Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Síða 8
„Ef ég á frí á laugardögum reyni ég
að fara þangað. Þetta er mest kósí
sem þú kemst í í Reykjavík,“ segir
Páll Óskar Hjálmtýsson poppstjarna
og meðlimur Motor Sport Club á Ís-
landi. Motor Sport Club, MSC, hefur
starfrækt leðurkenndan einkaklúbb
fyrir homma frá árinu 1985.
Síðastliðin tólf ár hefur klúbb-
urinn starfað í húsnæði við Banka-
stræti 11. Nú er hins vegar komið
að þáttaskilum því eftir september-
mánuð kemur starfsemin til með að
missa húsnæði sitt. Samkvæmt Vet-
urliða Guðnasyni, eins af stofnend-
um og forsvarsmönnum klúbbsins,
hefur honum ekki verið fundinn nýr
samastaður.
Skýrar klæðareglur
Klúbburinn er ætlaður karlmönn-
um sem eru fyrir leður, gúmmí, ein-
kennis- og gallaföt og leggja mikið
upp úr góðum félagsskap, svo vitn-
að sé í heimasíðu félagsskaparins. Á
laugardagskvöldum eru haldin svo-
kölluð klúbbakvöld í húsnæðinu við
Bankastræti. Þá er kveikt á kerti úti í
glugga til marks um að starsfemi sé í
gangi fyrir innan.
Til að komast inn er nauðsynlegt
að hringja dyrabjöllu. Dyravörður
tekur á móti aðkomumanninum, sem
þá þarf að framvísa félagsskírteini
sínu. Gestir geta fengið gestaskírteini
sem gildir út kvöldið. Klúbbmeðlim-
ir, jafnt sem gestir, verða þó að fylgja
klæðareglum klúbbsins sem tíund-
aðar eru á heimasíðu hans, msc.is.
Þar er lýst þrettán manngerðum,
allt frá lögreglu- og hermönnum til
vélhjólagæja og kúreka. Einnig er
skýrt tekið fram að: „Nekt er alltaf í
lagi.“
Páll Óskar segir klæðareglurnar
þó ekki heilagar: „Það er allt í lagi að
mæta í gallabuxum og bol. Eina skil-
yrðið er að mæta ekki þarna í jakka-
fötum. Þetta er ekki bisnessmanna
kokkteilklúbbur.“
Hræðslan minnkað
Veturliði Guðnason þýðandi er
einn af stofnendum MSC á Íslandi.
Hann segir aðstæður þegar klúbb-
urinn var stofnaður fyrir tuttugu og
þremur árum allt aðrar en nú. „Þetta
er svolítið seventís dæmi,“ segir Vet-
urliði. „Það var þá sem þessir klúbb-
ar voru stofnaðir. Þetta var mikilvægt
því fólk vildi vera í friði á sínum stöð-
um. Þá var einkageirinn ekki kom-
inn í þann gír að þjóna þessum hluta
samfélagsins.“
Þó aðstæður fyrir leðurhneigða
hafi skánað mikið segir Veturliði
skilning sem slíkan ekki hafa auk-
ist, heldur hræðsluna einfaldlega
minnkað. „Fólk heldur að það sé
voðalega frjálslynt og skilningsríkt
en það er það ekki, það er bara mis-
munandi hrætt,“ segir Veturliði.
MSC er möst
Klúbburinn hafi engu að síður
borið barr sitt vel öll þessi ár og sé nú
orðinn þekktur í samfélagi samkyn-
hneigðra úti í heimi. „Allir sem eru
gay koma til okkar, hvort sem þeir
eru inni í leðri eða ekki. Bláa lónið og
MSC, það eru bara möst.“
Undir lok september missir MSC
hins vegar húsnæði sitt og leggst
starfsemin því af í núverandi mynd.
Veturliði segir klúbbinn ekki hafa
fundið nýtt klúbbhús. Sömuleið-
is taki MSC ekki þátt í gleðigöngu
Hinsegin daga næsta laugardag líkt
og undanfarin ár. Ýmislegt er hins
vegar á döfinni þangað til MSC missi
húsið, meðal annars heimsókn frá
bresku samtökunum Komdu til
pabba (e. Come to Daddy). Samtök-
in eru skipuð íturvöxnum karlmönn-
um, svokölluðum böngsum.
Eins og heimili
Myndatökur innan klúbbhússins
eru stranglega bannaðar og trúnaður
umlykur alla starfsemi hans. Því fékk
DV Pál Óskar til að lýsa innviðum
staðarins í stað þess að mynda hann.
Páll ber klúbbnum góða söguna.
„Eins og þetta blasir við mér er
ekki pláss fyrir fleiri en þrjátíu til
fjörutíu manns,“ segir Páll Óskar um
smæð staðarins. „Þannig að tilfinn-
ingin er næstum því eins og að labba
inn á heimili einhvers.“
Búr á staðnum
Páll segir útlit staðarins
fylgja ákveðnu MSC-normi
sem þekkt sé í homma-
heimum. „Allir þessir
klúbbar líta svipað
út. Veggirnir verða
að vera dökkir,
jafnvel svartmál-
aðir, og gólfin líka.
Allt er dökkt í hólf
og gólf. Síðan eru
felulituð net í loft-
inu. Þetta gefur
tilfinningu eins
og þú sért kom-
inn inn í hálfgerð-
an frumskóg. Þetta
er það sem einkennir
klúbbinn, auk kerta-
ljósa og stemningar.“
Þar sitji gestirnir, drekki bjór af litl-
um bar og skiptist á slúðri.
Spurður út í búr sem sagt er að
hangi á staðnum hlær Páll og segist
aldrei hafa séð neinn inni í búrinu.
„En ef einhver vill láta loka sig inni
í búri og fá drykkina sína afgreidda
þangað inn, þá er honum guðvel-
komið að gera
það.“
föstudagur 8. ágúst 20088 Fréttir DV
Leðurhommaklúbburinn Motor Sport Club hefur verið starfræktur á Íslandi frá árinu 1985. Þar eru haldin sér-
stök klúbbakvöld alla laugardaga með skýrum klæðareglum. Páll Óskar Hjálmtýsson poppstjarna er einn af
meðlimum klúbbsins og segist alltaf reyna að kíkja þegar hann á frí á laugardögum. Klúbburinn missir hús-
næði sitt í september. Ef ekkert verður að gert leggjast klúbbakvöldin af í óbreyttri mynd.
Leðrið Lagt á hiLLuna
HafStEinn gunnar HaukSSon
blaðamaður skrifar: hafsteinng@dv.is
„Fólk heldur að það sé voðalega frjálslynt
og skilningsríkt en það er það ekki, það er
bara mismunandi hrætt.“
Leðurfáninn Einkennisfáni leður-
og latexunnenda um heim allan.
Leðra sig upp Hommar um
allan heim eru hrifnir af leðri.
Þessir koma frá Kaliforníu.
Mynd gEtty IMagEs
Páll Óskar reynir að mæta
á leðureinkaklúbbinn Motor
sport Club þegar hann á frí.
Motor Sport Club Inngangur
MsC er í gegnum hliðið á myndinni.
fyrst þarf þó að hringja bjöllunni.
dv-Mynd róbErt rEynIsson
Motor Sport Club vagninn
MsC hafa verið með vagn í
gay Pride-göngunni undan-
farin ár. nú verður breyting á.