Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Síða 70

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Síða 70
föstudagur 19. desember 200870 Tíska umsjón: krista hall, krista@dv.is Louboutin fyrir barbie skóhönnuðurinn Christian louboutin hefur verið fenginn til að hanna skó fyrir barbie í tilefni af fimmtíu ára afmæli dúkkunnar góðu. nú þegar hefur Vera Wang verið fengin til að hanna sparikjól á barbie-dúkkuna. skórnir og kjóllinn verða frumsýnd á tískuvikunni í new York í febrúar. skórnir munu að sjálfsögðu vera barbie-bleikir að lit og klæða fæturna á öllum fimmtíu módelunum sem taka þátt í þessari glæsilegu afmælissýningu. frumsýnd í febrúar haustlína sinneu miller, twenty- 8twelve, verður frumsýnd á tískuvikunni í london í febrúar á næsta ári. fyrirtækið, sem sienna rekur með systur sinni savönnuh, var stofnað árið 2006 þegar tískufrömuðurinn Carlos Ortega kom að tali við þær systur um að setja á laggirnar tískulínu. nafnið twenty8twelve var valið sökum þess að sienna á afmæli tuttugasta og áttunda desember. Hnébuxur á útsöLunum Þær sem eru byrjaðar að hugsa út í það hvernig þær ætli að tolla í tískunni næsta vor ættu að leita eftir hnésíðum buxum á útsölunum milli jóla og nýárs. Það sem virtist vera einkar heitt á sýningarpöllunum í haust þegar vor- og sumarlína næsta árs var sýnd voru þessar hnésíðu buxur í hinum ýmsu útgáfum. Ýmist víðar yfir lærin og þröngar yfir hnén eða hreinlega eins og dragtarbuxur sem klippt hefur verið neðan af frá hné. Það er ávallt hægt að treysta á að gamla kempan Oscar de la Renta færi okkur klæðilegar og kvenlegar flíkur. Á dögunum hélt hann smávegis fortískusýningu á því sem koma skal fyrir haustið 2009 og það er greinilegt að pilsin og kjólarnir síkka á næsta ári. Það var mik- ið um gráa liti, gamaldags tweed-dragtir, síð pils og kjóla, háa hnésokka og dragsíðar sat- ínbuxur á sýningarpallinum. sítt, síðara, síðast... ...en ekki síst fatamarkaður á kaffibarnum eins árs nemar í fatahönnun við listaháskóla Íslands halda risa fatamarkað á kaffibarnum föstudaginn nítjánda desember frá klukkan þrjú til níu. nemarnir eru að safna fyrir ferð til Parísar í febrúar þar sem þau koma til með að vinna fyrir tískuvikuna í París í heilan mánuð. kaffibarinn er staðsettur á bergstaðarstræti 1. meðal þeirra sem koma til með að selja hönnun sína er stílistinn elísabet alma svendsen sem starfað hefur í verslununum rokk og rósum og spútnik ásamt mörgum öðrum ungum og efnilegum fatahönnunarnemum. Síðar og sexí satínbuxur Pilsin síkka og buxurnar líka. dargsíðar satínbuxur verða áberandi næsta haust. Langur slóði ljósgrár og glæsilegur brúðarkjóll úr smiðju meistarans Oscars de la renta. Sparilegir síðkjólar Það er ákveðinn glamúr yfir þessum dragsíðu kjólum de la renta. Pilsin síkka í kreppunni Á stríðsárunum fóru pilsin að síkka verulega og konur að hylja meira. hið sama er að gerast nú á tímum kreppunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.