Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Qupperneq 68
föstudagur 19. desember 200868 Konan
Hresstu upp á kjólinn ef þú hefur ekki tök eða tíma til að
kaupa þér nýjan jólakjól þetta árið eða vilt einfaldlega nota það sem þú
átt fyrir skaltu ekki örvænta heldur nota hugmyndaflugið örlítið. sokka-
buxur í áberandi lit geta gert mikið en einnig má skreyta einfaldan
kjól með stóru belti, eða öðrum aukahlut. allar lumum við á einhverju
dúlleríi í skartgripaskúffunni okkar og er um að gera að leika sér svolítið
með það. blandaðu saman nokkrum hálsmenum og skelltu stórri nælu í
barminn og það tekur enginn eftir því að þú sért í gamla kjólnum.
Nýlega kom til landsins ný og glæsi-
leg snyrtivörulína að nafni NIMUE.
NIMUE leggur mikla áherslu á að
sinna íslenskum konum í íslenskri
veðráttu en eins og við flestar vit-
um sætir húðin oft miklu áreiti yfir
vetrartímann. Þessi einstaki C-vít-
amín-rakaúði virkar sérstaklega
vel á húðina sjálfa en einnig er
virkni sem verður við innöndun á
virkum efnum.Úðann má nota yfir
önnur krem, oft á dag sem og yfir
farða til að fríska húðina. Helstu
innihaldsefni rakaúðans eru C-vít-
amín sem er eitt af áhrifaríkustu
andoxunarefnum sem til eru í dag.
Andoxunarefni verja frumuhimn-
una og frumukjarnann gegn skað-
semi frírra stakeinda sem bera
mesta ábyrgð á öldrun húðarinn-
ar. Úðinn sem kemur í fallegu glasi
inniheldur Phyto endorfin sem
stuðlar að endurnýjun húðarinn-
ar og almennri vellíðan. Í úðan-
um, sem hægt er að fá áfyllingu á,
er efni sem heitir Aoe Ferox sem
líkist Aloa Vera en er mun virkara
sem rakaefni fyrir húðina, einnig
er góð vörn fyrir UVA-geislum í úð-
anum. NIMUE-vörurnar má nálg-
ast í verslun Snyrtiakademíunnar
í Kópavogi.
Lína sem sinnir íslenskum konum í íslenskri veðráttu:
Frískandi Fyrir Húð og anda
umsjón: kolbrún pálína helgadóttir, kolbrun@dv.is
tarnir eru
minn líFsstíll
Þóra tómasdóttir sjónvarpskona.
Hvað borðar þú í morgunmat?
„Ég borða skyrbúst ef ég hef tíma
eða kornflex.“
Hver er uppáhaldsdrykkurinn
þinn?
„Ég held uppi framleiðslunni á gulum
kristal.“
Hvar líður þér best?
„mér líður best í hjartanu.“
Hvaða bók er á náttborðinu?
„Ég á ekki náttborð en ég er með tíu
ólesnar bækur á víð og dreif um
heimilið. er í miðjum krimma um
fyrstu írsku konuna sem gerðist
einkaspæjari og svo bíð ég eftir að fá
tækifæri til að lesa Vetrarsól eftir auði
jóns og skaparann eftir guðrúnu
evu.“
Hvernig heldurðu þér í formi?
„Ég tek tarnir í hlaupum. sem betur
fer styttist alltaf bilið á milli tarna og
kannski áður en ég dey verður
hreyfing orðin að lífsstíl. tarnir eru
minn lífsstíll.“
Hvaða snyrtivörur notar þú
daglega?
„Ég nota kanebo-púður, dior-
maskara, lancome-gloss, augnblýant
og mac-kinnalit sem er eins konar
instant hamingja í krukku.“
Hvar kaupir þú helst föt?
„húsasmiðjunni.“
Hvað gerir þú þegar þú vilt
dekra við sjálfa þig?
„kaupi mér rándýra flík og lýg því að
ég hafi fengið hana að láni.“
Þitt helsta fegurðarráð?
„deyfa ljósin.“
Hver er þín fyrirmynd?
„íslenska kvennalandsliðið í fótbolta.“
Kona viKunnar
Frískandi úði Vítamínúðann má nota
yfir krem og farða.
Hin tuttugu og átta ára Inga R. Bach-
mann útskrifaðist vorið 2005 eftir
fjögurra ára nám á Spáni. Þar lagði
hún stund á gullsmíði og skartgripa-
hönnun. „Mig grunaði nú alltaf að ég
myndi vinna við málm, enda hálf-
partinn búin að alast upp í kringum
það efni,“ segir Inga en afi hennar
vann á verkstæði og bróðir henn-
ar starfar sem stálsmiður. „Ég ákvað
að prófa þetta fyrsta árið mitt úti og
þetta hentaði mér líka svona vel.“
Inga lætur einstaklega vel af dvöl-
inni úti á Spáni og segist hafa verið
afar dugleg að heimsækja vini sína
þar eftir að hún fluttist heim á ný. „Ég
er búin að vera dugleg að kíkja út og
á án efa eftir að halda því áfram. Það
var virkilega gott að vera á Spáni en
eins og staðan var hentaði mér betur
að koma heim að vinna.“
Inga hefur þó ekki starfað við gull-
smíðina fram að þessu en fékk óvænt
tækifæri til að láta drauminn rætast
nú í haust og ákvað að nýta tækifær-
ið. Inga hefur því nú opnað glæsi-
lega verslun á Laugavegi 20b sem
ber heitið Hringa. Í versluninni selur
Inga fjölbreytta skartgripalínu sem
hún hefur þróað með sér í nokkur ár.
„Allt sem ég geri hérna í búðinni
er eitthvað sem ég er búin að vinna í
huganum síðustu ár. Margt er byggt
á hugmyndum allt frá því að ég var
í skólanum en margt er nýrra. Einn-
ig flokkast allt sem ég hanna undir
þrjá flokka, sjóinn, sveitina og borg-
ina,“ segir Inga og heldur áfram að
útskýra mál sitt. „Sem dæmi nota ég
þara, kuðunga, skeljar og fleiri svip-
aðar hugmyndir tengdar sjónum.
Þegar ég svo vinn með borgina í huga
nota ég múrsteinamunstur, bíla, hús,
fólk og hinar ýmsu aðsæður sem fólk
lendir í og svo framvegis.“ Inga segir
að einnig sé mikið um að fólk komi
með fyrirfram ákveðnar hugmynd-
ir að skartgrip og reyni hún þá eftir
bestu getu að sérhanna gripinn fyrir
viðskiptavininn.
Inga segir móttökurnar í sinn
garð hafa verið framar vonum frá því
að hún opnaði 1. nóvember síðast-
liðinn. „Það sem hefur slegið hvað
mest í gegn eru nafnahálsmenin
skemmtilegu en þau eru afar vinsæl
hjá ungu kynslóðinni. Einnig er ég
að gera íburðarmikla nafnahringa
og margt fleira óhefðbundið. Ég
legg líka áherslu á herramennina og
hef þar af leiðandi hannað mikið af
herraskarti sem og bindisnælum og
fleira sem henta vel í jólapakkann,“
segir þessi ungi og efnilegi hönnuð-
ur að lokum. Áhugasamir geta kíkt á
síðuna hennar Ingu, hringa.is.
kolbrun@dv.is
Fékk
óvænt
tækiFæri
Inga R. Bachmann er ungur og efnilegur
skartgripahönnuður sem nýlega opnaði
glæsilega verslun á Laugavegi.
Fallegur gripur Þetta fallega hjarta hannaði inga en einnig má sjá laufblað út úr því.
Hin vinsælu nafnahálsmen Þessi
hálsmen hafa slegið rækilega í gegn.