Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Blaðsíða 39
föstudagur 8. ágúst 2008 39Sport Vandamál með messi Barcelona áfrýjaði úrskurði um að Lionel Messi, leikmaður liðsins, fengi að leika á Ólympíuleikunum og vann. Katalóníumenn vilja um- fram allt að hann verði ekki frá í byrjun tímabils og höfðu meinað honum þátttöku á leikunum. Þrátt fyr- ir það virðist hann staðráðinn í að leika með argent- ínu í Peking og er í byrjunarliðinu fyrir fyrsta leikinn þar sem argentína mætir fílabeinsströndinni. „Messi mun hefja mótið með okkur og enda það,“ segir sergio Batista þjálfari argentíska landsliðsins. Bretar ætla að setja fordæmi forráðamenn Ólympíuleikanna sem haldnir verða í London 2012 eru í Peking og eiga ekki orð yfir hversu allt umfang leikanna er mikið. stærð og gerð íþróttaleikvanganna, umgjörðin öll ásamt kostnaðinum við allt í Peking lætur aðra leika blikna í samanburði en Bretarnir eru hvergi smeykir. Þeir segja sína leika í London árið 2012 verða svo góða að aðrir geti fylgt því fordæmi. „Leikarnir í London verða það sem aðrar borgir eiga eftir að miða sig við í framtíðinni,“ segir nefndin. LESTU NÚNA SPORTIÐ Á DV.IS! Liu Xiang heitir á kínversku 劉 翔. Hann er í dag besti hindrunar- hlaupari í heimi og á titil að verja í 110 metra grindahlaupi frá því á Ólympíuleikunum í Aþenu fyr- ir fjórum árum. Það ráku margir upp undrundarsvip þegar þeir sáu Kínverjann koma fyrstan í mark, á undan Allan Johnson, en í dag bú- ast allir við sigri kappans. Allan Johnson átti einfaldlega íþróttina en hann tók við kórón- unni af Bretanum Colin Jackson. Xiang var mjög efnilegur og nældi sér í gullverðlaun hér og þar á minni mótum og þá aðallega á heimavelli. Hann varð þriðji á heimsmeist- aramótinu 2003 þar sem Johnson sigraði. Xiang náði svo silfrinu á heimsmeistaramótinu innanhúss sem var haldið snemma árs 2004, þar sem hann tapaði aftur fyrir All- an Johnson. En þá kom að því að Xiang skaust upp á stjörnuhimininn og það með tilþrifum. Það var nánast formsatriði að mati margra að All- an Johnson hlypi 100 metrana á Ólympíuleikunum 2004, því flest- ir töldu að hann yrði fyrstur. Ann- að kom á daginn þegar Xiang skaut honum ref fyrir rass og jafnaði um leið 13 ára gamalt heimsmet Colins Jackson á tímanum 12,91 sekúnda. Þetta var aðeins í sjötta skiptið sem hlaupið var verið undir 13 sekúnd- urum í 110 metra grindarhlaupi og Xiang jafnframt fyrst maðurinn sem ekki var af afrískum uppruna til að gera slíkt. Xiang þurfti að sætta sig við silfrið á heimsmeistaramótinu 2005 í Finnlandi þegar Frakkinn Ladji Doucouré kom á undan hon- um í mark en síðan þá hefur Xiang ekki tapað hlaupi á stórmóti. Hann bætti meira að segja heimsmet- ið 2006 þegar hann hljóp á 12,88 sekúndum. Þegar hann varði svo heimsmeistaratitilinn 2007 varð hann fyrsti kínverski íþróttamað- urinn til að vera ríkjandi heims- og Ólympíumeistari ásamt því að vera heimsmethafi. Heimsmetið hans stendur ekki lengur. Xiang hefur fengið að æfa meira en nokkur annar á nýjum og glæsi- legum velli Kínverja sem kallaður er Fuglahreiðrið. Það er hreinlega ætlast til þess að hann skili gull- verðlaunum í hús og miðað við ár- angurinn í ár er hann líklegur til að standa undir þeim væntingum. milljón dollara met Sundgarpurinn Michael Phelps er ansi líklegur til þess að vinna til verðlauna á móti svo vægt sé til orða tekið. Í Aþenu keppti hann í átta greinum, vann til verðlauna í þeim öllum og þar af sex gullverð- laun. Hann jafnaði þar met Rússans Alexander Dityatins sem vann til jafnmargra verðlauna. Það er samt annað met sem Phelps sækist eftir og til þess að ná því verður hann að sigra allar sínar greinar. Á Ólympíuleikunum 1972 vann samlandi Phelps, Mark Spitz, til sjö gullverðlauna þar af fjögur í ein- staklingsgreinum. Phelps jafnaði metið í einstaklingsgreinum á síð- ustu leikum en tókst ekki að jafna stóra metið eða slá það. Hann vann fjórar af fimm einstaklingsgreinum sínum, en tapaði einni. Ein þeirra var 200 metra skriðsundið þar sem hann endaði þriðji á eftir Ástralan- um Ian Thorpe og Hollendingnum fljúgandi, Pieter van den Hoogen- band. Það sund hefur verið kall- að sund aldarinnar svo mikil var spennan. Phelps mun aftur keppa í átta greinum á Ólympíuleikunum í Pek- ing og hefur sagst ætla sér að vinna til allavega sjö gullverðlauna. Helst dreymir hann um öll átta en hann getur ekki eingöngu treyst á sjálf- an sig því þrjú af sundunum eru boðsund. Hefði hann unnið til sjö gullverðlauna í Aþenu 2004 ætl- aði íþróttavöruframleiðandinn og styrktaraðli hans, Speedo, að greiða honum eina milljón dollara og það boð stendur enn. Hans bíður millj- ón takist honum ætlunarverk sitt. Sundkappinn michael Phelps og grindahlauparinn liu Xiang ætla sér báðir stóra hluti á Ólympíuleikunum sem hefjast í Peking um helgina. Phelps eygir sögulegt met á meðan mikil pressa er á Xiang að vinna gullið á heimavelli. TVEIR Á TOPPNUM tÓmas ÞÓr ÞÓrðarson blaðamaður skrifar: tomas@dv.is © GRAPHIC NEWSMyndir: Getty Images Fæddur: 13. júlí 1983 í Sjanghæ, Ferill: Gullverðlaun Liu Xiang í 110 metra grindahlaupi á ÓL 2004 voru fyrstu verðlaun kínversks karlmanns í frjálsum íþróttum á ÓL. Liu setti þar nýtt heimsmet, 12,88 sekúndur, og bætti þar með 13 ára gamalt heimsmet Colins Jackson. Kúbverjinn Dayron Robles hefur bætt metið síðan. Hann hljóp á 12,87 sekúndum í júní á þessu ári. Kína Ólympíugull. 110 m grindahlaup: 2004 Kínverskur grindahlaupari sem er núverandi heims- og ólympíumeistari. © GRAPHIC NEWSMyndir: Associated Press Fæddur: 30. júní 1985 Ferill: Síðan 2001 hefur Phelps sett 24 heimsmet og gæti bætt met Marks Spitz sem setti 33 heimsmet. í Baltimore, Maryland. Ólympíugull. 100 m ugsund: Silfur. 200 m ugsund: 200 m órsund: 400 m órsund: 4x200 m boðsund með frjálsri: 4x100 m órsund Brons. 200 m skriðsund: 4x100 m boðsund með frjálsri: 2004 2004 2004 2004 2004 2004 2004 2004 Bandarískur sundmaður sem á sex heimsmet og vann til átta verðlauna á Ólympíuleikunum í Aþenu 2004
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.