigi að líta út og haga
sér, enda er sjónvarpið gríðar-
lega áhrifamikill miðill. Einhvern
veginn virkar evrópski draumur-
inn svo miklu heilbrigðari en sá
bandaríski. Best væri auðvitað að
fá alvöru íslenska unglingaþætti
á skjáinn. Þar liggur tækifæri sem
einhver hlýtur að fara að grípa.
Lilja veltir fyrir sér áhrifum
sjónvarps á unglinga
tímagaldur og ást í flóa
Dorgkeppni Þeir undu sér hið besta þessir piltar sem tóku þátt í dorgkeppni á nýrri bryggju á Hjalteyri við Eyjafjörð um liðna helgi. Þegar blaðamann
bar að garði hafði lítið veiðst en þegar leið á daginn tóku sandkolar að gera vart við sig. Það var einróma álit nærstaddra að frumlegasta veiðin hefði
þó verið krossfiskur sem óvænt var dreginn á land. H&N-mynd DV-MYND SIGTRYGGUR
myndin
P
lús
eð
a m
ínu
s
Spurningin
„Nei, alls ekki, mér fannst þetta
rosalega gaman og ég er svo sáttur
við sigurvegarann,“ segir steini díva,
sem náði ekki að verja titil sinn sem
draggdrottning Íslands á miðvikudag-
inn. Hann brosir í gegnum tárin.
Var erfitt að
kVeðja kórónuna?
Mínusinn fær Jörundur
Guðmundsson, umboðsmaður
Taylors Tivoli Funland ehf. á
Íslandi, sem greiðir unglingum
sem þar vinna með tívolímiðum í
stað launa.
vigDís
grímsDóttir
rithöfundur skrifar
„Sagt er að hjónaband
þeirra sé það áttunda
lengsta á Íslandi en þeg-
ar Ásmundur lést árið
2006 höfðu þau hjónin
notið samvista í blíðu og
stríðu í 72 ár.“
LiLja guðmunDsDóttir
blaðamaður skrifar lilja@dv.is
-hvað er að frétta?