Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Page 77
föstudagur 19. desember 77Sviðsljós
Vill sjá suri á sViði
Breska glanstímaritamódelið
Katie Price, betur þekkt sem
Jordan, sagði í viðtali við OK!
á dögunum að sér fyndist
burlesque-skvísan Dita Von
Teese ekki beint vera smart.
Dita situr fyrir í desemberútgáfu
þýska Playboy og gefur Jordan lít-
ið fyrir myndirnar af skvísunni en
sjálf hefur Jordan birst á forsíðu
tímaritsins.
„Ég væri alveg til í að sitja aftur
fyrir í Playboy, jafnvel þó að ég sé
nýbúin að sjá forsíðuna með Ditu
og finnist hún ömurleg. Konan er
ógeðsleg. Það er ekki „minn te-
bolli“ að vera svona föl. Þessi for-
síða er einfaldlega ekki Playboy-
leg, að mínu mati,“ segir Jordan.
Breska glansgellan Jordan er ekki par hrifin af forsíðunni á desem-
berútgáfu þýska Playboy sem skartar Ditu Von Teese á forsíðunni.
„Dita er
ógeðsleg“
Ljósabekkjabrún
með aflitað hár
Jordan segi hið föla
útlit ditu Von teese
ekki vera „sinn
tebolla“.
Á forsíðunni á þýska Playboy
„Konan er ógeðsleg,“ segir Jordan
um ditu.
Burlesque-skvísa og
kyntákn
dita hefur aldrei verið
feimin við að sitja fyrir í
djörfum myndatökum.
Í rauðu latexi
dita Von teese hefur margoft verið
kosin kynþokkafyllsta kona heims.
Breska götublaðið The Sun heldur
því fram að Eddie Murphy muni fara
með hlutverk The Riddler í næstu mynd
Christopher Nolan um Leðurblöku-
manninn. The Sun segir að Nolan hafi
haft samband við Murphy, sem er 47
ára, og boðið honum hlutverkið.
Það var Jim Carrey sem lék The Riddl-
er upprunalega en þá í öllu kómískari
útgáfu af Batman. Þá er því einnig hald-
ið fram að búið sé að ráða Shia LaBeouf
í hlutverk Robins en hann er þekktastur
fyrir aðalhlutverkið í Trans-
formers. Og síðast en ekki
síst er Rachel Weisz orðuð
við hlutverk Catwoman.
Ekkert af þessu hef-
ur verið staðfest en fram að
þessu hefur hvorki Nolan né
Christian Bale viljað staðfesta
hvort af annarri mynd verði. Þá
var Johnny Depp lengi orðaður
við hlutverk The Riddler og Ang-
elina Jolie við hlutverk Catwoman.
Murphy
the riDDler?
The Sun heldur því fram að Eddie
Murphy verði í næstu Batman-mynd.
Eddie Murphy
er hann rétti maðurinn
í hlutverkið?
Njótum aðventunnar saman
Tilnefningar sendist á
hetjaarsins@dv.is eða á
Birtíngur útgáfufélag, Lynghálsi 5,
110 Rvk, merkt „Hetja ársins“.
Skilafrestur er til
miðnættis 23. desember.
DV leitar
að hetjum
Hetja ársins hjá DV verður nú valin í
fyrsta sinn. Lesendur eru beðnir um
að senda nafn eða nöfn þeirra sem
þeim finnst verðugir þess að bera
nafnbótina Hetja ársins 2008.
Allir Íslendingar og þeir sem búa hér
á landi koma til greina í valinu.