Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Blaðsíða 10
föstudagur 8. ágúst 200810 Fréttir DV Þegar rithöfundurinn George Or- well gaf út skáldsögu sína 1984 árið 1949 hafði hann séð ógnina sem stafaði af einræðisríkjum á borð við Þýskaland Hitlers og Sov- étríkin. Orwell sagði það þó sjálfur að hann hefði jafnmiklar áhyggj- ur af vestrænum ríkisstjórnum. Hann taldi þær vera jafntilbúnar til þess að beita kúgunaraðferð- um til þess að stjórna þegnum sínum. Sífellt hærri raddir heyr- ast um þessar mundir um að frelsi einstaklingsins fari dvínandi. Ör- yggismyndavélar eru settar upp á hverju götuhorni, leyniþjónust- ur auka umsvif sín, lögreglan fær meira vald og farið er að setja ör- flögur með staðsetningartækjum í fólk. Árið er 2008 og Vesturlönd eru í stríði til að halda friði og eft- irlit með einstaklingnum hefur aukist í nafni frelsis. „Stríð er frið- ur, frelsi er þrældómur, fáfræði er blessun,“ skrifaði Orwell í bókinni 1984. Örflagan Bandaríska fyrirtækið Verich- ip er leiðandi í þróun og sölu á örflögum fyrir manneskjur. Ör- flögurnar sem eru aðeins 11 milli- metra langar senda frá sér og taka við útvarpsbylgjum en þær eru agnarsmáar og geta geymt per- sónuupplýsingar ásamt því að vera staðsetningartæki. Á heima- síðu Verichip er örflagan kynnt sem öryggistæki sem hægt sé að koma fyrir í börnum og gamal- mennum til þess að fylgjast með ferðum þeirra. „Óvæntir hlut- ir gerast hvern einasta dag, gam- all sjúklingur villist af elliheimili sínu, barni er rænt af barnaheim- ili og slasað fólk getur ekki gefið nauðsynlegar persónupplýsingar á sjúkrahúsi,“ segir á heimasíðu fyrirtækisins. Þar kemur fram að í stað þess að notast við gamlar leiðir eins og fingraför, raddgrein- ingu eða passamyndir sé loksins mögulegt að koma örflögu með öllum persónuuplýsingum fyrir í líkama fólks. Fjölskyldan með örflögur Eftir 11. september samþykkti Bandaríkjaþing hryðjuverkalög sem margir sögðu þjarma mjög að almennum réttindum borgara. Fólki getur verið haldið í fangelsi án dóms og laga, tölvupóstar eru skoðaðir og símtöl hleruð. Al- menningur í Bandaríkjunum vildi meira öryggi vegna hryðjuverka- ógnar og stjórnmálamenn og einkafyrirtæki svöruðu kallinu. Á Fox-sjónvarpsstöðinni mælti við- mælandinn Scott Silver eindreg- ið með því að foreldrar kæmu ör- flögum fyrir í börnum sínum eða í hverjum þeim sem fólk þyrfti að fylgjast vel með. Á ABC-sjónvarps- stöðinni var viðtal við hjón sem höfðu látið koma örflögu fyrir í fjölskyldumeðlimum. Þáttastjórn- andinn sagði hjónin hugrakkt fólk sem þyrði að taka stórstíg skref til framtíðar. „Eftir 11. septem- ber varð ég mjög hrædd um ör- yggi fjölskyldu minnar,“ sagði Les- lie Jacobs í viðtalinu. Í kjölfarið fylgdu fréttir þess efnis að banda- rískir stjórnmálamenn vildu ör- flögur til að tryggja öryggi sitt og sinnar fjölskyldu. Í 60 mínútum sagðist fréttaskýrandinn Andy Rooney vilja fá örflögu setta í sig; „Það væri í lagi mín vegna ef ein- hverju væri komið fyrir í líkama mínum svo að mögulegt væri að sjá hver ég væri,“ sagði Andy. Ný skilríki 2009 Frá og með 31. desember 2009 verða allir Bandaríkjamenn að vera komnir með ný skilríki og ökuskírteini sem innihalda ör- flögu. Stjórnvöld segja þetta vera lið í auknum öryggisaðgerðum á landamærunum við Mexíkó og Kanada. Þingmaður repúblik- ana, Jim Guest frá Missouri, hef- ur gagnrýnt nýju skilríkin og bent á að þróunin gæti orðið hröð og ógnvekjandi. Hann hefur áhyggj- ur af því að með tímanum gæti lögunum verið breytt þannig að fólk yrði einnig að vera með stað- setningartæki í skilríkjum sínum. „Segjum að þú byrjir með svona ný skilríki, en svo er sett staðsetn- ingartæki í flöguna, þannig að þú þarft að ferðast með hana á þér hvert sem þú ferð, svo gleymirðu skírteininu, og þá kemur að því að örflögunum verði komið fyrir í hendi þinni,“ segir Jim. Myndatökuvélar Richard Thomas sem situr í upplýsinganefnd bresku ríkis- stjórnarinnar hefur varað við því að Bretland eigi á hættu að breyt- ast í þjóðfélag þar sem augu stóra bróður fylgjast með öllu. Barry Hughill, talsmaður mannrétt- indarsamtakanna Liberty, hefur lýst Bretlandi sem „öryggismynda- vélahöfuðborg heimsins“. Rann- sóknir sýna að tuttugu prósent allra eftirlitsmyndavéla heimsins eru í Bretlandi, en þar voru 4,2 milljónir myndavéla virkar árið 2002. Það er ein á hverja fjórtán íbúa. Ekki er ljóst hversu margar öryggismyndavélar eru í landinu nú en þeim hefur fjölgað mikið seinustu ár. Líklegt er talið að það séu að minnsta kosti 500 þúsund myndavélar í London. Rannsókn- ir sýna að fjöldi myndavéla hefur lítil sem engin áhrif á glæpi vegna þess hve fáir starfsmenn fylgjast með myndböndunum. Nú er í þróun tölvukerfi sem getur haldið betur um og fylgst betur með öllu því sem fer fram. Hryðjuverkin í Bretlandi 7. júlí 2005 urðu til þess að lögreglan fékk aukið vald. Lögum í Bretlandi þess efnis að lögregla megi leita á heimilum hefur til að mynda fjölgað gríðarlega seinustu miss- eri. Í dag eru til 1.043 heimildir fyrir því að lögreglan megi gera húsleit, ein þeirra er sú að athuga hvort blómum húsráðandans fylgi löglegir pappírar. Lögregluríki 265 þúsund öryggismyndavél- um hefur verið komið fyrir í Pek- ing, höfuðborg Kína, fyrir Ólymp- íuleikana. Ríkisstjórnin þar hefur nýtt sér stríð gegn hryðjuverkum til þess að fangelsa mótmælend- ur í nafni þjóðaröryggis. Miðar á opnunar- og lokahátíðir Ólymp- íuleikanna innihalda örflögu sem gefur yfirvöldum möguleika á því að skoða nafn eigandans, mynd og vegabréfsnúmer. Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Bretlandi geta haldið fólki í fangelsi án dóms og laga. Lögreglan Í Bretlandi notast við rafmagnsbyssur sem mann- réttindasamtökin Amnesty Inter- national hafa skilgreint sem pynt- ingartæki. Lögreglan á Íslandi veltir því nú fyrir sér hvort hún þurfi slíkar rafmagnsbyssur við löggæslustarfið hér á landi. Þetta eru nokkur dæmi. Hryðjuverk og stríð skapa ótta á meðal almenn- ings, og stjórnvöld svara með sí- JóN BJarki MagNússoN blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is Örflögum með staðsetningarbúnaði hefur verið komið fyrir í börnum og gamalmennum svo hægt sé að fylgjast með ferðum þeirra. Stjórnvöld hafa sett upp sífellt fleiri eftirlitsmyndavélar og leyniþjónustur fylgjast með sífellt fleira fólki. Þrengt er að persónuvernd almennings. Öryggismyndavél Þessi mynda- vél hefur góða „yfirsýn“ á fólkið sem gengur fyrir neðan. aukið eftirlit Í Bandaríkjunum hafa ný skilríki og ökuskírteini verið samþykkt en þau innihalda örflögu með persónulegum upplýsingum. stóri bróðir Í skáldsögunni 1984 fylgist stóri bróðir með hverri einustu hreyfingu og hugsun. CTV-öryggismyndavélar Í Betlandi voru komnar 4,2 milljónir öryggismyndavéla árið 2002, þeim hefur fjölgað mikið síðan þá. STÓRI BRÓÐIR STÆKKAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.