Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2008, Qupperneq 21
föstudagur 29. ágúst 2008 21DV Umræða
Skipuleggur námskeið
„Er það ekki handboltinn? Ég fylgd-
ist vel með þessu í sjónvarpinu og ég finn
ægilega mikið til mín sem Íslendingur. Í
efnahagslífinu er það sennilega að verð-
bólgan er hærri en menn ætluðu og lít-
ið sem menn eru að gera. Því er spáð að
verðbólgan eigi eftir að fara hratt niður á
næsta ári, og það er ekki síður hættulegt
en verðbólga. Það sem veldur áhyggjum
er að þessi möguleiki sé ekki tekinn með
inn í reikninginn. Menn sjá fyrir sér að
hún fari mjög hratt niður og staldri við í 2
prósentum í lok árs 2009. Hvers vegna er
það svo víst að hún stoppi þar, það þýðir að
ef menn missa stjórn á þessari gríðarlegu
hröðun á lækkuninni,verði verðhrun. Þetta
áhyggjuleysi í fjármálum vekur athygli
mína.
Annars hef ég verið að undirbúa nám-
skeiðið Úr mínus í plús, þann 15. sept-
ember í Borgarleikhúsinu. Þar verður fólki
kennt að takast á við kreppuna og byggja
upp eignir, greiða niður lánin sín hratt og
örugglega.“
Ingólfur H. Ingólfsson, fjármálaráðgjafi
Myndataka með Madeleine
Albright
„Vikan hefur verið undirlögð af lands-
fundi Demókrataflokksins í Denver. Það var
sérstakt að koma inn á fundinn á mánudag
og hlýða á ræðu Hillary Clinton á þriðju-
dag. Bill Clinton fór svo á sviðið í gær. Ég
náði líka að hitta Madeleine Albright, heilsa
henni og fá mynd af mér með heni. Hún var
eitt af „Idol-unum“ mínum. Svo er ég á leið-
inni niður í bæ núna, að stilla mér upp í röð
til að sjá Barrack Obama flytja sína ræðu.
Þetta hefur að sumu leyti verið yfir-
þyrmandi, en þó það séu 30-40 þúsund
manns að flækjast hérna, þá er líka smá-
bæjarstemming. Ég hef ekki farið áður á
landsfund, ég sótti um að vera sjálfboðaliði
árið 2000, þegar ég bjó í Los Angeles. Það
er fjöldi fólks sem býður fram krafta sína og
maður fær ekki að vera sjálfboðaliði í meira
í einn dag því það er svo mikið framboð.
Svo fer ég í brúðkaup um helgina, þannig að
þetta er allsherjar fagnaðarfundarvika hjá
mér. Ég hef verið mjög mikið á hlaupum.“
Silja Bára Ómarsdóttir, stjórnmálafræð-
ingur við Háskóla Íslands
Handbolti, steikur og stripp
„Það er náttúrulega handboltaleikur-
inn, það er ekkert sem getur toppað hann.
Ég er heldur betur stoltur af þeim. Enda
veit það hálf þjóðin að ég hef alltaf verið
duglegur að styðja handboltann. Ég missti
ekki af leik í sjónvarpinu. Mínir menn eru
Sigfús og Óli Stefáns og að sjá viðbrögð-
in hjá fólkinu í landinu, hvernig allir stóðu
við bakið á strákunum og fylgdust með,
þetta var frábært. Síðan var ég náttúrulega
að opna þennan gríðarlega fína veitinga-
stað Steak And Play þar sem boðið verður
upp á golf- hermi, steikhús, Playstation og
hvaðeina. Við héldum mikið opnunarpartí
á dögunum og erum svona að vinna í því að
koma staðnum í toppstand. Ég reikna með
því að allt verði fullklárað á fimmtudaginn
í næstu viku. Það hefur verið nóg að gera í
þessu, við höfum unnið myrkranna á milli.
Þetta verður ótrúlega flott. Síðan var ég bú-
inn að frétta af því að borgarráð hafi í gær
gefið veitingastöðum í Reykjavík heimild til
að bjóða upp á nektardans. Ég fagna þeirri
ákvörðun.“
Ásgeir Þór Davíðsson, veitingamaður
Silfurverðlaun og ný áskorun
„Það er varla hægt að ræða nokkuð
annað en silfrið hjá handknattleiksliðinu
á Ólympíuleikunum í Peking. Það er það
sem ber hæst næstu mánuðina ef ekki bara
næstu árin að mínu mati. Ég er mjög stolt
af þeim og stolt af því að vera Íslending-
ur eins og Ólafur Stefánsson. Allt liðið
vann þetta saman og ómögulegt að nefna
einhvern sem stóð sérstaklega upp úr að
mínu mati. Frábær vörn var lykillinn að
árangrinum myndi ég segja. Hjá mér per-
sónulega voru það ákveðin tímamót að ég
skipti um félag í handboltanum á dögun-
um. Ég gekk í raðir Stjörnunnar í Garða-
bæ frá Gróttu og það er voða gott að skipta
um umhverfi. Ég er búin að mæta á fyrstu
æfingarnar og það er búið að vera frábært.
Mjög vel tekið á móti manni, ég hlakka
bara til að byrja að keppa og þetta á eftir að
verða mjög skemmtileg deild í vetur. Mörg
lið eru sterk í ár. Það verður gaman að
horfa á deildina og fá að taka þátt í henni
í vetur.
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir,
handknattleikskona
HVAÐ BAR HÆST í Vikunni?
Sléttari og þéttari húð
Formar fótleggina
Minkar þrota og bjúg
Tekur burt þreytu
Eykur úthreinsun
sogæðakerfisins
Snyrtisetrið
Heilsuverndarstöðin (norður endi) l Barónsstíg 47 l 101 Reykjavík l Sími 533- 3100
CELLULITE
meðferð
Árangur sést strax
Betri líðan
Persónuleg ráðgjöf
Kveðja til þeirra sem eru í baráttunni við
Cellulite (appelsínuhúð)
l
l
l
l
l
H
ild
ur
H
lín
Jó
ns
dó
tt
ir
/ h
ild
ur
@
dv
.is