Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2008, Side 62

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2008, Side 62
Helgarblað DVföstudagur 29. ágúst 200862 Platan Esja með sam- nefndri hljómsveit. svöl plata frá ljúfum töffurum. mælir með... n SPÚTNIK Á PLAYERS Hljómsveitin spútnik mætir á Players á föstudagskvöld og ætla að gera allt vitlaust. Þegar hljómsveitin byrjaði árið 1999 voru þeir voða rólegir en strax um haustið 2000 settu þeir í annan gír og hafa ekki stoppað síðan. strákarnir í spútnik spila allt frá völsum og hringdönsum, gömlu rokkabillyi og og bítlarokki uppí popp, rokk og diskó. Því ættu allir að geta dillað sér við þá tónlist sem þeim þykir skemmtilegust. n BRYNJAR MÁR Á CAFÉ OLIVER dj Brynjar Már mætir á Café Oliver og þeytir skífur langt fram undir morgun. Þegar Brynjar Már mætir í búrið er voðinn vís og fólk dansar þar til ljósin eru kveikt. gott væri að taka dansgallann og dansskóna fram og byrja að undirbúa sig fyrir skemmtunina. dj Brynjar Már blandar saman eldri og nýrri tónlist dansunnend- um til mikillar gleði. n DALTON Í SANDGERÐI Haldnir verða sandgerðisdagar um helgina og er það síðasta bæjarhátíðin sem haldin verður í sumar. dalton-bræður halda tónleika í sandgerði í tilefni gleðinnar. tónleikarnir verða utandyra og hefjast þeir klukkan tíu. strákarnir hafa gert rosalega góða hluti í sumar á hinum ýmsum hátíðum og skemmtunum og lofa þeir góðu fjöri á sandgerðisdögunum n HEIÐUR Á PRIMO Óli geir, umdeildasti herra Íslands fyrr og síðar, er orðinn skemmtanastjóri á skemmtistaðnum Primo í Keflavík. dagskráin fyrir næstu helgar er tilbúin og má búast við miklu fjöri í Keflavík á næstunni. á föstudagskvöldið mætir Heiður í búrið klukkan ellefu og heldur uppi stemmingu langt fram á rauða nótt. Þeir sem eru búsettir suður með sjó ættu ekki að láta þennan stað framhjá sér fara. n FRANZ OG KRISTÓ Á PRIKINU á Prikinu á föstudagskvöldið verða þeir franz og Kristó með „surprise“-kvöld. stemmingin á Prikinu þegar þeir mæta saman er alveg ólýsanleg og dansar fólk þar til ljósin eru kveikt. skemmtistaður- inn Prikið er ekki stærsti staðurinn í reykjavík en fólk lætur það ekki stoppa sig og dansar þar sem það er. aldurstak- markið á Prikið er tuttugu ár og má sjá allar gerðir fólks skemmta sér konunglega langt fram eftir nóttu. n SKÍTAMÓRALL Í SJALLANUM um helgina ætlar skítamórall að gera allt vitlaust í sjallanum á akureyri. Það er orðið gríðalega langt síðan hljómsveitin mætti norður og því eiga allir unnendur hennar eftir að láta sjá sig. Hljómsveitin tók sér góða pásu og fóru strákarnir að sinna sínum málum á meðan. En nú eru þeir samein- að- ir á ný og eru funheitir um þessar mundir. Húsið opnar klukkan tólf og ballið stendur til klukkan fjögur. Miðaverð er átján hundruð krónur en tvö þúsund við innganginn. n SÁLIN HANS JÓNS MÍNS Á 800BAR sálin hefur verið að gera góða hluti í sumar og ferðast á milli staða helgi eftir helgi. Nú um helgina mæta þeir á selfoss og ætla að halda uppi stemming- unni þar eins og þeim einum er lag- ið. sálin hefur verið að vinna að nýrri safnplötu sem er væntanleg í búðir í október. aldurstak- markið inná 800bar á selfossi er átján ára. Hver kannast ekki við að dilla sér við lög á borð við sódóma eða Orginal með sálinni. n SIRKUS AGORA Á AKUREYRI fjölleikahúsið sirkus agora er komið til landsins með hundrað og fimmtíu metra langa vagnalest og ferðast um landið og setur upp sýningar á tíu stöðum. sirkusinn hefur ferðast um Noreg í allt sumar. Hér er um að ræða frábæra fjölskylduskemmtun og er þetta einstakt tækifæri fyrir fólk á Íslandi til að sjá alvöru sirkus á Íslandi. sýningin verður á akureyrarvöku klukkan fimm á flötinni fyrir framan samkomuhúsið. n DJ ANNA BRÁ OG DJ RIKKI G Á SÓLON dansstemming verður á sólon á laugardagskvöld- ið þegar plötusnúð- arnir anna Brá og rikki g mæta á svæðið. skemmtistaðurinn sólon er á tveimur hæð- um og munu anna Brá og rikki g skipta hæðunum á milli sín. greiddu hárið upp og skelltu þér í þægileg- ustu skóna, komdu þér í dansgírinn og mættu á sólon. aldurstakmark er tuttugu og tvö ár og er frítt inn. n VON Á GAMLA BAUK Hljómsveitin Von mun halda ball á gamla Bauk á Húsavík í kvöld. Hljómsveitin er hálf-húsvísk og má búast við rosalega góðu balli með þeim á Húsavík. strákarnir í Von gáfu út nýja plötu í sumar og hefur hún selst eins og heitar lummur. Hljómsveitin spilar tónlist sem allir ættu að skemmta sér við, því lagavalið hjá þeim er mjög fjölbreytt. n Í TÚNINU HEIMA BÆJARHÁTÍÐ MOSFELLSBÆJ- AR Bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima, verður haldin hátíðleg um helgina. Margt verður að gerast á hátíðinni og meðal dagskrár- liða er á laugardagskvöldið frá klukkan hálf níu til hálf ellefu verða stórtónleikar á torginu við Kjarna. Þeir sem koma fram á tónleikunum eru simmi og auddi, Hreindís og Þórunn, hljómsveitin Buff, raggi Bjarna, Ingó úr Idolinu, sigga Beinteins og Bryndís ásmunds með tinu turner og gunni og felix. FöSTUDAGUR LAUGARDAGUR Hvaðeraðgerast mælir ekki með... American Style á Bíldshöfða. Þriðja flokks sjoppufæði. Myndin Get Smart grín á borð við austin Powers nema nokkrum flokkum neðar í gæðum. N ýt t í b íó TROPIC THUNDER Leikstjóri: Ben stiller Aðahlutverk: Ben stiller, Jack Black, Nick Nolte, robert downey Jr., steve Coogan, Jay Baruchel og Bill Hader. tropic thunder fjallar um hóp af mjög sjálfselsk- um leikurum sem eru sendir út í frumskóg til að framleiða dýrustu stríðsmynd sem gerð hefur verið. Eftir að kostnaður við myndina fer úr böndunumog neyðir framleiðendurnar til að hætta við gerð hennar neitar þrjóskur leikstjóri myndarinnar að hætta tökum. IMDb: 7.9/10 Rottentomatoes: 83/100% Metacritic: 71/100 HHHHH HHHHH HHHHH Myndin Tropic Thunder sterk heild. Ben stiller leiðir úrvalslið leikara í gegnum fáránlega fyndið Víet- nam-grín. HHHHH Reykjavík Pizza Company á Laugaveginum Eldbakaðar pítsur klikka seint. HHHHH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.