Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Qupperneq 50

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Qupperneq 50
föstudagur 8. ágúst 200850 Flóamarkaður í Vesturbæ Ef þú hefur safnað dóti í geymsl- una þína í mörg ár en tímir hreinlega ekki að henda því, er flóamarkað- ur algjörlega málið. Það gæti verið að einhverjum öðrum finnist geymsludót- ið þitt vera algjörar ger- semar. Laug- ardaginn 16.ágúst verður haldinn flóamarkaður fyrir framan KR- heimilið í Frostaskjóli þar sem allir mega selja allt, bæði börn og fullorðnir. Markaðurinn hefst klukkan 12 og stendur til klukkan 17. Það eina sem þú þarft að gera er að mæta á staðinn með veiting- ar til sölu, skemmtiatriði eða hvað sem þér dettur í hug en það er engin básaleiga og allir velkomn- ir. Markaðurinn er í samstarfi við Frístundamiðstöðina Frostaskjóli og Vesturgarð. Verslaðu þig granna Ekki það að kvenfólk þurfi yfir höfuð einhverjar ástæður til að fara í verslunarleiðangra en nú hefur nýleg rannsókn leitt í ljós að konur missa rúmlega tólfþús- und kaloríur á ári við það eitt að versla. Hin venjulega kona gengur um það bil þrjá kílómetra í hverjum verslunarleiðangri sem gerir það að verkum að hún brennir rúmlega tólfþúsund kaloríum á ári. Karlmenn aftur á móti brenna einungis um það bil níu þúsund kaloríum í verslun- arleiðöngrum sínum á ári enda óþolinmóðari og líklegri til að taka sér styttri tíma í verslunar- leiðangra en kvenfólk. Hentug Hleðslu- taska Nýtt veski sem hleður símann þinn meðan þú röltir um í versl- unum hefur nú verið fundið upp af verkfræðinema nokkrum frá Iowa í Bandaríkjunum. Ekki nóg með að veskið hlaði símann þinn heldur getur það einnig hlaðið i- podinn þinn eða jafnvel mynda- vélina sem er einstaklega hentugt fyrir uppteknar dömur. Hleðslan í veskinu gengur fyrir sólarorku og eftir einungis tvo tíma í sólarljós- inu er síminn orðinn fullhlaðinn. „Vandamálið með ýmislegt svo tæknilegt er að það er kannski ekki beint það smartasta í útliti. Takmarkið mitt er hinsvegar að koma tækninni í tísku,“ sagði verkfræðineminn snjalli. Gallabuxur með uppábroti gallabuxurnar detta nú aldrei úr tísku en eins og með allt annað er jú alltaf einhver ein gallabuxnaútfærsla heitari en önnur. Þessa dagana virðist málið vera að bretta upp á gallabuxurnar eins og þær Katie Holmes, sarah Jessi- ca Parker og rachel Bilson. Mineralize kinnalitur Dökkir tónar hafa verið að verið að ryðja sér rúms í förðuninni frá því í vor en það má með sanni segja að í haust og vetrarlínu MAC séu dökku tónarnir allsráðandi. Goth-rokk áhrifa gætir í bland við glamúr og pönk og nú er um að gera að hætta sér aðeins út fyrir þægindarammann og vera óhræddar við að prufa eitthvað nýtt. Glamúr, Goth oG pönk Búinn til úr einstaklega steinríku vatni og jojoba olíu, litarefnum er svo blandað saman við formúluna og liturinn bakaður í ofni í 24 tíma. Jojoba olían hentar einstaklega vel fyrir íslenskar konur þar sem húðin verður oftar en ekki þurr. Hann gefur sérlega fallega gegnsæja perlu-áferð og nærir húðina. tíska Umsjón: Krista Hall Netfang: krista@dv.is Tíska Mineralize Skinfinish Glimmer og glamúr áhrifa glamúrrokksins mun gæta í haust- og vetrarförðuninni. glimmerið er hægt að nota jafnt sem eyeliner sem og yfir augnskuggann.. Púðrið mattar húðina með náttúrulegri áferð en við framleiðslu púðursins er það bakað í 24 klukkustundir og vatnið úr því látið gufa upp. Þessi áferð skilar frábærri áferð. shimmery hliðin á púðrinu hentar til að lýsa og móta andlitið, eða sem kinnalitur allt eftir því hvaða litur er keyptur. Einnig má nota það blautt en þá fæst meiri metallic áferð, að auki er hægt að nota það sem augnskugga, þurrt sem blautt. Mineralize augnskuggar tvískiptir augnskuggar sem líkt og púðrið og kinnaliturinn hafa verið bakaðir í ofni í 24 tíma. augnskuggana má nota þurra sem gerir áferðina fremur gegnsæja en einnig má nota rakan pensil í augnskuggann sem gerir áferðina þétta með fallegum gljáa. auk þess getur verið sniðugt að nota kremaugnskugga undir í stað þess að bleyta burstann en þannig helst augnskugginn lengur á og klessist síður. Dökkir varalitir verða sjóðandi heitir í haust Í sumar hefur eitthvað borið á dökkum varalitum í tískublöðunum en í haust má segja að þeir komi til með að tröllríða öllu. Þær sem treysta sér kannski ekki alveg út í jafn dökkan lit og þennan þurfa þó ekki að örvænta því það má jú alltaf tóna sig aðeins niður með dökkrauðum til dæmis. Litapalletturnar eru einstaklega þægilegar en hér hefur verið raðað saman tónum sem eiga eftir að vera mjög áberandi í haust. Litapalletta frá MAC
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.