Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Side 14
Föstudagur 12. september 200814 Helgarblað
Töfraráð gegn flensunni
Kvef og flensur herja nú á
marga landsmenn. Fólk leggst í
bæli og liggur dreymandi um að
fá að komast á fætur aftur. Sum-
ir nota til þess allar aðferðirnar
í bókinni. Það eru til margar
goðsagnir um lækninga-
mátt og aðferðir til að forð-
ast flensuna en það eru þó
nokkur atriði sem alltaf
má treysta á að geri gott.
DV tók saman það helsta
sem banar flensunni
áður en hún nær í
skottið á þér.
Glutathione
Nýlegar rannsóknir benda til þess að
þeir sem neyta glutathiones hafa færri
veirur í líkamanum en aðrir. Þetta er
andoxunarefni sem finna má í öllu kjöti,
flestu grænmeti og ávöxtum. meðal
annars hefur verið mælt með þessu á
doktor.is og er hægt að fá vítamínið í
flestum heilsu- og matvöruverslunum.
Ætihvönn
Ætihvönn eða angelinca á sér merka
sögu að baki og hefur verið notuð á
Íslandi í áraraðir. Hún eykur þrek og
kjark, dregur úr streitu og vægu
þunglyndi auk þess sem hún styrkir
forvarnir gegn kvefi og flensu. Hún er tal-
in sérstaklega góð fyrir þá sem eru að ná
sér upp úr veikindum. Fæst í apótekum í
vökva- og brjóstsykursformi.
Blóðberg
blóðbergið er mest notað gegn flensu
og kvefi, sérstaklega lungnakvefi og
öðrum lungnasjúkdómum þar sem þarf
að eyða sýklum og losa um slím.
blóðberg er einnig mjög gott við
ýmsum meltingarsjúkdómum eins og
maga- og garnabólgu. sterkt te af
jurtinni, drukkið fjórum til sex sinnum á
dag, 2 til 3 daga í senn virkar vel.
Kjúklingasúpa
Kjúklingasúpa hefur verið kölluð
náttúrulegt pensilín og lengi verið sögð
allra meina bót. Heit kjúklingasúpa
hreinsar stíflaðan öndunarveg og
sökum mikilla næringarefna hleður hún
líkamann af orku. setja skal mikið af
grænmeti, lauk og hvítlauk í súpuna til
að fylla hana af aukanæringu.
Kryddaður matur
Kryddaður matur, sérstaklega
kryddaður með hvítlauk og chilli, losar
um stíflur. radísur eru einnig taldar
góðar. Indverskir réttir og mexíkóskir
eru oft uppfullir af sterkum kryddum
sem talin eru góð. má nefna cayenne-
pipar og engifer ásamt framantöldu.
Hvítlaukur
Hvítlauksneysla styrkir ónæmiskerfið
. margt bendir til að hann hafi einnig
vírusdrepandi áhrif og er því tilvalinn í
baráttunni gegn kvefi og inflúensu. Hann
er mjög virkur gegn eyrnabólgum. Hægt
er að fá hvítlauk í hylkjum en einnig er
hægt að borða hann ferskan eða í mat.
Þeir sem vilja forðast lyktina ættu að
borða steinselju með.