Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2008, Blaðsíða 40
föstudagur 29. ágúst 200840 Sport
Frækilegur árangur íslenska hand-
boltalandsliðsins hefur gefið hand-
knattleikshreyfingunni byr und-
ir báða vængi. Í grunnskólum mátti
hvarvetna sjá unga krakka við hand-
knattleiksiðkun í liðinni viku en það er
sjón sem var síður en svo algeng fyrir
Ólympíuleikana. Íþróttafélögin hafa
mörg hver ekki látið sitt eftir liggja og
boðið börnum að koma tímabundið
í fría handknattleiksþjálfun og ljóst
er að árangur landsliðsins er vítam-
ínsprauta fyrir íþróttina. „Við finnum
fyrir gríðarlega miklum áhuga og það
er mikið hringt og spurt um handbolt-
ann. Við erum að kynna þetta í skól-
um með landsliðsmönnum þannig að
við eigum von á algjörri sprengingu í
iðkendafjölda,“ segir Einar Jónsson
yfiþjálfari yngri flokka hjá Fram. Arn-
ar Þorkelsson þjálfari yngri flokka hjá
Gróttu tekur í sama streng en æfingar
eru hafnar á Seltjarnarnesi. „Það eru
greinileg fjölgun iðkenda hjá okkur.
Í hverjum árgangi eru að bætast við
5-10 í hverjum árgangi og það þýðir
10-20 krakkar mæta nýir á æfingar í
hverjum flokki,“ segir Arnar.
Allir í handbolta í skólanum
Fróðir menn segja að ekki hafi
fundist slíkur handboltaáhugi í ís-
lenskum skólum síðan eftir HM í Sviss
árið 1986. Krakkar fara út á skólavöll
og grýta knetti í mark. Slíka sjón var
ekki að sjá fyrir Ólympíuleikana.
Linda Heiðarsdóttir er kennari í
Laugalækjarskóla og hún segist finna
fyrir miklum áhuga meðal nem-
enda sinna. „Allt í einu eru krakk-
arnir farnir að hlaupa um á göngun-
um og kasta á milli sín bolta,“ segir
Linda sem sjálf er mikil áhugamann-
eskja um handknattleik. „Ég talaði
við nemanda minn og spurði hvort
allir væru farnir að spila handbolta
og hann játti því og sagði skyndilega
alla mætta út á völl í handbolta. Nán-
ast allir fylgdust með heimkomunni
hjá landsliðinu og þeim fannst þetta
að sjálfsögðu mjög merkilegt. Strák-
arnir eru nú duglegri við þetta, en ég
held að ég hafi aldrei áður séð krakka
í handbolta á skólalóðinni,“ segir
Linda sem fylgdist með strákum setja
upp leikkerfi á skólavellinum á með-
an hún spjallaði við blaðamann DV.
„Ég held að þetta séu strákar sem eru
ekki að æfa handbolta að staðaldri,“
segir Linda.
Stjórnmálamennirnir
fylgja með
Stjórnmálamenn hafa ekki lát-
ið sitt eftir liggja og auk 50 milljóna
króna styrkveitingar til HSÍ tilkynntu
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir, menntamálaráðherra, og Hanna
Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri,
að til stæði að stofna Silfursjóð fyrir
reykvísk börn með 20 milljóna króna
framlagi. Markmiðið með stofn-
un sjóðsins er að gera ungmennum
kleift að kynnast handboltaíþróttinni
fram að Ólympíuleikunum í Lund-
únum 2012. Veitt verður framlag
úr sjóðnum, 5 milljónir króna á ári,
þangað til. Ólafur Stefánsson, fyrir-
liði íslenska handboltalandsliðsins,
er verndari sjóðsins.
Árangur handboltalandsliðsins hefur vakið aðdáun ungra iðkenda sem margir hverjir
flykkjast út á skólalóðirnar til að stunda handknattleik.
Handboltaæði
í uppsiglingu
ViðAr GuðjónSSon
blaðamaður skrifar: vidar@dv.is
Handbolti í skólanum Þessir
drengir skoruðu hvert glæsimarkið
á fætur öðru í Laugalækjarskóla.