Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Blaðsíða 43
föstudagur 8. ágúst 2008 43DV Ferðir
Á ferðinni
Hlý föt og bikiní
Þegar farið er í tjaldferðalag er alltaf best
að hafa vaðið fyrir neðan sig. Þótt veð-
urspáin segi að sólin eigi eftir að skína
alla helgina er aldrei hægt að treysta því
á Íslandi. taktu með þér regngallann og
stígvélin, ásamt stuttbuxunum og hlýra-
bolnum. að auki er mjög gott að taka
með húfu, manni verður alltaf kalt á höfð-
inu í tjaldinu. umsjón: berglind bjarnadóttir berglind@dv.is
Upplifa landið
á annan hátt
Hestaferðir hafa lengi verið vinsælar hér á landi. Margir erlendir ferðamenn fara í slíkar
ferðir og upplifa landið á annan hátt en ella. Hjá Ferðaþjónustufyrirtækinu Steinsholt
voru allar ferðir upppantaðar í október í fyrra og er farið að plana næsta sumar.
Ferðaþjónustufyrirtækið Steinsholt
er meðal þeirra sem bjóða upp á
hestaferðir á Íslandi. Nokkrar skipu-
lagðar ferðir eru farnar á hverju
sumri og þarf fólk ekki að koma með
neitt nema sjálft sig og fötin sín.
„Við höfum farið í fjórar ferðir í
sumar, tvisvar sinnum á Kerlingar-
fjöll og tvisvar í Landmannalaug-
ar,“ segir Gunnar Örn Marteinsson
á Steinsholti á Selfossi, „og fólk fær
oft mikla upplifun í ferðum okkar og
upplifir landið sterkt.“ Þeir sem hafa
gaman af því að fara í hestaferðir
halda oft hópinn og ferðast saman.
„Það kemur stundum sama fólkið
til okkar ár eftir ár en fer þá í mis-
munandi ferðir,“ segir Gunnar Örn.
„Síðan er líka mikið af nýju fólki sem
kemur til okkar,“ bætir hann við.
fleiri útlendingar en
íslendingar
Hóparnir sem fara í hestaferðir
með Steinsholti eru frá fimmtán til
átján manns. „Við viljum helst ekki
fara með mikið fleiri en fimmtán
manns í einu en í síðustu tveim-
ur ferðum okkar höfum við verið
með átján manns. Við eigum við
vinsældavandamál að stríða,“ segir
Gunnar Örn og hlær.
Steinsholt skipuleggur ferð-
irnar sínar með löngum fyrirvara
og vinnur í samstarfi við erlendar
ferðaskrifstofur. „Í ferðunum okk-
ar eru fleiri erlendir ferðamenn
en Íslendingar. Margt af þessu
fólki sem er að koma á hesta í sínu
heimalandi. Fólkið býr við allt aðr-
ar aðstæður en við á Íslandi, því hér
höfum við alla þessa víðáttu og há-
lendið er mjög sérstakt. Margir af
vönum hestamönnum sem koma
frá útlöndum ríða sömu leiðina dag
eftir dag og sumir þurfa jafnvel að
keyra með hestana sína til að fara
í reiðtúr,“ segir Gunnar Örn. „Einu
sinni sagði erlend kona við mig
þegar við vorum komin á náttstað
að hún væri hrædd og þreytt en
rosalega hamingjusöm með ferð-
ina,“ segir Gunnar.
fullbókað í október
Hægt er að skoða skipulagð-
ar ferðir inni á steinsholt.is. „Við
vorum búin að bóka allt í október
í fyrra því þurftum við ekkert að
auglýsa fyrir þetta sumar. Við erum
að fara í að endurnýja síðuna með
nýjum ferðum fyrir næsta sumar.“
Um verð og nauðsynlegan bún-
að segir Gunnar: „Ferðirnar hjá
okkur kosta um fimmtán þúsund
krónur og er allt innifalið í því, all-
ar gistingar, fæði, afnot af hesti og
regnföt. Fólkið þarf ekki að koma
með neitt nema fötin sín.“
Ferðirnar eru misdýrar en það
fer eftir því hvert farið er og hversu
lengi. „Við erum að fara í sex til sjö
daga hestaferðir, en við erum líka
með styttri ferðir. Meðal annars
kemur hópur af íslenskum konum
alltaf til okkar í þriggja daga ferðir
á hverju ári en þegar við erum að
fara upp á hálendi þá erum við að
taka um sex daga í ferðina,“ segir
Gunnar Örn.
Ferðafélag Íslands er áhugamannafélag sem á fullt í fangi með að sjá um Laugaveginn:
Vinsælasta gönguleiðin
„Það er mjög mikil ásókn í að ganga Lauga-
veginn og það er heilmikill uppgangur í þessu
núna,“ segir Leifur Þorsteinsson líffræðing-
ur og fararstjóri. Leifur hefur staðið að út-
gáfu bæklings um Laugaveginn sem hægt er
að nálgast hjá Ferðafélagi Íslands. Leifur telur
að uppgangurinn sé það mikill að Ferðafélag
Íslands ráði ekki eitt við að anna eftirspurn-
inni. „Mér finnst að opinberir aðilar þurfi að
koma miklu meira inn í þessa starfsemi með
Ferðafélagi Íslands. Það er ekki hægt að ætl-
ast til þess að áhugamannafélag standi undir
þessu öllu, miðað við kröfur nútímans í sam-
bandi við þjónustu á gististöðum,“ segir Leifur.
Hann segir að nauðsynlegt sé að laga göngu-
stígana, laga merkingar og leggur áherslu á að
það sé mikið gengið á þessu svæði. „Ferða-
félag Íslands hefur unnið þrekvirki á þessum
stöðum og það eru margar hendur á lofti og
margir sjálfboðaliðar sem leggja hönd á plóg,“
segir Leifur.
Leifi fyndist eðlilegt að kanna hvort opin-
berir aðilar ættu ekki að koma meira að þessari
þjónustu yfirleitt. „Við viljum sjá um þjónust-
una, við höfum mestu þekkinguna og reynsluna
á þessum svæðum og gerum okkur grein fyr-
ir hvar best er að fara. Það væri hægt að bæta
við gönguleiðum og breyta þessu en það kostar
fé og fyrirhöfn,“ segir Leifur. „Ég hef farið í tvær
ferðir í sumar með viku millibili og bæði skipt-
in var troðfullt, í Hrafntinnuskeri, við Álftavatn,
í Fanngili og suður í Botnum. Alls staðar hefur
verið troðfullt af fólki og það er ánægjulegt að
talsvert mikið er af Íslendingum þó að útlend-
ingar séu líka stór hluti af þeim sem koma. En
þetta er tvímælalaust vinsælasta gönguleið á Ís-
landi,“ segir Leifur að lokum.
astrun@dv.is
laugavegurinn „alls staðar
hefur verið troðfullt af fólki og
það er ánægjulegt að talsvert
mikið er af Íslendingum.“
lopapeysur gott er að
fara í hestaferðir í lopapeysum
og er stór hluti ferða-
mannanna í þannig fatnaði.
Tungur
knívur
„lít ég út eins og kýr?“ spyr fulla
konan sem situr beint á móti mér í
neðanjarðarlestinni.
„nei, nei,“ segi ég.
„en hvað þú ert góður,“ segir hún
þegar hún stendur upp, og blæs til
mín kossi.
Og það er rétt, ég er góður. Því í
raun og veru minnir hún örlítið á kú.
Hvað sem því líður, þá hefur
stokkhólmur eitt fram yfir Osló og
Kaupmannahöfn. Hún er talsvert
ódýrari.
Verðmiðar
sýna svipaða
tölu og í
noregi, en þar
sem sænska
krónan er um
20 prósent
lægri, kostar
allt minna sem
því nemur. en
bjórinn í búðunum hér er ekki
aðeins ódýrari, heldur daufari líka.
matvörubúðirnar selja eitthvað sem
kallað er því alþýðlega nafni folkeöl
og er í mesta lagi 3,5 prósent. fyrir
alla sterkari vöru þarf að fara í
systembolaget, en svíar eru, fyrir
utan Ísland og færeyjar, með
ströngustu áfengisstefnu norður-
landa.
Hvað um það, ég held upp á
fridhemsplan hostel. Það vill svo
heppilega til að t-banastoppið
heitir einnig fridhemsplan, þannig
að það er lítil hætta á misskilningi.
Ég er settur í herbergi með fjórum
mönnum. Ég skoða þá gaumgæfi-
lega. Það eru allar líkur á því að einn
þeirra sé hrotukarl. Þar að auki á
líklega einn eftir að koma afar seint
heim af djamminu og annar eftir að
vakna snemma til að fara í flug. Ég á
líklega ekki eftir að sofa mikið.
sturtan er biluð og tölvan kemst
ekki inn í öryggishólfið. Það er
aðeins eitt að gera.
Ég fer upp og bið um einkaherbergi.
Það kostar helmingi meira, en ég
verð bara að horfast í augu við að
ég er orðinn tíu árum eldri en þegar
ég var að interrail-a undir lok 20.
aldar. Ég er ekki hingað kominn til
þess að kynnast fólki. Vil frekar fá
minn nætursvefn. Þetta gerir
aldurinn manni.
Herbergið er lítið, en með eigin
sturtu og klósetti. einnig tölvu, sem
einnig virkar sem sjónvarp. miðað
við að kúra með hrotukarli er þetta
eins og að
gista á Paris
Hilton með
Paris Hilton í
rúminu. Hér er
þó engin
herbergis-
þjónusta, svo
ég fer út og
kaupi mér
hamborgara,
leggst síðan með hann upp í rúm
og kveiki á sjónvarpinu. Það er verið
að sýna Hrafninn flýgur á einhverri
stöðinni. Það er engin betri
staðfesting á því að maður sé
kominn til sverige. „Þessi hnífur á að
vera þungur,“ hugsa ég með mér
meðan ég bít í borgarann.
Valur gunnarsson
skrifar
Hestaferðir Í hestaferð-
um steinsholts er farið í
fimmtán manna hópum.
Þannig geta þeir fylgst með
öllum og myndast góður
andi á meðal ferðafélaganna.