Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Blaðsíða 29
DV Helgarblað Föstudagur 8. ágúst 2008 29
hvar eru þau núna?
Dirty Dancing
Jennifer Grey
Jennifer grey var sú sem allar stúlkur þráðu að vera í hlutverki Frances „Baby“
Houseman í dirty dancing. Það hefur hins vegar lítið sést til Jennifer eftir að hún
sló í gegn í myndinni. Í upphafi tíunda áratugarins fór hún í lýtaaðgerð til að láta
minnka á sér nefið sem var svo mislukkuð að það þurfti aðra aðgerð til að bæta
fyrir skaðann af þeirri fyrri. Í kjölfarið varð leikkonan nánast óþekkjanleg í framan
og ekki einu sinni nánustu vinir hennar þekktu hana. Þetta eyðilagði svo feril
hennar að hún íhugaði jafnvel að skipta um nafn og kalla sig Wanda West þar
sem hún taldi það passa betur við nýja andlitið. Í dag er Jennifer gift leikaranum
Clark gregg en áður var hún trúlofuð bæði Johnny depp og Matthew Broderick.
The Exorcist
Linda BLair
Blair skaut upp á stjörnuhimininn eftir að hafa ælt og blótað eins og hún
ætti lífið að leysa í hlutverki hinnar andsetnu regan í hrollvekjunni the
Exorcist árið 1973. Blair var fjórtán ára þegar myndin var gerð en vægt til
orða tekið náði hún ekki alveg að fylgja eftir velgengni myndarinnar. the
Exorcist II, sem var gerð fjórum árum seinna og Blair lék líka í, fékk slæma
dóma. á níunda áratugnum lék hún í nokkrum misheppnuðum
myndum en einhverjir muna kannski eftir að hafa séð hana í litlu
hlutverki í hrollvekjunni scream frá árinu 1996. Hin seinni ár hefur Blair
helst getið sér orð sem mikil baráttukona fyrir góðri meðhöndlun dýra.
My So-Called Life
Brian KraKow
aðalleikarar þáttarins, Claire danes og Jaret Leto, eru bæði
heimsfræg í dag, en hvað varð um devon gummersall sem lék grey
Brian Krakow sem var ástsjúkur í karakter Claire danes. Hann hefur
tekið að sér undarleg hlutverk. Kappinn hefur leikið í fjöldanum
öllum af þáttum og bíómyndum sem enginn hefur heyrt um. Hann
lék þó lesbíu í the L-Word og sást nú síðast í spennuþættinum 24.
Crocodile
Dundee
PauL HoGan
ástralski leikarinn Paul Hogan sló svo
sannarlega í gegn í fyrstu kvikmynd sinni,
Crocodile dundee, árið 1986. Hann fékk
golden globe-verðlaunin fyrir besta leik í
grínmynd og var tilnefndur til óskarsverð-
launa. Hann lék svo í framhaldsmyndun-
um Crocodile dundee II og Crocodile
dundee í Los angeles. í upphafi síðasta
áratugar gaf hann hins vegar leikferilinn
upp á bátinn og hóf störf sem talsmaður
subaru þar sem hann kynnti safarílínu
bílafyrirtækisins.
Bill & Ted-myndirnar
aLex winter
öll veröldin veit hver Keanu reeves er. Hann vakti fyrst
athygli í hlutverki táningsins teds í gamanmyndinni Bill &
ted’s Excellent adventure árið 1988 sem fylgt var eftir með
framhaldsmynd þremur árum síðar. Minna hefur hins vegar
farið fyrir piltinum sem lék Bill. sá heitir alex Winter en hann
sneri sér mestmegnis að handritaskrifum og gerð tónlistar-
myndbanda eftir að vinsældaralda Bill og ted tvíeykisins var
týnd og tröllum gefin. Hann skrifaði meðal annars handritið
og leikstýrði spennumyndinni Fever frá árinu 1999 sem
aðþrengda eiginkonan teri Hatcher lék í. Þá leikstýrði hann
myndböndum við tvö laga red Hot Chili Peppers, taste the
Pain og Knock Me down.
Beverly Hills
GaBrieLLe Carteris
Leikkonan gabrielle Carteris er þekktust fyrir hlutverk sitt sem andrea
Zuckerman í Beverly Hills: 90210. Hún vann sér það einnig til frægðar að vera
elst í leikhópnum til að túlka unglingsstúlku en Carteris var tuttugu og níu ára
þegar hún var ráðin í þættina. Hún yfirgaf reyndar dramað í Beverly Hills árið
1995 til að gerast þáttarstjórnandi í slúðurþætti sem entist þó bara í eina
þáttaröð. árið 2006 var hún við tökur á B-mynd í Kanada og lenti í slysi sem
varð til þess að hún lamaðist öðrum megin í andliti og missti röddina í hálft ár.
Corey Feldman og Corey Haim
unglingastjörnurnar Corey Feldman og Corey Haim kynntust við tökur á myndinni
the Lost Boys og urðu í kjölfarið nánast óaðskiljanlegir. Það kom varla fyrir að fólk
segði nafn annars þeirra án þess að nefna nafn hins í beinu framhaldi. Feldman var
örlítið þekktari en Haim þar sem hann hafði áður leikið í the gremlins og gooneys.
Corey-arnir tveir léku saman í fjölda mynda og voru sjóðandi heitir á níunda
áratugnum, einna helst fyrir leik í kvikmyndinni Lisence to drive. Eins og vill oft
verða með unglingastjörnur lá leiðin fljótt niður á við en í dag stjórna þeir
raunveruleikaþættinum the two Coreys á sjónvarpsstöðinni a&E.
Nágrannar
sCott roBinson
scott robinson var sá allra heitasti í Nágrönn-
um á sínum tíma. scott var leikinn af
söngvaranum Jason donovan og var það
engin önnur en fröken Kylie Minogue sem lék
kærustuna hans, Charlene, í sápuóperunni.
Kylie og Jason sungu saman dúett árið 1988
sem hét Especially for You og hafa plötur hans
selst í tonnavís. síðastliðin ár hefur hann snúið
sér meira að leiklistinni, en hann leikur einmitt
í þáttunum Echo Beach sem sýndir eru á rúV.
Cosby-fjöl-
skyldan
rudy HuxtaBLe
Litla dúllan hún rudy Huxtable er ekki
svo mikið krútt í dag. Keisha Knight-
Pulliam lék yngsta barnið í Cosby-
fjölskyldunni. Er þáttaröðin leið undir
lok tók Keisha að sér nokkur aukahlut-
verk í hinum ýmsu kvikmyndum. Hún
lék meðal annars í Barber shop. Einnig
skellti leikkonan sér í skóla og
útskrifaðist árið 2001 með gráðu í
félagsfræði. Þeir sem hafa áhuga á að
sjá litlu rudy Huxtable fullvaxna ættu
að fylgjast með kvikmyndinni Madea
goes to Jail með tyler Perry, en þar
mun Keisha fara með hlutverk Candy.
Myndin verður frumsýnd á næsta ári.
Molly Ringwald
Molly var ein skærasta unglingastjarna
níunda áratugarins og lék meðal
annars í hinum geysivinsælu og
klassísku unglingamyndum Pretty In
Pink og Breakfast Club. á tíunda
áratugnum fór hins vegar að hægjast á
ferlinum og lék hún nánast eingöngu í
ódýrum B-hryllingsmyndum en tók án
efa verstu ákvörðun ferilsins þegar
hún hafnaði hlutverkinu sem Julia
roberts tók að sér í Pretty Woman. Í
dag leikur hún móðurina í lítt þekktum
unglingaþáttum sem nefnast the
secret Life of the american teenager.
Supergirl
Kara/suPerGirL/Linda Lee
súperstelpan var í uppáhaldi hjá öllum ungum stúlkum í kringum 1985. Loksins fengu
stúlkur sína eigin hetju. Helen slater fór með hlutverk ofurhetjunnar og var ekki til svalari
stúlka á sínum tíma. Helen slater hefur ekki setið auðum höndum síðan. Hún hefur leikið
aukahlutverk í flestöllum sjónvarpsþáttum sem sýndir hafa verið. Þar má meðal annars
nefna seinfeld, Boston Public, Law & Order: suV, grey’s anatomy, og nú síðast í smallville