Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Síða 35
HÍ verður að forgangsraða sjálfur og hliðra til hjá sér. Það er hluti af mínu starfi að ég verð að hagræða með markvissum hætti. En það er rétt að geta þess að fjárframlög til mennta- kerfisins verða meiri en árið 2008 en minni ef miðað er við frumvarpið fyrir árið 2009. Þess má geta að við höfum eflt samkeppnissjóðina sem allir háskólar sækja í, þeim er hlíft. Mér persónulega finnst raunhæfara að byggja upp og tel að við þorum virkilega að horfa fram í tímann ef við hlífum menntamálum við niður- skurði og hef haldið þessu á lofti. Ég hefði viljað sjá enn frekari stuðning við þessi sjónarmið. En það er eins og til dæmis Göran Persson hefur sagt að Svíar tókust á við sína efna- hagskreppu með því að fara í mjög sársaukafullar aðgerðir á öllum sviðum samfélagsins. Þar var engu hlíft samkvæmt Persson. Og mín mál, hér í menntamálaráðuneytinu, eru ekki undanþegin þessu. En við munum ná okkur fyrr út úr þessu.“ Hvernig er hægt að koma til móts við atvinnulaust fólk sem vill fara í nám en hefur ekki stúdentspróf og ekki rétt á láni frá LÍN? „Það er starfshópur sem mun sérstaklega taka á þessum mál- um. Framhaldsskólar verða að geta þjappað og komið fleira fólki þar inn. Ég var að leggja frumvarp fram núna um framhaldsfræðslu. Og þar undir- strikum við raunfærnimatið, en það þýðir að hægt verður að meta þátt- töku fólks í atvinnulífinu inn í skóla- kerfið. Ákveðin iðnmenntun sem er í boði er líka lánshæf. Og ég ráðlegg fólki að sækja inn í framhaldsskóla og fá metið við hvað það hefur starf- að. Tökum dæmi: Einstæð móðir um þrítugt sem á eins til tveggja ára framhaldskólanám að baki, mun á grundvelli nýja frumvarpsins fá starfsreynslu sína metna til eininga. Háskólar hafa auk þess heimild til að meta aldur og starfsreynslu inn í skólana þó að umsækjandi hafi ekki stúdentspróf. Háskólinn á Akureyri hefur gert þetta til dæmis gagnvart konum sem hafa starfað á leikskól- um og sækja inn í slíkt nám. Kerf- ið verður að bjóða upp á þennan sveigjanleika þótt stúdentsprófið sé að sjálfsögðu meginreglan. Við erum að sækja í okkur veðrið hvað þetta varðar.“ Hverju spáirðu um ástandið í janú- ar? „Samfélagið heldur áfram en það verður atvinnuleysi. Við erum þó að reyna að verja ýmsi mannafls- frek verkefni eins og til dæmis tón- listar- og ráðstefnuhúsið. En bygg- ing þess og framkvæmdin öll mun skapa fjölda atvinnutækifæra fyr- ir fjöldann allan af minni fyrirtækj- um. Það sama gildir um til dæm- is stækkun á álverinu í Straumsvík sem mun skapa um 300 störf í 2 ár. Og við verðum að gera þetta.“ Verðum að halda fyrirtækjum á lífi Hafið þið ekki fleiri atvinnuskapandi lausnir? „Jú, við munum fara að stað með sprotafyrirtæki og aukin menntun- artækifæri. Ferðaþjónustan er vax- andi vegna gengis krónunnar. Við erum að endurræsa allt kerfið og það út af fyrir sig kostar ákveðinn kraft og kallar á störf. Samgöngu- verkefni eins og brúarbyggingar eru atvinnuskapandi. Allt í sambandi við háskólana og rannsóknasetur er atvinnuskapandi. Kvikmyndabrans- inn er ativnnuskapandi og hann þykir aðlaðandi kostur fyrir útlend- inga sem sækja hingað. Ekki bara vegna krónunnar heldur vegna þess að umhverið hér er gott, við erum fljót að vinna úr hlutum og James Bond- og Clint Estwood-fólkið segir að hér sé snerpa og við úrræðasöm. Við þurfum að halda í þessi tækifæri og muna að kvikmyndagerð er at- vinnuskapandi. Sjávarútvegur er okkar undir- stöðuatvinnugrein og það er verið að tala um áframhaldandi hvalveið- ar fyrst það er markaður fyrir hval- kjöt, það mun skapa atvinnu. Úr- bætur og viðhald í húsnæði í eigu hins opinbera kostar mikinn mann- afla. Ég vonast til að peningar verði settir í það. Nú er staðreyndin sú að það er bæði ófaglært og háskólamennt- að fólk atvinnulaust og það skiptir öllu máli að við komum fjármálalíf- inu af stað aftur. Fjármálalífið krefst mannafla. Höktið má ekki vera mik- ið lengur. Mannaflsfrek verkefni eru mikilvæg en aðalatriðið er að um- hverfi fyrirtækja verði lífvænlegt. Mestu máli skiptir að þau haldi lífi.“ Einkalífið og þöggun? Hvað segirðu um þann orðróm að þegar þú byrjaðir að gagnrýna yfir- stjórn Seðlabankans hafi skyndilega verið farið að fjalla um fjármál ykk- ar hjóna og laun Kristjáns Arason- ar. Getur verið að ykkar persónulegu fjármál hafi verið dregin inn í sviðs- ljósið til að þagga niður í þér? „Ég trúi ekki að fólk sé svo út- smogið og illa innrætt. Ég tek já- kvæðu hliðina á þetta. Trúi því ekki að það sé neitt til í þessu og nenni ekki að eyða kröftunum í það.“ Áttu von á því að hart verði barist um embætti varaformanns Sjálfstæðis- flokksins á næsta landsfundi og karl- menn sækist eftir sæti þínu? „Þá gerist það bara. Ég er ánægð með að það er margt fólk í flokknum sem getur verið varafomenn. Bjarni Benediktsson og Guðlaugur Þór eru duglegir og mikill sómi að hafa þá í framlínunni. Það gerist bara sem gerist. Ég vona að kraftur landsfund- arins fari í að móta stefnuna í utan- ríkismálum. En þegar vangaveltur eru í gangi um hin og þessi framboð sýnir það heilbrigðan metnað fólks og flokkurinn heldur áfram. En það eru ekki allir viðhlæjendur vinir. Ég er enginn spámaður og veit ekki hvað verður. Í vor hefði ég aldrei getað spáð fyrir um hrunið.“ Styð Geir Sumir vilja sá þig sem næsta formann flokksins. „Sá sem er varaformaður er allt- af til í að taka við af formanni. En ég vonast til þess að Geir Haarde verði karlinn í brúnni um langan tíma. Við munum komast í gegnum þetta og þá mun fólk sjá að rósemi hans og þekking var góð. Meðan Geir er til staðar mun ég aldrei sækjast eftir stöðu formannsins. Ég styð Geir, svo einfalt er það. Við vinnum vel sam- an og ég býð mig fram sem varafor- mann á næsta landsfundi. Munum að það á enginn neitt í pólitík og tíminn leiðir í ljós hvað verður og ávallt þarf að hafa í huga fyrir hverja maður er að vinna.“ Stendur ekki á mér Tíminn er að hlaupa frá okkur og næstu fundir og verkefni í mennta- málaráðuneytinu eru að byrja. En við höfum ekkert komist yfir að ræða um Ríkisútvarpið. Eitthvað um það að lokum? „Ég vil gott Ríkisútvarp en á sama tíma fjölbreytni á fjölmiðlamark- aði. Staðan er erfið þegar RúV hefur þetta umfangsmikla hlutverk á aug- lýsingamarkaði. Það væri slæmt ef miðlar eins og Skjárinn hættu vegna þessa. Nú hafa menn bent á að setja fyrst lög um eignarhaldið en rétt að ítreka að við reyndum að koma slík- um lögum um dreift eignarhald á fölmiðlamarkaði. Það fékkst ekki í gegn. Það mun ekki standa á mér í þessum efnum. Veljum íslenskt Hvernig verða jólin hjá þér og fjöl- skyldu þinni? „Jólin verða hefðbundin. Það verða rjúpur og það verður örugg- lega mikið skraut eins og alltaf hjá okkur. En fyrst og fremst einkenn- ast jólin af mikilli hlýju og þrátt fyrir ærslaganginn er einhver innri ró og jólin verða góð. Við vitum að það er ekki endilega gjöfin undir trénu sem er mikilvægust heldur er það allt í kringum börnin sem skiptir máli. Og góður tími með fjölskyldunni, ekki síst stjórfjjölskyldunni, er það mikilvægasta. Nú eru allir að tala um að velja íslenskt. Fólk vill versla hérna heima núna. Það er gott að sjá þessa samheldni landsmanna. Allt dugur í okkur Íslendingum. Og við bjóðum upp á heimagert kon- fekt eða íslenskt konfekt í ár. Það er gaman að þessari íslensku áherslu, hún er dæmi um að það kemur eitt- hvað gott út úr þessu ástandi þegar við höfum unnið okkur upp úr erf- iðleikunum.“ föstudagur 19. desember 2008 35Helgarblað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.