Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2008, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2008, Qupperneq 25
DV Menning föstudagur 29. ágúst 2008 25 Fransk-ís- lensk Fransk-íslenska klezmer- hljómsveitin Klezmer Kaos spilar á NASA næsta miðviku- dag, 3. september. Þetta er í fyrsta sinn sem hljómsveitin kemur fram á Íslandi en einn meðlima hennar er Heiða Björg Jóhannsdóttir klarinettuleikari. Heiða, sem hefur búið í París undanfarin ár, segir Klezmer Kaos hafa getið sér gott orð víðs vegar um Evrópu en hljóm- sveitin hefur verið iðin við að spila á tónlistarhátíðum undanfarna mánuði. Hún spilar allt frá hefðbundnum og frumsömdum lögum til íslenskra þjóðlaga sem klædd hafa verið litríkum austur- evrópskum klezmerklæðnaði. 16 metra ástarkaka Akureyrarvaka verður sett í Lystigarðinum þar í bæ í kvöld klukkan 20. Þar verður meðal annars boðið upp á tónlist frá Retro Stefson, gjörning, rúna- lestur og rjúkandi heitt kakó svo eitthvað sé nefnt. Klukkan 22 leggur Draugagangan af stað frá Minjasafninu þar sem færist vægast sagt draugalegur blær í innbæinn. Á morgun, laug- ardag, hefst svo hin eiginlega Akureyrarvaka sem markar lok Listasumars en hún nær há- marki á laugardagskvöldið þeg- ar boðið verður upp á sextán metra langa ástarköku. Nánari upplýsingar um hátíðina má finna á akureyri.is. Sýningarlok á Kjarvalsstöð- um Sýningunni Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist lýkur núna á sunnudaginn. Þar gefur að líta mörg ný verk eftir framsæknustu listamenn lands- ins sem byggja á ólíkum hug- myndum þeirra um náttúruna sem fyrirbæri í ljósmynda- og vídeólist. Sýningin var opnuð á Listahátíð fyrr á þessu ári og hef- ur hlotið góða aðsókn og verð- skuldaða athygli innanlands og utan. Á meðal listamannanna sem eiga verk á sýningunni eru Hrafnkell Sigurðsson, Hreinn Friðfinnsson, Anna Hallin, DV08082832* Gjörningaklúbb- urinn, Kristján Guðmundsson og Ólafur Elíasson. Leiðsögn er um sýninguna á sunnudaginn klukkan 15. Ný sýning helguð Sigurði Hallmarssyni opnuð í Laxdalshúsi á morgun: Burðarás leiklistar á Húsavík í yfir 50 ár Sýning sem er helguð listrænu starfi Sigurðar Hallmarssonar verð- ur opnuð í Laxdalshúsi, elsta húsi Akureyrar, á morgun, laugardag. Að henni standa Leikminjasafn Íslands og Þórarinn Blöndal myndlistar- maður. Sigurður Hallmarsson hef- ur í meira en hálfa öld verið einn af burðarásum leiklistar á Húsa- vík. Á þeim tíma hefur hann leik- stýrt fjölda sýninga þar í bæ og víða á Norðurlandi, auk þess sem hann hefur staðið sjálfur í sviðsljósinu, oft í burðarhlutverkum. Leikfélag Húsavíkur hefur um langan aldur verið þekkt fyrir gróskumikið starf og óvenjulegan metnað í verkefna- vali en áttatíu ár verða liðin í haust frá því það var stofnað. Þó að marg- ir góðir menn og konur hafi lagt þar hönd á plóg er tæpast á nokk- urn hallað þó fullyrt sé að mest hafi munað um krafta Sigurðar, að því er segir í tilkynningu um opnunina. Þess má geta að Sigurður verður átt- ræður á næsta ári. Leikminjasafnið opnaði fasta- sýningu í húsinu nú í júnílok. Er áformað að hún standi þar áfram og að húsið verði vettvangur nám- skeiðahalds og ýmissa viðburða. Sýningaropnunin verður á morg- un klukkan 14 og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. SÝNING sem fóru í nýlistadeild og voru í til- raunastarfsemi sem ég mæli auð- vitað eindregið með. En það skiptir auðvitað mestu máli að maður fylgi því sem mann langar mest að gera. Ég var og er best fallin til að mála í olíu og mig langaði að hafa tækn- ina eins einfalda og hægt er. Ég fann að það átti ekki endilega við mig að vera að prófa alls konar möguleika til að koma hugmyndinni frá mér. Mér finnst hugmyndin vera mögu- leikarnir en tæknin þarf að vera ákaflega einföld. Þess vegna hef ég haldið mig við olíuna og einfaldar aðferðir.“ Lítur ekki á sig sem trúarlegan listamann Verk Kristínar eru í eigu helstu listasafna landsins og hanga meðal annars uppi í kirkjum víðsvegar um landið, svo sem í Hallgrímskirkju, Stykkishólmskirkju og Keflavíkur- kirkju. Fleiri kirkjur bíða. Sjálf seg- ist hún hinsvegar ekki líta á sig sem trúarlegan myndlistarmann. „Það er mjög ánægjulegt og mik- ill heiður að því þegar óskað er eftir verki eftir mann fyrir kirkju. Ég hef hinsvegar aldrei litið á mig sem trú- arlegan myndlistarmann þó ég sjái auðvitað tenginguna í því að fólki finnist verkin mín vera trúarlegs eðlis þar sem þau fjalla að miklu leyti um innra líf manneskjunnar og þörf fyrir kyrrð og jafnvægi hugans.“ Sjóndeildarhringur út að ruslatunnu Kristín hefur verið búsett á Sel- tjarnarnesinu frá árinu 2004 þar sem hún hefur komið sér huggulega fyrir ásamt börnum sínum tveimur, þeim Melkorku átta ára og Killian sex ára. „Ég flutti hingað fyrir fjórum árum og kom mér fyrir á vinnustofu hér heima og hef unnið hér síðan. Það gerir það reyndar að verkum að stundum er sjóndeildarhringurinn bara rétt út að ruslatunnu en það er mjög gott með lítil börn að geta unnið heima.“ Í ár var Kristín kjörin bæjarlista- maður Seltjarnarness sem hún seg- ir heiður á svo margvíslegan hátt. „Í fyrsta lagi er þetta viðurkenning fyrir það sem ég er að gera og í öðru lagi býður þetta mig velkomna á Nesið. Ég met þetta tvennt jafnmik- ils,“ segir Kristín, en í umsókn sinni til bæjarins bauð Kristín upp á það að kynna list sína fyrir krökkunum á Seltjarnarnesi. „Ég valdi hópa úr öllum stig- um skólakerfisins og hef boðið þeim hingað heim á vinnustofuna mína. Ég fékk fimm heimsóknir og þá sátum við niðri á vinnustofu og spjölluðum. Það var mjög gaman því krakkar eru svo opnir og til í að hugsa sjálfstætt.“ Með listaverk á vínflöskum Þrátt fyrir að verk Kristínar séu ljúf og mikil kyrrð ríki yfir þeim er ekki þar með sagt að þau hangi bara uppi á listasöfnum, í kirkjum, heimahúsum og stofnunum. Nú má nefnilega einnig sjá verk listakon- unar á austurrísku gæðavínunum frá Hubert Sandhofer. „Þetta gerðist bara eins og svo margt annað í lífinu. Við Hubert erum vinir til margra ára en við kynntumst fyrst fyrir tuttugu og fimm árum þegar ég starfaði sem tjaldvörður á Akureyri. Þar kom Hu- bert sem ferðamaður en hann er af rótgróinni vínræktarfjölskyldu í Austurríki og er með eigin vínfram- leiðslu. Svo lágu leiðir okkar saman aftur fyrir tveimur árum. Þá sá ég að það þurfti svo sannarlega að breyta vínmiðunum á flöskunum hans,“ útskýrir Kristín hlæjandi en Hubert greip það tækifæri að sjálfsögðu fegins hendi. Áritar vínflöskur „Í kjölfarið hófum við samstarf með grafíska hönnuðinum Ámunda Sigurðssyni sem var fenginn til að hanna miðana. Í sameiningu völd- um við verk eftir mig á flöskurn- ar. Við tókum fyrir allan minn feril og skoðuðum hvað myndi henta á hvaða vín fyrir sig en þau vín sem ÁTVR hafði tekið í sölu hjá sér voru þau vín sem við vorum með í huga,“ segir Kristín en vínin eru fáanleg í verslun ÁTVR í Kringlunni og í Hug- rúnu. „Arnar Bjarnason hjá Víni og mat flytur vínin inn og sér um þau. Það er mikið lagt í miðana og flöskurnar. Útlitið á víninu er orðið mjög vand- að og í samræmi við vínið sem er afbragðsgott gæðavín. Þetta er ekki ódýrasta vínið á markaðnum en gott, og glæsileg gjöf. Til dæmis hef- ur fólk keypt þetta sem gjöf fyrir vini erlendis, jafnt erlenda sem íslenska því það er gaman þegar vandað er til með íslenskum myndlistarverk- um á góðum vínflöskum. Ég er búin að árita margar flöskur fyrir fólk sem óskar eftir því.“ Völdu verk sem pössuðu við vínið Listaverk eftir Kristínu er að finna á rósavíni, rauðvíni og hvítvíni. „Við reyndum að finna verk sem okkur fannst passa við þessar vín- tegundir. Við völdum búta úr verk- unum mínum til að setja á miðana. Varðandi rósavínið langaði mig til dæmis að ganga alla leið þar sem vínið er svo fagurbleikt og mikið keypt af konum, því gekk ég bleiku línuna til enda. Á miðanum er mynd af móður, barni og rós en vínið er al- gjört gæðavín og alveg stórlega van- metið með mat. Það á til að mynda mjög vel við með vel krydduðum og austurlenskum mat og ég hvet fólk til að vera ófeimið að prófa það.“ Miðann á St. Laurent Reserve rauðvíninu prýðir svartur hund- ur en hvítvínið prýðir hvítur hjört- ur. „Rauðvínið er mjög kraftmik- ið og því fannst mér viðeigandi að myndin á flöskunni yrði af þessum kraftmikla og karlmannlega hundi. Grüner Veltliner hvítvínið er þurrt, hátíðlegt vín, hreint og tært. Því fannst mér gaman að hafa þenn- an hvíta hjört með gylltu hornin sem leiða mann strax upp í sjöunda himin.“ Finnur enn fyrir tengingunni við fjöllin fyrir norðan Fjórða vínið er hvítvín með gosi sem ekki er fáanlegt í Ríkinu en prýðir þó mynd eftir Kristínu. „Það er hvítvín með ákveðnu bragði og alveg brjálæðislega gott veisluvín, er í raun uppáhaldsvínið mitt. Á því er mynd af þremur hestum sem tákna Kaldbak á Akureyri,“ segir Kristín sem segist enn finna fyrir tengingu við fjöllin fyrir norðan. „Mótunarárin mín voru fyr- ir norðan, ég ólst náttúrulega upp þar og var þar alveg til tvítugs. Ég finn tenginguna við fjöllin þar, kyrra morgnana og löng næturkvöldin í vetrarkyrrðinni. Þetta hefur allt mjög djúp áhrif á mig og er í raun grunnurinn að því sem ég er að gera í dag. Inn í þetta blandast lífssýn mín og þau áhrif sem ég hef orðið fyrir í lífinu.“ Mismunandi tímabil Aðspurð um það hvort list henn- ar megi skipta niður í ákveðin tíma- bil svarar Kristín: „Já, núna er ég til dæmis mikið að mála fjöll og lands- lagsmyndir. Ég skálda landslagið sjálf og það er tákn fyrir innra ferða- lag mitt og annara samferðamanna. Leið okkar til þroska. Ég hef líka verið að gera mörg verk um móður með barn, tengt eigin reynslu sem móður, áhrif missis og þörf fyrir móður náttúru. Annað sem hefur einkennt myndir mínar eru öldungarnir, en þeir eru að renna saman við fjöllin.“ Slær ekki hendi móti góðu sýningartilboði Á síðasta ári var mikið um að vera hjá Kristínu en hún setti upp fjórar sýningar. „Það var mjög mikið að gera hjá mér í fyrra varðandi sýningar. Í ár ákvað ég að fá að mála í friði en skipuleggja ekki langt fram í tím- ann. Það er búið að ganga mikið á hjá mér á undanförnum árum og ég hef unnið mikið. Sýningarnar koma svolítið af sjálfu sér en það eru komnar uppástungur um sýn- ingar erlendis sem ég hef áhuga á. Meðal annars í Póllandi, Austurríki og Bandaríkjunum. Mér finnst best að sýna á Íslandi og þykir vænst um ef verkin mín eru hér en slæ auð- vitað ekki hendinni á móti góðu sýningartilboði. Ég hef alltaf unnið þannig að ég mála ekkert sérstak- lega upp í sýningu, það hentar mér betur að vinna út frá því sem er að gerast innra með mér og svo koma sýningarnar sjálfkrafa þegar mynd- irnar eru tilbúnar,“ segir Kristín að lokum. Á meðan beðið er eftir næstu sýningu Kristínar er fólk hvatt til að kíkja á heimasíðu listamannsins, kristing.is. krista@dv.isGekk bleiku línunatil enda Menning Laxdalshús sýningin er í þessu elsta húsi akureyrar. Jazz, jazz, jazz og aftur jazz Mikið verður um að vera á Jazzhátíð í Reykjavík um helgina. Stórsveit Reykjavíkur flytur tónlist Bjarkar á stórtónleikum í Háskólabíói á morgun, laugardag, Jóel Pálsson og Ómar Guðjónsson og hljómsveit spila á Organ í kvöld og þá má benda á Jazzquiz spurningakeppnina sem fram fer í Iðnó klukkan 18 í kvöld þar sem góð verðlaun eru í boði. Nánari upplýsingar um dagskrána eru á jazz.is/festival. Birna Styff opnar sýningu Birna Styff opnar sýningu í Gallerí Tukt í Hinu húsinu við Pósthússtræti á sunnu- daginn. Sýningin opnar klukkan 14 og stendur til 18. Næstu tvær vikur er sýningin svo opin á opnunartíma Hins hússins. Öll verk á sýningunni eru til sölu. Vín og list „Við reyndum að finna verk sem okkur fannst passa við þessar víntegundir.“ Listamaðurinn og léttvínin Verk eftir Kristínu prýða nú miðana á austurrísku léttvíni frá Hubert sandhofer.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.