Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Blaðsíða 41
föstudagur 19. desember 2008 41Helgarblað
fremstu víglínu í okkar fagi og vor-
um þar af leiðandi í þeirri stöðu að
geta sagt já og nei við þeim verkefn-
um sem okkur voru boðin og okk-
ur skorti aldrei verkefni. Það er ekki
hægt að segja að atvinnutilboðin hafi
hangið á trjánum þegar við mættum
hingað.“ En þrátt fyrir mikla baráttu
telur Stefán sig búinn að vera ein-
staklega heppinn. „Eftir að ég út-
skrifaðist úr leiklistarnáminu heima
var mér séð fyrir öruggri vinnu í leik-
húsunum. Þaðan fór ég svo beint í
Latabæ og nú er ég að leika á sviði í
Bandaríkjunum. Margir af mínum
draumum hafa ræst og ég vona að ég
fái tækifæri til að vinna við þetta starf
áfram hér í Bandaríkjunum.
Grinch aftur að ári
Að Grinch-uppfærslunni lokinni í
lok þessa árs stefnir Stefán að því að
taka sér nokkurra daga frí með fjöl-
skyldunni sem nú dvelur hjá hon-
um í Boston þar sem sýningin fer
fram en að því loknu heldur hann til
New York og mun dvelja þar í þrjár
vikur. „Það er ýmislegt sem liggur á
borðinu sem verður tekið til skoð-
unuar. Ég er með umboðsmann og
lögfræðing sem fara yfir þessi mál
mín, enda skiptir gífurlegu máli
að maður taki ekki bara eitt-
hvað að sér. Loksins þegar mað-
ur er orðinn gjaldgengur opnast
manni nýir heimar. Það eru því
vonandi spennandi tímar fram
undan, þrátt fyrir samdrátt í þessu
fagi eins og flestum öðrum.“ Einn-
ig stendur Stefáni til boða að leika
Grinch, sem hann hefur gert svo ve,
aftur að ári. „Það er frábært boð og
ég sé ekki af hverju ég ætti ekki að
gera það.“
Spurður hvort hugur hans leiti
ekki til Hollywood segir Stefán
að fyrir sér snúist þetta
einfaldlega um tæki-
færin. „Það kitlar
mig fyrst og fremst
að fá stórt og flott
tækifæri, hvort sem það
er í Hollywood, sjónvarpi
eða á sviði.“
Nýtir athyglina til góðs
Nýlega var opnuð aðdáendasíða
Stefáns og þótti mörgum orðið tíma-
bært. „Ég hugsaði líklega ekki mikið
út fyrir þennan íslenska
ramma
þar sem allt
er svo lítið og all-
ir þekkja alla en það
má ekki gleyma því
að heimurinn er stór
og að Latibær á sér gríð-
arlega marga aðdáend-
ur og núna Grinch. Það
hefur aldrei verið sama-
staður fyrir þessa aðdá-
endur mína en nú má
finna hann á heima-
síðunni www.stefank-
arlfanclub.com.“ Stef-
án hyggst nýta sér þá
athygli sem hann hefur
hlotið til að opna augu
fólks enn frekar fyrir því
alheimsvandamáli sem
einelti er en sú barátta hefur ver-
ið Stefáni einkar hugleikin. En
eins og margur veit hefur Stefán
unnið mikið í íslenska skólakerfinu
í gegnum samtökin Regnbogabörn
en samtökin standa einmitt fyrir bar-
áttu í þágu þeirra sem hafa orðið fyr-
ir einelti. Sjálfur lenti Stefán í þeirri
erfiðu lífsreynslu að verða fyrir ein-
elti og hefur honum tekist að nota
þá reynslu til góðs og miðlað henni
til barna á öllum aldri. Stefán segist
hvergi hættur að sinna vinnu sinni
fyrir samtökin og stefnir nú að því
að hefja sams konar starf í Banda-
ríkjunum. „Ástæðan fyrir því að ég
samþykkti þessa aðdáendasíðu er
einmitt mökuleikinn á að geta nýtt
hana til góðgerðamála og hvet ég alla
Íslendinga til að skrá sig og ljá mál-
efninu stuðning.“
Ekkert heim að
sækja
Aðspurður hvort eða
hvenær hann sjái fyrir
sér að fjölskyldan snúi
heim á ný er hann fljót-
ur til svars. „Það er ekk-
ert heim að sækja, nema
samveru við ættingja
og vini, en sem bet-
ur fer hefur fólk ver-
ið reglulega dug-
legt að sækja okkur
heim. Hér er okkar
líf og okkar heimili.
Vissulega söknum
við ákveðins hluta
af Íslandi. Ísland
er, eins og við vit-
um, „stórasta land
í heimi“, sem er
nú eitthvað það
gáfulegasta sem
hefur komið
frá Bessastöð-
um í háa herr-
ans tíð.“ Stefán
segist ekki geta
borið Ísland sam-
an við Bandarík-
in að nokkru leyti.
„Þessi lönd eru einfaldlega ekki sam-
anburðarhæf, vegna stærðarmis-
munarins.“ Spurður út í fjöl-
skyldulífið segir hann það ganga
vel og að börnunum líði ákaf-
lega vel. „Hér eru skólarnir jafn-
misjafnir og þeir eru margir en
hér er almennt lagt mikið upp
úr aga á meðan það ríkir tölu-
vert agaleysi heima, að mínu
mati. Hér úti er aginn sjálfsagð-
ur á meðan hann byggist meira
á hverjum og einum kennara
heima. Þar snýst þetta allt um
heppni, hversu góðan kennara
börnin manns fá. En þrátt fyrir ag-
ann í skólakerfinu getur verið mjög
flókið að ala upp börn í Bandaríkj-
unum og sem dæmi má nefna eru
þau ekki hluti af eins góðu og niður-
greiddu heilbrigðiskerfi og heima.“
Stefán heldur áfram umræð-
unni um hversu ólíkt það sé að búa
í Bandaríkjunum og á Íslandi. „Hér
lítur þú ekki af börnunum þínum á
meðan þú setur lykil um hálsinn á
þeim heima og veist ekki af þeim fyrr
en seinnipart dags. Hér sendir þú
börnin þín ekki til vina yfir nótt nema
að vera búinn að rannskaka heimilið
vel. Þú skilur ekki bílinn eftir í gangi
fyrir utan vídeóleiguna með barnið
í bílnum. Hér er mikið eftirlit með
börnum í skólum og ekki síður for-
eldrum og heimilisaðstæðum . „Það
er frábært, að mínum mati. Þeir sem
hafa ekki tök á að hugsa um börn-
in sín eiga ekki að hafa þau í sinni
umsjá. Ástæðurnar geta verið marg-
ar, samanber veikindi, alkólisma og
vanhirðu, börn eiga ekki að líða fyr-
ir slíkt,“ segir Stefán, en eins og heyra
má hefur hann sterkar skoðanir á
börnum og barnauppeldi.
Hið veraldlega hefur hrunið
Og það er fleira sem Stefán bendir
á varðandi börnin. „Ég sagði alltaf á
mínum fyrirlestrum heima á Íslandi
og ég fer ekki ofan af því að, að mínu
mati, hefur hið andlega algjörlega
vikið fyrir því veraldlega. Nú hefur
það veraldlega algjörlega fallið og
hrunið yfir okkur og þá stendur ekk-
ert eftir annað en það andlega. Höf-
um við verið nógu dugleg að vinna í
andlegu hliðinni á börnunum okkar
og hversu vel erum við í stakk búin til
að setjast niður með þeim og kenna
þeim takast á við þá erfiðleika sem
við göngum nú í gegnum? Sum börn
hafa aldrei upplifað það að síminn
sé lokaður, eða að ekki sé farið til út-
landa á hverju sumri, nú, eða pabbi
eða mamma missi vinnuna. Hvernig
ætlum við að takast á við þær spurn-
ingar sem á þeim brenna þegar lífs-
gæðin fara að minnka. Ef við ætlum
að skila þjóðfélaginu svona brotnu í
hendurnar á erfingjum okkar þá er
eins gott að við stöndum okkar plikt í
að styrkja þá andlega.“
Stefán segir fjölmiðla úti hafa
mikinn á huga á ástandinu heima
og að hann leggi mikið kapp á að
tala vel um sína þjóð. „Ég hef svo
mikla trú á Íslendingum þrátt fyr-
ir að hafa enga skoðun á stjórn-
málamönnunum. Mér finnst mik-
ið til þessarar litlu þjóðar koma, við
erum búin að byggja upp þessa litlu
eyðieyju með glæsibrag og hef trú á
að okkur muni takast að sigrast á
þessum erfiðleikum ef við gefum
ekkert eftir. Stjórnmálamenn hafa
alltaf verið að biðja um vinnufrið,
mér sýnist á öllu að við séum búin
að gefa þessu fólki allt of mikinn
frið. Nú gefum við þeim engin grið.
Nú verður almenningurinn, eins
og Íslendingar eru gjarnan kallaðir,
að rísa úr sætum, leggja niður störf
og berjast fyrir lífi okkar. Áfram Ís-
land,“ segir Stefán sem er auðheyri-
lega heitt í hamsi. Stefán segir þá
fjölmiðlamenn sem hann hefur
rætt við úti sýna ástandinu heima
mikla samúð, enda sjálfir hræddir
um eigið ástand.
Magnið umfram gæðin
Fram undan eru látlaus jól hjá Stef-
áni og Steinunni en, eins og fyrr seg-
ir, er fjölskyldan stödd í Boston um
þessar mundir. „Við keyptum pínu-
lítið og ódýrt jólatré og skelltum því
bara upp á borð. Leyfðum börnun-
um að föndra skrautið á tréð og suð-
um svo nokkrar kryddjurtir, eins og
negulnagla og kanil, til að fá jóla-
ilminn í loftið. Við ætlum ekki að
gefa börnunum stórar gjafir, enda
er miklu skemmtilegra að fá marga
litla pakka heldur en einn stóran
og dýran pakka þegar maður er lít-
ill. Þá gildir magnið fram yfir gæðin.
Að öðru leyti heldur fjölskyldan í ís-
lenskar hefðir og borðar jólamatinn
klukkan sex á aðfangadag.
Það er auðheyrt að forgangsröðin
er á hreinu hjá þessum unga en lífs-
reynda leikara sem á án efa framtíð-
ina fyrir sér. Við fylgjumst því spennt
með því hvað þessi efnilegi Íslend-
ingur tekur sér næst fyrir hendur.
„Ef við ætlum að skila þjóðfélaginu
svona brotnu í hendurnar á erfingj-
um okkar er eins gott að við stöndum
okkar plikt í að styrkja þá andlega.“
Glæsileg leikmynd sviðið er allt hið
glæsilegasta sem og búningarnir í
þessari vinsælu broadway-sýningu.
Þegar Trölli stal jólunum grinch
brallar eitt og annað skemmtilegt í
sýningunni sem sýnd er í viðurvist
3.400 gesta í hvert skipti.
Glanni Glæpur stefán
Karl hefur slegið í gegn í
hlutverki glanna glæps.