Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Blaðsíða 40
föstudagur 19. desember 200840 Helgarblað Það var ekkert fram undan hjá Latabæ sem var fast í hendi,“ segir stórleikarinn Stefán Karl Stefánsson sem nýlega kvaddi Latabæ þar sem hann hefur farið mikinn í hlutverki Glanna Glæps og gerir enn, en sjónvarps- þátturinn er sýndur í ríflega hundr- að löndum. „Það að vera samnings- bundinn í Latabæ gerði það líka að verkum að ég átti engan séns í önnur verkefni á meðan ég var bundinn þar þannig að það má segja að það hafi verið kominn tími til að opna nýj- ar dyr.“ Stefán segist fyrst og fremst vera leikhúsleikari en að nú hafi hann verið jafnlengi í sjónvarpi og hann hafði áður verið á sviði og því hafi hugurinn verið farinn að leita á aftur á sviðið. Sá draumur hefur nú heldur betur ræst því þessa dagana leikur Stefán að lágmarki þréttán sýningar á viku, fyrst í Baltimore og nú í desember í Boston. Þar fer hann með hlutverk „Grinch“ ,eins og áður sagði, eða Trölla eins og við Íslend- ingar þekkjum hann Líður best á sviði „Mér hefur aldrei liðið betur,“ seg- ir Stefán þegar hann er beðinn um að lýsa tilfinningunni sem fylgir því að vera kominn aftur á svið. „Þarna líður mér best.“ En þrettán sýning- ar á viku hljóma einstaklega mikið þá sérstaklega með búninginn sem Stefán skartar í sýningunni í huga, en búningurinn sá er ekki af minni gerðinni. „Jú, þetta er mikið álag, en það er hugsað alveg rosalega vel um mig. Ég er með þrjár aðstoðarmann- eskjur sem fylgja mér eins og skugg- inn á meðan á sýningunni stendur, eina sem þurrkar svitann, aðra sem passar að ég fái nógan vökva á með- an sú þriðja sér um að greiða hárin á búningnum. Á milli sýninga fer ég svo í heil nudd og æfi undir stjórn þjálfara, því að já, það er óhætt að segja að þessi sýning krefjist þess að ég sé í góðu líkamlegu formi.“ Stefán vill ekki meina að um neina stjörnu- meðferð sér að ræða. „Hér er ein- faldlega hugsað um fólk eins og á að hugsa um fólk sem vinnur svona vinnu.“ Stefán segir blaðamanni til gam- ans að eitt sinn hafi hitinn í bún- ingnum verið mældur og hafi hann mælst hvorki meira né minna en tæpar fimmtíu gráður. „Þegar maður er að sýna fyrir framan 3.400 manns sem allir virðast skemmta sér kon- unglega gefur það manni mikla orku og aðstæðurnar gleymast fljótt.“ Líkt við stórstjörnu Þetta er annað hlutverk Stefáns í röð þar sem hann leikur litríkan karakter og skartar miklu gervi. Hann segist alveg gera sér grein fyrir því að þetta sé hans sterka hlið, en þrátt fyrir það óttast hann það ekki að festast alfar- ið í hlutverkum sem þessum. Stefán segir þó mikinn mun á þeim Glanna Glæp og Grinch sem hann leikur nú. „Glanna skapaði ég alveg frá grunni á meðan Grinch er byggður á mik- illi klassík og hefur verið leikinn ár eftir ár, meðal annars af sjálfum Jim Carrey en það þýðir ekki það að mað- ur þurfi að nálgast hlutverkið með einhverjum silkihönskum. Vissulega ber ég hæfilega mikla virðingu fyrir því sem áður hefur verið gert og fylgi settum leikreglum en svo fæ ég líka nokkuð frjálsar hendur.“ Stefán Karl hefur fengið frábæra dóma fyrir frammistöðu sína í hlut- verki Grinch og meðal annars komist á forsíður virtra blaða fyrir frammi- stöðu sína og verið í hinum ýmsu útvarpsviðtölum þar sem athyglin hefur ekki síst snúið að rödd hans. Hana notar Stefán svo um munar í sýningunni. „Þeir virðast hafa mik- inn áhuga á þessum Íslendingi,“ seg- ir Stefá hógvær. Stefáni hefur ítrek- að verið líkt við gamanleikarann Jim Carrey sem, eins og áður segir, hef- ur einnig farið með hlutverk Grinch. „Einn blaðamaðurinn gekk reynd- ar svo langt að segja að Jim Carrey væri hinn ameríski Stefán Karl og það þótti mér gaman að heyra. Jim Carrey er einn af mínum uppáhalds- gamanleikurum og ekki leiðum að líkjast. Kostnaðarsamt ævintýri Farir Stefáns hafa þó ekki verið slétt- ar og felldar í hinni stóru Ameríku og er óhætt að segja að það hafi kostað hann og fjölskyldu hans blóð, svita og tár að láta drauminn rætast. „Ég get ekki annað en brosað út í ann- að því þetta hefur oft verið hálfgert kreppulíf hjá okkur, svona svipað og hjá íslensku þjóðinni núna, en við erum bjartsýn og höldum ótrauð áfram.“ Stefán segir það gríðarlega kostnaðarsamt og kosti mikið áræði að flytjast búferlum með svo stóra fjölskyldu, en alls eiga þau hjónin fjögur börn. „Við höfum gert þetta sjálf með hjálp okkar nánustu, við höfum ekki notið aðstoðar íslenskra auðmanna, sem hafa safnað í kring- um sig hirð listamanna, eða gert þetta á obinberum styrkjum og því er ég með góða samvisku. Ég veit að minnsta kosti að mín útrás mun ekki hafa áhrif á skattbyrði íslensku þjóð- arinnar,“ segir Stefán sem búsettur er í Kaliforníu með fjölskyldu sinni. Stefán bendir einnig á þá stað- reynd að til þess að geta farið út í svona ævintýri þurfi maður helst að hafa atvinnuleyfi. „Það er alveg til í dæminu að þú getir fengið tíma- bundið atvinnuleyfi til styttri tíma en er að verða æ sjaldgæfara.“ Hörð barátta um græna kortið Til stóð að Stefán Karl tæki hlutverk Grinch að sér seint á síðastliðnu ári, en ekkert varð af því þar sem Stefán var hvorki í leikarafélaginu né með græna kortið. Og til að komast inn í leikarafélagið er nauðsynlegt að hafa græna kortið. Stefán fór því af fullum krafti í að berjast fyrir græna kortinu og eftir langa og harða bar- áttu tókst þeim Stefáni og Stein- unni loksins að öðlast hið mikilvæga græna kort en það gerðist aðeins nú fyrir stuttu. Einnig náði Stefán þeim merka áfanga að komast inn í leik- arafélagið og er því gjaldgengur í hvaða Broadway-uppfærslu sem er í Bandaríkjunum. „Þetta kostaði mikla vinnu og mikla peninga en gerir það að verk- um að nú hef ég tök á að vinna við þetta fag hérna úti. Ég er eini Íslendingurinn sem hefur komist inn í leikarafélag- ið og er afar stoltur af því. En til að fá inngöngu þarf maður einnig að sam- þykkja að vinna samkvæmt reglum félagsins og taka þátt í Broadway- uppfærslu en það er einmitt það sem ég er að gera þessa dagana,“ segir Stefán stoltur, enda búið að taka öll fjögur árin sem þau hafa verið búsett úti að koma hlutunum í rétt horf. Heppni getur ekki varað endalaust Þegar Stefán rifjar upp upphaf þessa ævintýris segir hann tilfinninguna við komuna til Bandaríkjanna hafa verið svipaða og þegar hann útskrif- aðist úr menntaskóla og var að hefja lífið. „Við þurftum að byrja algjörlega upp á nýtt. Heima vorum við bæði í „Einn blaðamaðurinn gekk reyndar svo langt að segja að Jim Carrey væri hinn ameríski Stefán Karl og það þótti mér gaman að heyra. Jim Carrey er einn af mínum uppáhaldsleikurum og ég myndi aldrei reyna að fara í skóna hans, enda gerir það enginn.“ Grinchí öllu sínu veldi stefán klæðist eins og sjá má íburðarmiklum búningi í sýningunni. Hitinn í búningnum hefur náð tæpum fimmtíu gráðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.