Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Blaðsíða 22
föstudagur 8. ágúst 200822 Umræða
Svarthöfði er fyrir lifand-is löngu orðinn kótilettukall og man varla lengur þá tíð er
hann var hippi og leiddi Svart-
höfðu um hæðir og hóla en hún
var þá smart. Svarthöfði er ekki
alki fyrir fimm aura en gerir þó allt
miklu betur en slappi fúll á móti.
Svarthöfði vinnur langan vinnudag
og sinnir þess á milli fjölmörgum
áhugamálum sínum og smíðar þar
á meðal skútur, skerpir skauta og
meikar þrumu osta og grauta. Haltu
kjafti!
Brauðstritið og skauta-skerpingarnar valda því óhjá-kvæmilega að barnauppeldið
situr nokkuð á hakanum og Svart-
höfði fóðrar því börnin óhóflega oft
með súrmjólk í hádeginu og seríósi
á kvöldin og stundum á hann það
til að missa stjórn á sér í stress-
inu og segir krökkunum að þegja
á meðan fréttatíminn er. Ungl-
ingurinn á heimili Svarthöfða
hefur illu heilli tekið sér suma
lesti Svarthöfða til fyrirmyndar og
reynir að skjóta sér undan ábyrgð
og skyldum og mælir því göturn-
ar með vottorð í leikfimi og skoðar
bæinn sinn. Svarthöfða er að vísu
hulin ráðgáta hversu miklum tíma
gelgjan getur eytt á Laugaveginum
sem er niðurníddur og ljótur og þar
er ekki margt að sjá.
Svarthöfða finnst framtíðar-horfur ávaxta lenda sinna heldur ekkert sérstaklega
bjartar og sér fyrir sér að ef ungl-
ingsstúlkan fari ekki að sjá villur
síns Laugavegar muni hún enda
fimmtán ára á föstu. Gerist það er
óhjákvæmilegt að hún verði sextán
ára í sambúð, sautján ára lamin,
nítján ára skilin og fríki svo að lok-
um út.
Sjálfur minnist Svarthöfði þess þegar hann var með ungl-ingabólu á nefinu og náði
henni ekki af. Heimurinn og líf-
ið voru einfaldari í þá daga enda
saug Svarthöfði litli bara sitt kók í
gegnum lakkrísrör og borðaði Prins
Póló á meðan hann horfði á Löður
á einu sjónvarpsstöðinni. Internet,
GSM-símar, Skjár einn og PlayStat-
ion flæktu ekki tilveru Svarthöfða
og því þurfti ekki annað en vítamín
frá ömmu til þess að koma honum
til manns.
Amma læddi vítamíninu, sem Svarthöfða kraftinn allan gaf, ofan í hann á meðan hann
svaf með smurolíukönnu og stórri
trekt. Svarthöfði óx því upp og varð
eins og klettur þannig að þegar
hann datt heyrðist doj-joj-joj-joj-
joj. Svarthöfði var nefnilega úr járni
og þess vegna heyrðist doj-joj-joj-
joj-joj. Doj-joj-joj-joj-joj.
Svarthöfði hefur auðvitað látið nokkuð á sjá og hefur nú meiri áhyggjur af kreppunni en því
að hingað komi engisprettufaraldur.
Hann veit eins og Haraldur að hér
er of kalt. Þrátt fyrir kreppuþung-
lyndi og kótilettukarlmennsku ákvað
Svarthöfði að bregða undir sig betri
fætinum á laugardaginn og fara á
ball þótt hundrað ár séu síðan hann
var með heví hár. Eyrnalokkurinn og
strípurnar heyra líka sögunni til eins
og lakkrísrörið en þegar Svarthöfði
hafði sopið slatta af karlakóki stakk
hann upp á því að þau hjónin færu á
Organ að hlusta á þann mikla meist-
ara Bjartmar Guðlaugsson. Svart-
höfða lyftist öll upp, beyglaði munn-
inn og maskaraði augun. Svarthöfði
blandaði frú sinni í glas, ekki mikið
kók ekki mikinn ís, og rétti henni
kveikjarann.
Þegar Svarthöfði sá ölvuð-um frygðarglampa bregða fyrir í augum konunnar sem
var einu sinni smart yngdist hann
upp um átján ár á nóinu og svo
drifu þau sig svo þau misstu ekki af
Bjartmari og sjóinu. Og ekki sveik
Bjartmar þau skötuhjúin á Organ
og þau leiddust heim upp Lauga-
veginn sem var ekki lengur ljótur
heldur minnti hann á grasivaxnar
hæðir og hóla. Ölvaður af karlakóki
og djúpvitrum textum Bjartmars
þakkaði Svarthöfði sínum sæla að
hans þjakaða þjóð eigi enn skáld
sem skynja veruleikann og koma
honum til skila af lífi og sál. Svart-
höfði vonar að Bjartmar komi sem
oftast í bæinn úr sveitinni með
ný lög. Hann er von Svarthöfða í
kreppunni. Doj-joj-joj-joj-joj. Doj-
joj-joj-joj-joj.
Bjartmar til Bjargar
svarthöfði
ReyniR TRausTason RiTsTjóRi skRifaR. Einstöku rugludallar eru enn þeirrar skoðunar að samkynhneigð sé smitandi sjúkdómur.
Enginn er hinsegin
Leiðari
Íslenskt samfélag hefur á undanförnum árum tekið þeim framförum að samkynhneigðir hafa að mestu öðlast sama rétt og aðrir. Árleg gleðiganga Hinsegin daga, þar sem þús-undir taka þátt með beinum eða óbeinum hætti, undir-
strikar að þjóðin hefur að mestu sigrast á eigin fordómum. Ekki
er lengur þörf á því fyrir fólk að þjást í leynum vegna kynhneigð-
ar sinnar eins og var á árunum í
kringum 1970. Sá sem mest hefur
lagt til baráttunnar er söngvaskáld-
ið Hörður Torfason sem kom út úr
skápnum í því andrúmslofti sem
þá ríkti. Hörður þurfti að þola háð
og spott en hvikaði aldrei frá þeirri
sannfæringu sinni að hann ætti rétt
á því að vera stoltur af kynhneigð
sinni. Barátta homma og lesbía
hefur staðið um það að fá viður-
kenningu þess að vera eins og hvert
annað fólk. Einstöku rugludallar
eru enn þeirrar skoðunar að sam-
kynhneigð sé smitandi sjúkdóm-
ur sem jafnframt sé læknanlegur.
Þær raddir verða þó lágværari eft-
ir því sem víðsýni vex og almenningur sér í gegnum bull hinna
fordómafullu. Flestir átta sig á því að enginn er hinsegin og all-
ir eru sjálfsagðir. Gay Pride hátíðin er baráttutæki í þá veru að
allir séu jafnir, burtséð frá kynhneigð. Þó eru einhverjir sem ef-
ast um þá aðferð að samkynhneigðir klæði sig í skrautlega bún-
inga. Vissulega gefur gangan lífinu lit en kannski væri sterkari
leikur að þær þúsundir sem taka
þátt í gleðigöngunni klæddust eins
og almennt tíðkast í samfélaginu og
undirstrikuðu þannig að viðkom-
andi væru ekkert öðruvísi en aðr-
ir. Þegar samkynhneigðir ná þeim
áfanga að vera með full réttindi
munu þeir falla inn í samfélagið á
eðlilegum forsendum. Í daglegu lífi
er sjaldnast hægt að lesa kynhneigð
út úr klæðaburði. Og þannig á það
einmitt að vera. Kynhneigð fólks
skiptir engu máli í daglegum sam-
skiptum. Vonandi kemur sá dagur
að hommar og lesbíur þurfi ekki
að fara í göngur til að sækjast eftir
sjálfsögðum rétti sínum.
DómstóLL götunnar
Hvernig líst þér á virkjun þjórsár?
„Ég hef enga skoðun á henni, ég hef
ekki kynnt mér málið.“
Birna Karlsdóttir,
65 ára skrifstofustarfsmaður
„alveg skelfilega, það er alveg komið
nóg, við verðum að hugsa okkar gang.“
Ragnheiður Jóhannsdóttir,
58 ára kennari
„Mér líst illa á hana, þar sem mér finnst
vera tekið of mikið land vegna hennar.“
Páll Hersteinsson,
57 ára háskólaprófessor
„Mér líst illa á hana, það er komið nóg
af virkjunum á Íslandi.“
Ívar Ragnarsson,
31 árs starfsmaður á veitingahúsi
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
fréttaStjóri:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur Helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnúMer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010,
áskriftarsÍMi: 512 7080, auglýsingar: 512 70 40.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
sanDkorn
n Spádómar um endalok 24
stunda eru á hvers manns
vörum. Meðal þeirra sem
halda því fram
er Hallgrímur
Thorsteinsson í
Orðinu á götunni
sem staðhæfir
að kvöldsett sé
orðið í rekstrin-
um og tíðinda
að vænta af
Árvakri. Björn
Bjarnason, nú-
verandi dómsmálaráðherra,
sendir fríblaðinu einnig pillu
á vef sínum þar sem lesa má á
milli lína að illa sé komið eftir
að Ólafur Stephensen yfirgaf
brúna: „Af lestri 24 stunda má
auðveldlega ráða, hve góðan
svip Ólafur Þ. Stephensen setti
á blaðið í ritstjóratíð sinni,“
bloggar Björn.
n Það er þungt hljóðið í borg-
arfulltrúum Sjálfstæðisflokks-
ins þessa dagana. Sést hefur
til þeirra á kaffihúsum þar
sem fýlan bókstaflega lekur af
þeim. Ástæðan er
framganga Ólafs
F. Magnússonar
borgarstjóra sem
er orðinn óskor-
aður leiðtogi og
fer sínu fram í
hvívetna. Sér-
staklega þvælist
aðstoðarmanns-
málið fyrir sjöllum og þá ekki
síst að Magnús Skúlason skuli
vera kominn í skipulagsráð
sem að sumra mati þýðir aftur-
hvarf til fortíðar.
n Vestfirðingar halda vart vatni
yfir launum Halldórs Hall-
dórssonar bæjarstjóra Ísa-
fjarðarbæjar, sem slær út flesta
ráðherra ríkisstjórnarinnar og
auðvitað
aðra bæj-
arstjóra.
Halldór er
samkvæmt
tekjublaði
Mannlífs
með tæp-
lega 1,2
milljónir
króna á mánuði. Ljóst þykir að
þau laun eru ekki árangurs-
tengd þar sem bæjarfélag hans
glímir við rekstrarerfiðleika.
Aðrir þættir ráða því örlætinu.
n Annar tekjuhár bæjarstjóri
er Jónmundur Guðmarsson
á Seltjarnanesi sem um tíma
var gríðarlega umdeildur þrátt
fyrir sterkan fjarhag bæjar-
félagsins.
Jónmund-
ur hefur í
seinni tíð
siglt fremur
lygnan sjó.
Bloggarinn
Jens Guð
bloggar um
það á dv.is
að starfsmenn bæjarskrifstof-
unnar á Seltjarnarnesi hafi
flestir frían aðgang að netinu
á heimilum sínum með þeirri
undantekningu að „fjórar til
sex starfskonur á bæjarskrif-
stofunni eru skildar útundan“.
Þetta segir Jens bera einkenni
eineltis.