Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Page 18
föstudagur 8. ágúst 200818 Helgarblað DV
Einn þeirra pallbíla sem keyrir niður laugaveginn í Gleðigöngunni 2008 ber þemaheitið Stolt fjölskyldunn-
ar og er tileinkaður fjölskyldum samkynhneigðra sem ekki hafa verið mjög sýnilegar til þessa. „Það eru
mjög mörg réttindi sem samkynhneigðir hafa öðlast að undanförnu sem gera fólki kleift að gifta sig og
eignast börn,“ segir Guðrún Óskarsdóttir, annar skipuleggjanda atriðisins.
ÁSDÍS BJÖRG JÓHANNESDÓTTIR
blaðamaður skrifar: asdis@dv.is
„Við ákváðum að hafa þetta al-
mennilegt í ár og gera okkur sýni-
legri en áður,“ segir Guðrún Óskars-
dóttir, bókari hjá Birtingi og annar
skipuleggjanda að fjölskylduatriði
Gleðigöngunnar. „ Samkynhneigðir
foreldrar hafa verið í göngunni áður
en það hefur ekki verið merkt sér-
staklega og fólk hefur ekkert gert sér
grein fyrir því að það er þarna líka.“
Tákn fjölskyldunnar
Um 70 manns taka þátt í atriðinu
sem ber slagorðið Stolt fjölskyld-
unnar og eru þar fyrst og fremst
samkynhneigðir foreldar sem
standa þar að baki. Einnig konur
með börn, óléttar konur og ömm-
ur með barnabörnin. „Við höfum
líka fengið styrk frá Kjörís. Það verð-
ur bíll frá þeim með okkur og græj-
ur frá þeim sem við munum nota
til að spila barnalög. Svo eru bolir
með mynd af logoinu. Á bolnum er
mynd af tveimur konum með barn
og tveimur mönnum með barn,“
segir Guðrún og hlakkar mikið til.
Ný réttindi samkynhneigðra
„Það hefur verið ákveðin við-
kvæmni í gegnum tíðina og enginn
viljað ganga undir fána né vera sýni-
leg. Nú í ár á hins vegar er breyting
á,“ segir Guðrún. Að undanförnu
hafa samkynhneigðir fengið mun
meiri réttindi en áður. Fólk getur
gift sig, staðfest samvist auk þess
sem hægt er að fara í tæknifrjóvgan-
ir sem er mikill hvati þess að skapa
fjölskyldulegt andrúmsloft. „Það er
allur gangur á því hvernig fjölskyld-
urnar myndast. Sumar lesbíur kjósa
homma fyrir feður en aðrar fara
hina leiðina. Aðalatriðið er að við
erum samkynhneigðir foreldrar.“
Feimni ýtt í burtu
Guðrún stendur á bak við þetta
framtak ásamt annarri konu. Hún
segir að slagorðið Stolt fjölskyld-
unnar sé til að ýta frá þeirri feimni
sem ríkir í kringum samkynhneigða
fjölskyldu. Stolt fjölskyldunnar á að
sýna það að allir geti komið fram
án þess að skammast sín eða haldi
að það mæti fordómum. „Ég var
ákveðin að hafa þetta skemmtilegt,“
segir Guðrún að lokum. Gleðigang-
an fer fram laugardaginn 9. ágúst
og verður lagt af stað frá Hlemmi
klukkan 14. Gengið verður niður
eftir Laugvegi og að Arnarhóli þar
sem skemmtiatriði taka við fram
eftir degi. Undanfarin ár hafa tug-
þúsundir tekið þátt í göngunni.
„Það er allur gangur á því hvernig fjölskyldurn-
ar myndast. Sumar lesbíur kjósa homma fyrir
feður en aðrar fara hina leiðina. Aðalatriðið er
að við erum samkynhneigðir foreldrar.“
Stolt fjölSkyldunnar
Föstudagur 8. ágúst
Hádegi:
Hinn gullfallegi Martin Knudsen frá Kaupmannahöfn
syngur klassísk dægurlög frá miðri síðustu öld í
hádeginu á Jómfrúnni.
kl. 21:00
Carole Pope - tónleikar á Organ
Á miðnætti:
stelpnaball á Organ
strákaball á tunglinu
Laugardagur 9. ágúst
UPPHITUN:
Klúbbur Hinsegin daga - opinn frá kl. 11:00
gleðigöngunni stillt upp á Hlemmi 12:30
GLEÐIGANGAN:
Lagt af stað frá Hlemmi klukkan 14:00. allir safnast saman á rauðarárstíg, rétt
hjá Hlemmi, í síðasta lagi klukkan 12:30. Lagt af stað stundvíslega klukkan
tvö í voldugri gleðigöngu eftir Laugavegi og niður að arnarhóli.
HINSEGIN HÁTÍÐ VIÐ ARNARHÓL:
Klukkan 15:15
úrval innlendra og erlendra skemmtikrafta
Kl: 22:00
stereo total - swivel - tónleikar á Organ
Miðnætti - hinsegin dansleikir:
dansleikir verða á Nasa, Organ og Q-Bar
Sunnudagur 10. ágúst
Klúbbur Hinsegin daga á Q-Bar opinn frá kl. 11:00
NÝJUNG:
Brjálað diskótek og brunch á Q-Bar frá hádegi sunnudags til
lokunar kl. 01:00 aðfaranótt mánudags
Kl:20:30
regnbogamessa í dómkirkjunni
sr. anna sigríður Pálsdóttir dómkirkjuprestur þjónar fyrir altari -
nemendur Jóns Þorsteinssonar óperusöngvara syngja.
Dagskrá gay PriDe 2008