Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2008, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2008, Blaðsíða 22
Árangur handboltaliðsins á Ólympíuleikunum í Pek-ing er aðdáunarverður og hefur orðið til þess að allir vilja eiga sem mestan og bestan þátt í ljóma silfursins. Gjafir streyma til landsliðsins vegna árangursins og allir vilja vel. Ríkissjónvarpið hef- ur farið mikinn í að kortleggja sig- urgönguna og auðvitað gætt þess vandlega að hafa viðtöl við allflesta ráðherra Sjálfstæðisflokksins um það hve frábær við erum öll. Þá var einnig talað við Jón Ólafsson at- hafnamann sem óx frá því að vera götustrákur í Keflavík í það að verða auðjöfur í London og selja þar ís- lenskt vatn í ómældum mæli. Fram kom í máli Jóns að hann væri gömul handboltahetja úr Keflavík, en að vísu með fjórða flokki. Það er sama hvar borið er niður. Alstaðar er að finna handboltahetjur; að minnsta kosti í anda. Þjóðarvakningin hefur orðið til þess að einstaklingar hafa gefið tugmilljónir til styrktar strákunum. Og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamála- ráðherra og fyrrum handboltastjarna tryggði að ríkisstjórnin gaf 50 millj- ónir króna. Gjafmildi hefur þannig einkennt þjóðina í sigurvímunni undanfarið. Stærð gjafa og ánægja með lífskjör er afstæð. Þekkt er úr kristnisögunni að Jesús brá sér milli bæja til að hitta fólk og eiga við það orðastað. Hann kom á fátækt heimili þar sem kona stóð við hlóðir og var að elda roð og bein. Aðspurð um það hvað væri í matinn sagði hún að í pottunum væri dýr- indiskjöt. Verði svo, sagði Kristur. Á öðru heimili var einnig kona við matseld. Hún hélt því aðspurð fram að í pottum hennar væru ruður og bein. Og það varð svo. Konan í Breiðholti sem gaf landsliðinu 10 þúsund krónur af hjartahlýju var stórtæk í gjöf sinni. Ruðurn- ar í pottum hennar urðu að eðalmál- tíð. Séð og heyrt vekur athygli á því að auðmaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson flaug til Kína og gaf eina milljón króna. það er í sjálfu sér göf- ugt framlag en minna en 10 þúsund- in hjá Gunnu í Breiðholtinu sé litið til afkomu þeirra tveggja. Bjöggi hefði þurft að gefa einkaþotuna sína til að jafna þann leik, ef marka má að hann er ofarlega á lista yfir ríkustu menn heims. Svarthöfði hefur þá skoðun að stærð gjafar ráðist af hugar-fari og efnum þess sem gefur. Lítið barn sem eyðir klukku- stund í að teikna mynd af hetjum landsliðsins og gefur verk sitt er stórtækara en auðmaður sem gefur milljón. En barnið fer ekki á forsíðu skemmtirits fyrir vikið. Við lifum nefnilega í samfélagi sem leggur mest upp úr sýndarmennsku í miðj- um timburmönnum kreppunnar. Múgurinn dáist að yfirborðsmennsku og glansmyndum í flótta sínum frá köldum veruleika vísitölusamfélags- ins. Og það er einmitt vegna veruleik- ans gráa sem það er svo mikilvægt að þjóðin fái tækifæri til að hrífast í hrifningu yfir silfrinu frá Kína. Dög- um saman gleymum við okkur, örfáar hræður á norðurhjara, í ánægjunni yfir því að vera næstbest á heims- vísu. Og hugarfarið skiptir mestu. Rétt eins og fátæka konan sem trúði því að roðið af fiskinum væri í raun hnakkastykki náum við að fleyta okkur yfir kreppuna fyrir tilstuðlan strákanna sem sigruðu stórþjóðir. Við erum öll silfurmeistarar og eigum fulla möguleika á því að klöngrast upp úr kreppunni með nokkur bíp að vopni. föstudagur 29. ágúst 200822 Umræða Gjafir eru Gefnar svarthöfði jón TrausTi reynisson riTsTjóri skrifar. Fátt slær því við í mannvonsku, að knésetja þá sem bjarga bágstöddum. Fólkið er fjórða valdið Leiðari Kerfið getur verið kalt og ómanneskjulegt. Þrjú tilvik undanfarnar vikur staðfesta það. Fyrst var Paul Ramses rifinn úr faðmi eig- inkonu og ungbarns og rekinn úr landi af Útlendingastofnun. Í öðru lagi var Reykja- víkurborg komin langt á leið með að draga Fjölskylduhjálp Íslands fyrir dóm og henda henni á götuna. Í þriðja lagi stóð Ragna Er- lendsdóttir frammi fyrir því að fá ekki aðstoð hjá kerfinu við að fjármagna lífsbjörg dóttur sinnar. Það er siðferðislega framandlegt að Reykja- víkurborg skuli hafa lagt sig í líma við að kasta Fjölskylduhjálp Íslands út á götu. Fjölskylduhjálpin er ígildi miskunnsama Sam- verjans á Íslandi nútímans. Fátt slær því við í mannvonsku, að knésetja þá sem bjarga bágstöddum. Fátt er ósiðlegra en að horfa aðgerðalaus upp á móður bugast við að reyna að bjarga barninu sínu. Og það er líka sjaldgæft að það finnist eitthvað verra en að rífa saklausan föður frá nýfæddu barni. Mál Ramses og Rögnu virðast þegar hafa verið leyst. Ekki fyrir tilstuðlan embættismanna og stjórnmálamanna, heldur vegna fjölmiðla og almennings. Því hefur oft verið haldið fram að fjöl- miðlar séu fjórða valdið. Eins og hægt væri að bera DV saman við ríkisstjórnina, sem er yfirvald yfir fólkinu í landinu. Þetta er áróður litaður af hagsmun- um þeirra sem vilja gera fjölmiðla tortryggi- lega í augum almennings. Fjölmiðlar eru í fæstum tilvikum gerend- ur. Þeir eru boðberar almennings. Kannski mætti segja að almenningur væri fjórða valdið. Það sýnir hversu óbeint lýðræði okk- ar er, að mörg mál sem almenningur veitir yfirgnæfandi stuðning eru stöðvuð af fyrsta, öðru og þriðja valdinu. Kerfið fer fyrst að bila þegar fjölmiðlar hætta að virka sem skyldi, því almenningur getur ekki barist gegn kald- lyndi þess eða spillingu nema hann sé vopnaður upplýsingum úr fjölmiðlum. Ef fólk veit ekki hvað kerfið gerir hefur það eng- an möguleika til að dæma um það. Hagsmunir fjölmiðla og al- mennings eru þeir sömu, og þeir varða eftirlit með kerfinu og stjórnmálamönnum. DV mun hiklaust halda vökulu auga yfir kerfinu og miðla upplýsingum um gjörðir þess til almennings. Okkur ber að gjalda varhug við hverri þeirri stofnun og hverjum þeim stjórnmálamanni sem neitar að sinna upplýsingaskyldu sinni við fjölmiðla. Orkuveita Reykjavíkur: Hverjum býður þú í lax? spurningin „Ég er mjög lélegur spámaður en eins og staðan er núna er heiðskírt og sól í Safamýri,“ segir Ingvar Þór Ólafsson leikmaður fram sem er með 31 stig í Lands- bankadeild karla, en það er í fyrsta skipti í 17 ár sem fram er með meira en 31 stig eftir 18 umferðir. er fram- Tíðin björT? sandkorn n Uppákoman í kringum Þor- gerði Katrínu Gunnarsdótt- ur menntamálaráðherra og heimkomu landsliðsins í hand- bolta, hefur vakið mikla at- hygli. Í upphafi var ætlunin að Þorgerður og Hanna Birna Kristj- ánsdóttir borgarstjóri tækju svið- ið, myndu halda ræðu á Arnarhóli en Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, yrði í algjöru aukahlut- verki. Ráðherrar Samfylkingar spyrntu við fótum og niður- staðan varð sú að Hanna Birna talaði við strákana í móttöku á Kjarvalsstöðum ásamt Þor- gerði, sem náði þó einnig að halda sína ræðu á Arnarhvoli með forsetann sem statista og hátíðin varð fólki minnisstæð og ráðherranum til sóma. n Það vakti óneitanlega athygli að Ólafur Ragnar Grímsson haggaðist ekki og var brosmildur í statistahlut- verki sínu við Lækjargötu. Stuðmaður- inn Valgeir Guðjónsson reyndist þó vera aðal- stjarnan. Forsetinn mun hafa tekið þá ákvörðun að láta sem ekkert væri og eyðileggja ekki þessa stærstu stund íslensku íþróttasögunnar. Hans tími rann síðan upp á Bessastöðum þar sem kempurnar í landsliðinu fengu orður og krossa. n Guðni Ágústsson, formað- ur Framsóknarflokksins, fer á kostum á hringferð sinni um landið þar sem honum er sum- staðar tekið sem popp- stjörnu. Hann hegg- ur á báða bóga og ríkisstjórn- in fær svo sannarlega að finna fyrir vandarhöggum Guðna. Nokkur urgur kom upp vegna þess að formaðurinn er ekki með Vestfirði inni í hring sín- um. Aðspurður lofaði hann þó bót og betrun og kveðst fara vestur á haustmánuðum. n Umboðsmaður Íslands, Einar Bárðarson, er nú fluttur heim til Íslands ásamt fjölskyldu sinni eftir að hafa búið í Lund- únum. Einar er ekki lengur um- boðsmaður Garðars Cortes en hann er þó engan veg- inn hættur afskiptum af tónlistar- heiminum. Kappinn liggur undir feldi á heim- ili sínu í Bítlabænum Keflavík og planar næstu stórleiki sína. LyngháLs 5, 110 Reykjavík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir ritStjórar: jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðaLnúmer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010, áskriftarsími: 512 7080, augLýsingar: 512 70 40. Umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Það er ótrúleg gjöf að vera Íslending- ur.“ n Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins. Hann hélt smá ræðu á Arnarhóli þegar liðinu var fagnað við heimkomuna. Ólafur gat ekki sagt mikið en var að vonum ánægður með stuðninginn hjá Íslendingum. -DV „Nei hún Brynd- ís þarf nefnilega bara drottning- arkjól.“ n Jón Baldvin Hannibaldsson selur rósir á útimarkaði Varmársamtakanna í Álafosskvosinni. Auk rósasölunnar mun Elísabet Brekkan stýra uppboði á prinsessukjólum. - DV „Við heyrðum í nokkrum aðilum og ég held að við höfum fengið besta lögfræðinginn í bænum.“ n Eric Nelson, sem varð fyrir því óláni að vera laminn í brúðkaupsferð sinni á Íslandi. Hann hefur kært eiganda Fjörukráarinnar fyrir líkamsárás. - DV „Ég fékk einhvern rosaleg- an kraft þegar ég var ófrísk og fannst ég geta gert allt svo ég notaði það og hef því ekkert farið í fæðingar- orlof.“ n Nanna Kristín Magnúsdóttir leik- kona fer nú með hlutverk brúðarinnar í kvikmynd Valdísar Óskarsdóttur, Sveitabrúðkaupi. - 24 stundir „Maður verður mjög hryggur þegar maður heyrir þessi tíðindi.“ n Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra um fráfall Sigurbjörns Einarssonar biskups. - visir.is bókstafLega
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.