Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Page 26
Helgarblað DVföstudagur 8. ágúst 200826
HIN HLIÐIN
Þurfti einu sinni
að leika fatafellu
Nafn?
„Georg Erlingsson Merritt.“
Atvinna?
„Vinn í grunnskóla við tölvu-
umsjón og sem stuðningsfull-
trúi, einnig Dj og listamaður.“
Hjúskaparstaða?
„Single at the moment.“
Fjöldi barna?
„Ekkert.“
Áttu gæludýr?
„Nei.“
Hvaða tónleika fórstu á síðast?
„Fór á Hróarskeldu í rigning-
unni miklu í fyrra. Svaka stuð.
Muse var geggjuð.“
Hefur þú komist í kast við
lögin?
„Já, reyndar. Það er bara fyndin
saga, segi kannski einhvern
tímann frá því.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín og
af hverju?
„Svarta húfan mín, ég elska
hana. Æi, hún er svo hlý og
stór.“
Hefur þú farið í megrun?
„Já og stunda hana 24 tíma sól-
arhringsins.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögð-
um mótmælum?
„Nei, en ef launamál hjá fólki
í störfum í grunnskólum fara
ekki að batna gæti alveg farið
svo að ég skipuleggi mótmæli
sjálfur.“
Til hvers hlakkar þú núna?
„Að gera atriðið mitt í Gay
pride-göngunni og fara á
Madonnu-tónleika í París í
september. Og síðan snúa mér
meira að tónlistinni og mála.“
Trúir þú á framhaldslíf?
„Já, ég held að við fáum aðgang
að einhverju miklu stærra en
því lífi sem við þekkjum hér.“
Hvaða lag skammastu þín mest
fyrir að hafa haldið upp á?
„Ó, Guð, þau eru svo mörg...
Mambo number 5 til að nefna
eitt.“
Afrek vikunnar?
„Að halda Draggkeppni Íslands
sem var á miðvikudaginn.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Já, á trommur, gítar og smá á
píanó.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei, ekki beint, en var einu
sinni að vinna sem þjónn og
spákona greip í höndina á mér
og sagði mér ýmislegt, til dæmis að
ég hefði verið sígauni í fyrra lífi.“
Styður þú ríkisstjórnina?
„Ég get ekki beint sagt já eða nei
við því, það er mjög margt hjá
ríkisstjórninni sem þarf að laga.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Að læra að elska sjálfan sig svo
maður geti elskað aðra. Vera
samkvæmur sjálfum sér og deila
með öðrum.“
Hvaða fræga einstakling myndir
þú helst vilja hitta og af hverju?
„Auðvitað Madonnu, mig langar
að spyrja hana að svolitlu, ég er
nefnilega með lag sem ég vil að
hún taki upp og syngi áður en
hún verður sextug. Ég er svaka-
legur Madonnu-aðdáandi og er
einmitt að fara núna í septemb-
er að sjá hana í París og er það
fimmta skiptið sem ég fer að sjá
hana. I guess I love her...“
Hverjum líkist þú mest?
„Ég veit það ekki... kannski
Guði?“
Ertu með tattú?
„Nei.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já, ég er alltaf að semja ljóð,
texta og lög.“
Eru fatafellur að þínu mati
listamenn?
„Já, að vissu leyti. Ég þurfti einu
sinni að leika fatafellu fyrir tón-
listarmyndband og þurfti að
sveifla mér á súlunni og það er
sko ekkert smá erfitt að gera allar
þessar kúnstir sem þær gera. Ég
dáist að þeim að geta þetta.“
Ertu með einhverja leynda
hæfileika?
„Já, örugglega, er mjög fjölhæfur.
Fyrir mér eru þeir ekki leyndir.“
Af hverju stafar mannkyninu
mest hætta?
„Bandaríkjunum.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn
þinn?
„London og París, mér líður allt-
af svo vel þar. Ég fíla skemmti-
staðina Q-bar og Kofa Tómasar
frænda.“
Hvað er fram undan?
„Nú, auðvitað Gay Pride og ætla
ég að vera „Eve in the future“ og
svo eru það tónleikarnir með
Madonnu. En síðan er ég að fara
að vinna í fyrstu sólóplötunni
minni sem ég er aðeins byrjað-
ur á og að halda áfram að mála
fleiri málverk til að geta haldið
mína fyrstu sýningu.“
GeorG erlinGsson tekur þátt í Gay Pride af miklum krafti. Hann sá um
draGGkePPnina oG ætlar að sjálfsöGðu að taka þátt í GönGunni. fram
undan er fyrsta sólóPlatan oG tónleikar með madonnu í París.
dv mynd Heiða
Ertu að flytja?
Láttu fagmenn
sjá um verkið fyrir þig
Örugg og trygg
þjónusta
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Að eiga og elska heimsins versta hund
-Mjög fyndin ástarjátning
... Í bókinni Marley og ég
er viðfangsefninu lýst af
hlýju ... gamansemi og
ástúð.
New York Times
-Fyndin og hjartnæm saga um
fimmtíu kílóa Labrador sem
var jafn tryggur og elskulegur
og hann var óþekkur.
People
-Hugsanlega hugljúfasta bók
ársins. Sannarlega
hundavinabók ársins.
USA Today
MARLEY OG ÉG er bók sem allir
hundaáhugamenn verða að lesa
- og hinir líka.
Marley og ég
John Grogan
Að eiga og elska
heimsins versta hund
Á metsölulista New York
Times Frum-
útgáfa í
kilju
HÓLAR