Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Page 16
föstudagur 19. desember 200816 Fréttir Geimferðastofnun Bandaríkjanna, Nasa, hefur tilkynnt að geimskutl- ur stofnunarinnar verði seldar þeg- ar hætt verður að fljúga þeim árið 2010. Verðið verður ívið hærra en hinn venjulegi meðaljón mun ráða við, eða 42 milljónir bandaríkja- dala stykkið. Sú upphæð samsvarar tæpum fimm milljörðum íslenskra króna. Inni í verðinu er kostnaður við að fjarlægja eiturefni og önnur hættuleg efni úr skutlunum, búa þær undir ferðalag og flug til flugvallar að vali kaupanda. Sá kostnaður er tal- inn verða um sex milljónir banda- ríkjadala að lágmarki, eða um 670 milljónir íslenskra króna. Geimferðastofnunin þarfnast sár- lega fjármagns vegna næstu kynslóð- ar Ares-geimskutla sem reiknað er með að flytji geimfara til tunglsins. Sala geimskutlanna hefði því í för með sér mikla búbót til stofnunarinnar Ekki er sjálfgefið að auðugir ein- staklingar geti komið ástvini sínum á óvart á jólunum með innpakk- aðri geimskutlu. Geimferðastofnun- in hyggst ekki selja geimskutlurnar hverjum sem er, enda um ríkisfyrir- tæki að ræða. Hingað til hefur stofn- unin eingöngu leitað hófanna hjá menntastofnunum, vísindasöfnum og „öðrum viðeigandi stofnunum“. Ferjurnar, Discovery, Atlantis og Endeavour, hafa farið samtals áttatíu og sex ferðir út í geim síðan 1984. Tvær af þremur Reyndar er ekki ráðgert að selja nema tvær geimskutlanna og fyrirhugað að sú þriðja verði áfram í forsjá hins op- inbera. Hugsanlega yrði hún höfð til sýnis í Washington. En böggull fylgir skammrifi því eingöngu bandarískir þegnar eiga möguleika á að eignast gripina og sýna. Flaugarnar verða með öllum út- búnaði sem nauðsynlegur er flugi út í geim, öðrum en aðalvélunum. Áhugasamir verða að lofa að skutl- urnar verði til sýnis innandyra við stöðugt hitastig. Aðalvélar geimskutl- anna, sex talsins, verða seldar hver í sínu lagi og mun hver vél kosta um átta hundruð þúsund bandaríkjadali, eða rúmlega níutíu milljónir króna, auk sendingarkostnaðar. Geimferða- stofnunin hefur fyrir gefið sögulega mikilvæga hluti tengda geimferðum. Reiknað er með að lagt verði upp í síðustu förina í september 2010, en reiknað er með að þá verði lokið smíði alþjóðlegrar geimstöðvar. Verð- andi forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, hefur skipað hóp til að meta möguleikana á áframhaldandi geim- ferðum eftir þann dag til að brúa bil- ið þar til áætluð ferð Orion- og Ares- geimfaranna fer fram árið 2015. Geimskutla til sölu Geimferðastofnun Bandaríkjanna hyggst selja geimskutlur sínar að lokinni síðustu ferð 2010. Áhugasamir kaupendur verða að vera bandarískir ríkisborgarar, auk þess sem ýmsar aðrar kvaðir fylgja viðskiptunum. Geimskutlurnar eru þrjár talsins og hafa farið samtals áttatíu og sex ferðir út í geim síðan 1984. Það má teljast kostur að um einn eiganda er að ræða. Kolbeinn þorsTeinsson blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Ekki er sjálfgefið að auðugir einstakling- ar geti komið ástvini sínum á óvart á jólun- um með innpakkaðri geimskutlu. Discovery-geimskutlan Nýr eigandi mun ekki taka flugið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.