Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Side 66

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Side 66
Miklar vonir eru bundnar við her- kænskuleikinn Empire: Total War sem væntanlegur er á PC í mars 2009. Það er Sega sem gefur leikinn út en hönnuður hans er leikjafyrir- tækið Creative Assembly. Leikur- inn er sá fimmti í Total War-leikja- röðinni en hann gerist á 18. öldinni. Milli 1700 og 1800. Líkt og í öðrum svipuðum leikj- um er markmiðið að stofna heims- veldi í gegnum hernað, viðskipti, ríkiserindrekstur og með framþró- un tækni. Enginn þeirra hefur hins vegar lagt eins mikla áherslu á efna- hagsyfirburði, pólitík, trúmál og risastórar orustur þar sem hundr- uð hermanna lúta þinni stjórn. Líkt og í fyrri Total War-leikjum er boðið upp á svokallað „Real time battle“ þar sem spilandinn stjórnar bardögum en í Empire bætist við sá möguleiki að heyja „Real time“ bardaga á sjó líka. Í þessum sjóorustum er einn- ig hægt að senda hermenn sína yfir í skip óvinanna ef spilandinn vill taka það á sitt vald. Það er að segja ef þau standa af sér þrumandi fallbyssubar- daga. Í leiknum eru um 50 ríki sem voru áhrifamikil á þessum tíma. Þar má meðal annars nefna Bretland, Svíþjóð og Prússland. Hægt er að velja hvort spilað er í Evrópu, Ameríku eða hluta af Asíu. Það sem spilendur geta einnig nýtt sér til þess að ná lengra í leiknum er njósnir á óvinaþjóðum og launmorð. Það er því ljóst að spilendur þurfa enn meiri kænsku en áður til þess að ná langt í Total War. föstudagur 19. desember 200866 Tækni GTA á DS Nintendo hefur tilkynnt að grand theft auto: Chinatown Wars komi í mars á næsta ári. mikið hefur verið rætt hvaða aldurstakmark verður sett á leikinn en líklegt þykir að hann fái m fyrir mature í bandaríkjunum. talsmenn rockstar games segjast ekki hafa verið að gera gta-leik fyrir börn enda hafi Nintendo ekki farið fram á það. Það er spurning hvort leik- urinn fái hærra aldurstakmark því þó að umfang hans sé minna er enn verið að drepa fólk og stunda viðskipti með eiturlyf. GrAfin með GemSAnum um aldaraðir hefur það tíðkast meðal mannanna að þegar í gröfina er komið fylgir þeim eitthvað sem þeir hafa haft dálæti á í lífinu, til forna var sem dæmi uppáhaldshest- urinn eða hundur grafinn með húsbónda sínum. en tímarnir breytast og mennirnir með. Útfararstofur í London hafa upplýst að það sé sífellt algengara að fólk sem deyr undir fertugsaldri skilji eftir fyrirmæli um að gsm-síminn, lófatölvan eða iPod-inn fylgi því í gröfina. SAmSunG P3 er GullfAlleGur Það verður að viðurkennast að hinn nýi samsung P3 er gullfallegur og ætti að geta veitt iPod almennilega samkeppni. spilarinn kemur fyrst á markað í Kóreu og mun kosta á bilinu 177–329 dollara sem fer eftir stærð minnisins sem er 4, 8 og 16 gb. P3 spilar bæði tónlist og kvikmyndir, skartar 3 tommu snertiskjá, blátönn og rafhlaðan endist fyrir 30 klukkutíma tónlistarafspilun eða 5 klukkutíma kvikmyndagláp. umsjóN: PáLL svaNssoN, palli@dv.is Lögfræðingur í Ástralíu flutti allsérstakt mál fyrir rétti í vikunni: HúSTAkA GeGnum fAcebook Stefnumót.is Þar sem íslendingar kynnast! www.stefnumot.is Eftir árangurslausar tilraunir fjármála- stofnunar í Ástralíu við að ná sambandi við unga íbúðareigendur, sem höfðu ekki greitt af lánum sínum í þó nokk- urn tíma, ákvað lögfræðingur stofnun- arinnar að fara nokkuð óhefðbundnar leiðir. Ungu hjónin höfðu ekki svarað pósti, síma eða komið til dyra í íbúðinni þegar reynt var að ná sambandi við þau vegna gjaldfallins lánsins og afhenda þeim löggilta pappíra um útburð. Fjár- málastofnuninni var hins vegar skylt samkvæmt lögum að tilkynna hinum óheppnu íbúðareigendum að þau væru búin að missa húsnæðið og þyrftu að yfirgefa það innan ákveðins tíma. Ekki mátti leika nokkur vafi á um að slík til- kynning rataði til hjónanna, annars væri ekki hægt að bera þau út úr húsnæðinu ef þess þyrfti. Vitað var að hjónin áttu síður á Facebook samskiptavefnum og virtust vera nokkuð virk þar. Lögfræð- ingurinn ákvað því eftir nokkra umhugs- un að leggja fram óvenjulega beiðni til sérstaks réttar í Ástralíu (The Australian Capital Territory Supreme court) um að fá að nota Facebook-kerfið til að senda parinu tilkynningu gegnum einkapóst ásamt hinum löggiltu pappírum sem viðhengi. Málið vakti strax töluverða athygli fjölmiðla og þegar lögfræðing- urinn hafði fengið beiðni sína sam- þykkta hjá réttinum með nokkrum breytingum höfðu hjónakornin greini- lega lesið um málið og læst síðum sín- um þannig að ekki var hægt að senda þeim póst nema viðkomandi væri skráður á vinalista þeirra. Þrátt fyrir þessi málalok telur lögfræðingurinn að nú sé fullsannað að öllum tiltækum ráðum hafi verið beitt við að ná í hjón- in og stofnuninni því frjálst að bera þau út með aðstoð lögreglu. Gert er ráð fyr- ir að réttarniðurstaða fáist í næstu viku um það atriði. palli@dv.is HerkænSkuleikjA frAmTíð Empire: Total War Leggur meiri áherslu á efnahagsmál, pólitík og njósnir en áður. Sjóorustur eru núna háðar í „real time“ líka. Pólitík, njósnir og launmorð er allt partur af þessum magnaða leik. Empire: Total War kemur í mars á næsta ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.