Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Side 42
föstudagur 8. ágúst 200842 Helgarblað DV
umsjón: Berglind Bjarnadóttir berglind@dv.is
Heima-
tilbúnar
sósur
Kaupir þú tilbúnar sósur í búðum
þegar þú ert að fara að grilla?
Hvernig væri að búa þær til
sjálfur?
BBQ-sósa
n 75 til 100 gr smjör
n 1 bolli tómatsósa
n 1 bolli aprikósumarmelaði
n 1 og hálfur bolli púðursykur
n 2 matskeiðar dijon-sinnep
n 1 bolli hickory bbq
n hálfur bolli jarðarberjasulta
(helst með jarðarberjabitum í)
n 1 msk. sojasósa
n 1 msk. hunang
n 1 lítil dós tómat-purré
n 1 tsk. köd og grill krydd
allt sett saman í pott og látið sjóða
dágóða stund. frábært á allt
grillkjöt, bæði á útigrilli og í ofni.
Penslið sósunni á þegar um það
bil helmingur steikingartímans er
búinn.
HvítlauKssósa
n 1 dós sýrður rjómi
n 1 dl. ab-mjólk
n 2 msk. sítrónusafi
n 2. msk. steinsleja, smátt söxuð
n 4 hvítlauksgeirar, pressaðir
n 1 msk. hunang
öllu blandað vel saman. .
grillsósa
n 1 dós sýrður rjómi
n ½ dós majones eða aðeins meira
n 2 msk. mango chutney
n 1 msk. karrí
n 1 tsk. pipar
n 1 laukur
n 1 púrrulaukur
n 5 plómutómatar
tómatar og laukur er saxað smátt
niður. allt blandað saman og kælt.
& ínMatu
Lúxus- pönnu-
kökur
Gestgjafinn býður upp á lúxus-
pönnukökur þessa helgina. Það er
fátt betra en að geta boðið gestum
góðar pönnukökur með heitu
súkkulaði. Yndislegur eftirréttur
sem kemur munnvatninu af stað.
Veiðikofakjötsúpa AB
„Fyrir allmörgum árum var ég
fenginn til að veiða fyrir Sporða-
kastaþátt Eggerts Skúlasonar. Í þætt-
inum var meðal annars sýnt þegar
ég var að tilreiða all ógurlega kjöt-
súpu. Þetta atriði hefur elt mig fram
á þennan dag, þar sem ég er af og til
beðinn um uppskriftina,“ segir Arth-
ur Bogason, formaður Landssam-
bands smábátaeigenda og jafnframt
matgæðingur vikunnar. „Hvað kjöt-
súpu þessa varðar eldaði ég hana
eitt sinn í veiðihúsinu við Sandá í
Þistilfirði þegar Eggert Skúlason var
þar með mér við veiðar. Hann át svo
hraustlega af henni um kvöldið að
hann var rúmfastur daginn eftir.“
„Ég ætla að skora á Friðrik Þ. Stefánsson
stórveiðimann og fyrrverandi formann Stangaveiði-
félags Reykjavíkur að gerast næsti matgæðingur.“
Hráefni:
n 2,4 kíló af nýju meðalfeitu súpukjöti, helst láta
einhvern sem þið treystið í kjötborði sérvelja það.
Biskupseistað á ekki að vera með.
n 2 stórar stinnar og safaríkar gulrófur
n 1/2 hvítkálshaus
n 1 poki (8 stk.) vænar gulrætur
n 4 meðalstórir laukar
n 3 stilkar af sellerí
n 10 cm stubbur af púrrulauk
n 12 stk. meðalstórar nýjar kartöflur
n 3 hnefar river rice hrísgrjón
n 1 - 1,5 bréf Köd & grill krydd
n mcCormic season all-krydd
n Paprikukrydd
n fínmalað sjávarsalt
n ferskur fínmalaður hvítur pipar
n 1- 1,5 poka af súpujurtum
mjög áríðandi að vanda einnig valið á grænmetinu, því
ferskara – því betri er súpan.
undirBúningur og eldun:
n snyrta smávegis af fitunni af kjötinu (aðallega til að
geta sagst hafa gert það) og skera stærstu bitana í
tvennt. Kjötið sett í kalt vatn í pottinum.
n saltað lítilsháttar og suðunni komið rólega upp. eftir
nokkra suðu er hroðinn sem flýtur veiddur ofanaf. láta
krauma í lágmarki.
n Kartöflurnar skrældar og skornar í tvennt, gulrófurnar
afhýddar og skornar í stóra bita, endarnir skornir burt af
gulrótunum og þær skornar í 1 - 2 sentimetra bita,
laukarnir afhýddir og skornir í fernt, u.þ.b. 3/4 af
hvítkálshausnum saxaður gróft og miðjunni hent.
selleríið og púrrulaukurinn söxuð í smátt.
n allt klabbið skolað rækilega úr köldu vatni og dengt í
pottinn. vatn aukið til samræmis - sem og á síðari
stigum. (12 l pottur á að vera með u.þ.b. tommu fríborði)
n Hrísgrjónin skoluð úr volgu vatni og sett út í. saltað á
nýjan leik. suðan látin koma rólega upp og látið
krauma í u.þ.b. 30 - 40 mínútur og þá er Köd og grillinu,
season all-kryddi, 1,5 tsk. af paprikukryddi og 1 tsk. af
hvíta piparnum bætt út í.
n Hrærið stöðugt í - passið mjög vel að hrísgrjónin
festist ekki við botninn.
n eftir um 30 mínútur til viðbótar á „kraumi“ er súpu-
jurtunum bætt út í. nokkru síðar er súpan smökkuð til
og stillt af með kryddunum og saltinu. látið krauma í
15 – 20 mínútur. Hrærið allan tímann með stuttum
hléum.M
atg
æð
ing
ur
inn
uPPsKrift: sarah Cameron
sorensen
mynd: Bent raanes
Kaffið í frystinn
Þegar kaffipoki hefur verið opnað-
ur og er geymdur þannig getur
kaffið misst bragðið. Betra er
að loka honum til dæmis með
þvottaklemmu og geyma hann í
frysti. Þannig geymist kaffið ferskt
og kaffið er eins og nýtt í hvert
skipti.
í boði GestGjafans
n 3 egg
n 4 dl mjólk
n 4 dl hveiti
n 6 msk. kakó
n 3 msk. sykur
n 1/2 tsk. salt
n 1 tsk. lyftiduft
n smjör, til steikingar
Þeytið egg, mjólk, hveiti, kakó, sykur,
salt og lyftiduft saman þar til blandan
er orðin létt og ljós. steikið pönnukök-
ur við meðalháan hita.
Heit súkkuLaðisósa:
n 1 dl kakó
n 1 dl sykur
n 1 dl vatn
n 1 tsk. salt
setjið allt saman í pott og hitið að
suðu. Hrærið í á meðan.
setjið vanilluís á hverja pönnuköku,
brjótið hana saman og skreytið með
jarðarberjum. Hellið súkkulaðisósu yfir.