Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Blaðsíða 52
föstudagur 8. ágúst 200852 Helgarblað DV
Tónlist
UpptökUr seldar
áður óheyrð upptaka með Bítlunum seldist á mið-
vikudaginn. Kaupandinn var óþekktur og seldist
upptakan á sem svarar til rúmlega átján hundruð
þúsunda króna á Bretlandi. upptakan er um 30
mínútur og haldið er að hún sé frá 1964. á upptök-
unni heyrist þegar Bítlarnir eru að grínast og reyna
nokkrum sinnum að taka upp nokkur lög með mis-
jöfnum árangri.
umsjón: Krista Hall krista@dv.is
Fer hjá sér
Aðalsöngvari Kings Of
Leon, Caleb Followill, kvíðir
því að syngja nýtt lag hljóm-
sveitarinnar sem kallast Sex
on Fire. Hann fer hjá sér við
að syngja textann í laginu þar
sem línan „You, your sex is on
fire“ er endurtekin margoft.
Söngvaranum fannst lagið fá-
ránlegt og var ekki sáttur við að
þurfa að syngja um brennandi
kynlíf í eitt og hálft ár. „Ég veit
að nafnið á laginu er grípandi,
við erum að verða gömul og
við þurfum að láta fólk halda
að við höfum ennþá kynhvöt,“
segir söngvarinn.
„Húsbandið mitt spilar á Prik-
inu alla þriðjudaga og laugardaga
og við höfum gert það í allt sum-
ar. Það kostar ekkert inn,“ segir
Ari Bragi Kárason trompetleik-
ari. Mjög misjafnt er hverjir spila
í hljómsveitinni í hvert skipti og
eru það þá helst vinir Ara sem
komast til að spila. Það eru þó
nokkrir sem spila alltaf og eru það
félagar sem útskrifuðust nýverið
með Ara úr FÍH. Hljómsveitarfé-
lagar Ara heita Magnús Tryggva-
son Elíassen sem spilar á tromm-
ur, Kristján Tryggvi Marteinsson
spilar á píanó og Pétur Sigurðsson
spilar á bassa.
Höfum allir gaman af
„Við erum langt leiddir í heimi
spunamúsíkur,“ segir Ari kankvís
en bandið spilar aðallega fönk
frá áttunda áratugnum. „Þetta
er það sem við höfum allir gam-
an af og það er tiltölulega auð-
velt að spila þessa tónlist. Við
erum mjög naskir á að fara með
hana á einhvern nýjan stað í hvert
skipti, hvert lag er aldrei spilað
alveg eins tvisvar. Við reynum að
hafa þetta eins opið og við get-
um hverju sinni, lögin eru oft al-
veg 20 mínútna löng og þá ein-
mitt kemur þessi góða stemning
hjá fólki. Sólóin verða endalaus
og það verður endalaust gaman!“
Síðustu tvö skipti sem Húsbandið
spilaði bættist Guðmundur Pét-
ursson gítarleikari í hópinn. Að
auki hafa aðrir þekktir tónlistar-
menn spilað og má þá nefna Ein-
ar Val Scheving trommara, Jó-
hann Ásmundsson, bassaleikara
í Mezzoforte, og Óskar Guðjóns-
son saxófónleikara.
komust færri að en vildu
„Við höfum verið að spila í allt
sumar á Prikinu en við byrjuðum í
júní. Við strákarnir hittumst svona
einu sinni tvisvar áður en við spil-
uðum fyrst og ákváðum hvern-
ig við ætluðum að gera þetta og
svo bara kýldum við á það,“ seg-
ir Ari. Þeir hafa spilað frá klukkan
tíu, hálf ellefu til eitt og alltaf fyrir
troðfullu húsi. „Það er nú kannski
ekki beint erfitt að fylla Prikið! Á
laugardaginn seinasta var mjög
gaman og komust færri inn en
vildu. Fólk var gjörsamlega ofan
í bandinu þannig að það var bara
hálfóþægilegt,“ segir Ari. Síðasta
skipti Ara í bili með Húsbandinu
var á þriðjudaginn því hann er að
flytja til New York í tónlistarhá-
skóla. „Ég setti Húsbandið í hend-
urnar á hinum strákunum og þeir
ætla bara að sjá um þetta og halda
þessu gangandi út ágúst,“ segir Ari
að lokum. astrun@dv.is
„Við kláruðum að taka upp fyrstu
plötuna okkar núna á laugardag-
inn,“ segir Unnsteinn Manúel, að-
alforsprakki sveitarinnar Retro
Stefsson. „Það er ekki ennþá komið
nafn á plötuna en lögin verða svona
tíu til fimmtán. Það gekk mjög vel
að taka upp, við byrjuðum bara á
mánudaginn og þetta var ótrúlega
fljótgert,“ segir Unnsteinn. „Við æfð-
um lögin á fullu áður en við fórum
í stúdíó og svo tókum við þau bara
læv upp og við erum mjög sátt með
þetta,“ segir hann. „Svo byrjum við
bara að hljóðblanda núna á mánu-
daginn næsta, Benni Hemm Hemm
tók upp lögin með okkur og hljóð-
blandar líka,“ segir Unnsteinn.
Hann segir að lögin á plötunni séu
frá því að vera tveggja mánaða göm-
ul upp í fjögurra ára.
„Næst spilum við líklegast 16.
ágúst á Skólavörðustíg því það er
verið að opna götuna aftur eftir við-
gerðir. Við spilum líka á menning-
arnótt og á afmælishátíð Norræna
hússins,“ segir Unnsteinn. Hljóm-
sveitarmeðlimir eru sjö og allir á
menntaskólaaldri. „Við erum öll í
menntaskóla, litli bróðir minn Logi
er að byrja í menntaskóla núna í
vetur en hann spilar á bassa,“ segir
hann. Aðspurður hvort hljómsveit-
armeðlimir hafi bara einbeitt sér
að spileríi í sumar segir Unnsteinn
að svo hafi ekki verið þar sem unn-
ið var í félagsmiðstöð Frostaskjóls.
„Það var mjög gaman, við tókum
bara þessa eina viku frí úr vinnunni
til að gera plötuna,“ segir Unnsteinn
að lokum.
astrun@dv.is
Retro Stefsson hefur lokið við upptökur á sinni fyrstu plötu:
Fljót að taka upp plötu
Tónlist
á vefinn
IMX/ÚTÓN býður íslensku
tónlistarfólki og þeim stem
starfa við að koma tónlist á
framfæri á námskeið um dreif-
ingu, kynningu og markaðs-
setningu á tónlist á vefnum.
Námskeiðið fer fram 2. sept-
ember klukkan 17 í Hressing-
arskálanum. Kennari nám-
skeiðsins er Denzyl Feigelson.
Á námskeiðið kostar 5.000
krónur fyrir félaga í FÍH, FTT,
FT og FÍT en 10.000 krónur
fyrir aðra. Hægt er að skrá sig
á netfangið greta@utflutnings-
rad.is eða hringja í síma 511
4000.
Wolfmother
hættir
Ástralska hljómsveitin
Wolfmother er hætt. Þrír með-
limir hljómsveitarinnar, And-
rew Stockdale, Myles Heskett
og Chris Ross, hafa átt í erjum í
langan tíma og það er ástæðan
sem gefin er upp fyrir sam-
starfsslitunum. Bassaleikarinn
og hljómborðsleikarinn Chris
Ross og trommuleikarinn Myl-
es Heskett ætla að semja tón-
list saman en Andrew Stock-
dale, aðalsöngvarinn, ætlar að
halda áfram í Wolfmother og
finna nýja liðsmenn í hljóm-
sveitina til að hefja vinnu við
nýja plötu í lok ársins.
ari Bragi kárason hefur spilað með Húsbandinu í allt sumar fyrir fullu húsi á Prik-
inu. Þekktir tónlistarmenn hafa slegist í hópinn enda er mismunandi hverjir spila í
hvert skipti með bandinu.
Endalaus sóló
ari Bragi mundar trompetið
Húsbandið spilar fönk ættað frá
áttunda áratugnum.