Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Side 60
föstudagur 8. ágúst 200860 Fólkið
Útvaldir fengu
geisladisk
„Við erum í samkeppni
við önnur fyrirtæki og þetta
er hluti af því,“ segir Ingi-
björg Valdimarsdóttir deild-
arstjóri sölu- og markaðsviðs
Orkuveitu Reykjavíkur sem
hefur boðið um það bil fimm-
tíu viðskiptavinum sínum á
tónleika Erics Clapton. Að auki
hafa boðsgestir fengið tvöfaldan
geisladisk með tónlist goðsins svo
þeir geti komið sér í gírinn fyrir tón-
leikana. Síðan verður gestunum boð-
ið í móttöku fyrir tónleikana þar sem
miðarnir verða afhentir og fólk still-
ir strengi sína áður en það hlustar á
hljómfagra tónlist Claptons. Síðan
verða þeir ferjaðir á tónleikastaðinn
í Egilshöll.
„Við hittumst aðeins áður þar
sem við afhendum miðana og ferj-
um fólkið síðan á staðinn,“ segir
Ingibjörg jákvæð varðandi móttöku
gestanna sem verður áður en haldið
er á tónleikana. Hún segir það mikil-
vægan hluta af boðsferðinni að treysta
tengsl fyrirtækisins við viðskiptavinina.
Hún bendir jafnframt á að umfang boðsins
sé ekki mikið í ljósi þess sem þekkist. Fyr-
irtækið standi í samkeppni við önnur hlið-
stæð orkufyrirtæki og því hið eðlilegasta og
besta mál að það bjóði viðskiptavinum sín-
um á slíka uppákomu. Að sögn Ingibjarg-
ar er það „minglið“ sem skiptir máli enda
treystir það við-
skiptatengslin.
Aðspurð
hvort boðs-
gestir hafi feng-
ið geisladiska
senda með Eric
Clapton
seg-
ir hún svo vera. „Já, það er rétt, við leynum því
ekki,“ segir Ingibjörg og ítrekar að sviðið hafi
engu að leyna yfirhöfuð. Þau stundi aðeins sína
vinnu sem rúmast innan markaðs- og sölusviðs
og það sé í beinni samkeppni við önnur fyrir-
tæki og því ekkert óeðlilegt.
Boðsferðin kostar Orkuveituna hálfa millj-
ón króna en miðaverð á tónleikana er 8.900
krónur á A-svæði en 7.900 krónur á B-
svæði.
valur@dv.is
Eric clapton á landinu
Það hefur eflaust ekki farið fram-
hjá mörgum að leikarinn Gísli Örn
Garðarsson kemur til með að leika
eitt aðalhlutverkið í Hollywood-
myndinni Prince of Persia�� �he
Sands of �ime. Myndin er fram-
leidd af Jerry Bruckheimer, sem
meðal annars hefur gert Arma-
geddon, �he Rock og Pearl Har-
bour. Gísli, sem er kvæntur leik-
konunni Nínu Dögg Filippusdóttur,
hefur verið staddur í Marokkó við
tökur undanfarið en nú er Nína
komin út til Gísla og líkar lífið í
Marokkó vel samkvæmt Facebook-
síðu leikkonunnar. Leikarinn Jake
Gyllenhaal fer með aðalhlutverkið
í myndinni en það er aldrei að vita
nema vinskapur náist með Gísla
og Nínu og Jake og kærustu hans,
Reese Witherspoon, sem eru nán-
ast óaðskiljanleg þessa dagana.
Fimmtíu boðsgestir mark-
aðs- og sölusviðs Orkuveitu
Reykjavíkur hafa fengið tvö-
faldan geisladisk með tón-
list Claptons til þess að hita
upp fyrir tónleikana. Orku-
veitan hefur eytt hálfri millj-
ón í boðsferðina en deild-
arstjóri sviðsins,
Ingibjörg Valdimars-
dóttir, segir ferðina
eðlilegan þátt í starf-
semi fyrirtækis í
samkeppni.
með Clapton
„Ég vildi ekki skyggja á Draggkeppnina,“
segir Haffi Haff aðspurður hvort hann hafi
tekið Eurovisionlagið á draggkeppninni á
miðvikudaginn. Haffi Haff sá um að kynna
Draggkeppnina og söng Play dead með
Björk.
„Það átti að koma á óvart að ég söng lag-
ið með Björk og allir voru mjög hissa,“ segir
Haffi Haff. Hann hefur haft nóg að gera frá
því hann kom til Íslands. Hann vinnur sem
blaðamaður á Vikunni, stílisti, förðunar-
meistari, útvarpsmaður og er að undirbúa
sólóplötu.
„Það var ógeðslega mikil stemning, þetta
er í fyrsta skipti sem ég hef verið kynnir fyrir
svona stórt dæmi og það gekk bara vel,“ seg-
ir Haffi. Hann gerði eins og alvöru kynnar og
skipti sex sinnum um alklæðnað. Meðal þess
sem hann klæddist voru föt sem Svala Björg-
vinsdóttir, vinkona hans gaf honum í fyrra á
Gay Pride. „Ég ætlaði ekki að koma fram en
gerði það svo til gamans,“ segir Haffi. Hann
segir að í ár hafi verið dæmt meira út á per-
sónuleikann, skipulagningu hvers atriðis og
hvernig keppendunum tókst að leika atriðin
sín frekar að einblína á útlitið eitt og sér. „Það
er alltaf hægt að vera með skrípalæti á svið-
inu en það er erfiðara að koma með flott leik-
ið atriði og þetta snerist um það að setja upp
trúverðuga leiksýningu. Það er erfitt að gera
það. Magnús, sá sem vann, var mjög sann-
færandi í sínu hlutverki,“ segir Haffi Haff að
lokum. astrun@dv.is
skipti sex sinnum um föt
Haffi Haff sló í gegn sem kynnIR á dRaggkeppnInnI í áR:
Haffi Haff Hann
skipti sex sinnum um
föt eins og alvöru
kynnar. á myndinni
er hann í fötum sem
svala Björgvinsdóttir
gaf honum á gay
Pride í fyrra.
Í marokkó
með gÍsla
Didda, aðalleikkona myndarinnar
Skrapp út eftir Sólveigu Anspach, var
heldur betur glæsileg á frumsýningu
myndarnnar í Háskólabíó á miðviku-
dagskvöld. Didda klæddist beislitaðri
satín skyrtu, hvítum jakka og svörtum
capri-buxum. Um hálsinn var hún
með Íslands-men eftir listamanninn
Lenu Viderø. Didda bar af á frum-
sýningunni þar sem helstu listamenn
landsins fjölmenntu. Klæðnaður
hennar var öllu dannaðri en á Edd-
unni fyrir fáeinum árum, er hún tók á
móti verðlaunum í svörtum netakjól
og litlu öðru.
Bar af á
frumsýningu
Eric Clapton Mun trylla
lýðinn þegar hann rifjar
upp slagarana í Egilshöll.
Orkuveita Reykjavíkur Viðskiptavin-
ir Orkuveitunnar fengu geisladisk svo
þeir gætu hitað upp fyrir tónleikana.