Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Side 80

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Side 80
n Söngkonan Lilja Kristín Jónsdóttir í Bloodgroup lenti í þeim hremm- ingum að brotist var inn hjá henni meðan hún var á hljómsveitaræf- ingu. Þegar söngkonan kom heim af hljómsveitaræfingu hafði óprúttinn náungi tekið til hendinni og numið á brott forláta silfurlitaða Dell-tölvu og hleðslutæki fyrir myndavél. Ekki nóg með það heldur hafði verið rótað í dóti söngkonunnar. Lilja vonast til þess að þjófurinn sjái að sér og skili tölvunni auk þess sem hún býður fundarlaun í formi bjórs til þess sem rekst á tölvuna og skilar henni. Gleðibankinn! Fréttaskot 512 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar. Einar Mar Þórðarson, stjórnmálafræð- ingur við Háskóla Íslands, fann enga gleði í hjarta þegar honum barst til- kynning frá Nýja Glitni banka um að hann gæti fengið Kærleikskúlu í jóla- gjöf frá bankanum ef hann myndi ná í hana í næsta útibú. „Ég var kominn í smá jólaskap en þetta var ekki til að gleðja mig. Mér óx ekki kærleikur í brjósti. Glitnir og hans félagar, hin- ir bankarnir, eru náttúrlega búnir að setja líf okkar á annan endann. Síðan ætlast þeir til að ein jólakúla breyti af- stöðu okkar til þeirra,“ segir Einar Mar. Hann tekur fram að Kærleikskúlan sé vissulega seld til styrktar góðu mál- efni en bæði Kærleikskúlan og jólaóró- inn Grýla eru seld fyrir þessi jólin til að styðja við Styrktarfélag lamaðra og fatl- aðra. Glitnir hefur einnig sent Grýlu til viðskiptavina sinna. „Ég hefði frekar viljað fá tilkynningu um lægri vexti. Ég bara reiddist. Eins og allir er ég að rembast við að borga af húsnæðisláninu og yfirdrættinum. Og síðan fær fólk bara kúlu í staðinn. Ég vil bara gamla Ísland aftur,“ segir Einar Mar. Hann skrifar harðorða færslu um jólagjöf Glitnis á vefsíðu sinni og segir þar: „Bankinn heldur greini- lega að viðskiptavinir hans séu fífl. Hér er kúla og allir sáttir. Ég ætla að sækja kúluna og senda hana upp í viðskiptaráðu- neyti með spurningu um hvort þetta hafi verið gert með vitund og vilja þess. Hvet aðra til að gera það sama.“ erla@dv.is brotist inn hjá lilju Getur þú hugsað þér daglegt líf án rafmagns? Brátt fer daginn að lengja á ný og við fögnum birtunni sem fylgir hækkandi sól. Við hjá RARIK viljum þakka ykkur fyrir viðskiptin á árinu sem nú er senn liðið og sendum bestu óskir um gleðileg jól og heillarríkt komandi ár www.rarik.is Gleðilega hátíð! Einar Mar Þórðarson ætlar að senda jólagjöfina frá Nýja Glitni upp í viðskiptaráðuneyti: rEiÐur YFir KÆrlEiKsKÚlunni n Það eru ekki bara varirnar á Ásdísi Rán sem eru milli var- anna á Íslend- ingum eins og hún sjálf orðaði það. Söngvarinn, stílistinn, förð- unarfræðing- urinn, útvarps- maðurinn, þáttarstjórnandinn og blaðamaðurinn Haffi Haff er líka kominn með heldur betur þrýstn- ar varir. Í nýjasta tölublaði Séð og heyrt greinir Haffi frá því hvað valdi þessum þrýstnu vörum en tísku- séníið fékk sér smá silikon í varirnar fyrir jólin enda á leiðinni til Seattle að eyða jólunum með kærastanum sínum honum Dustin. n Árlegir Þorláksmessutónleik- ar Bubba Morthens færa sig um set þetta árið. Síðastliðin ár hafa tónleikarnir farið fram á NASA við Austurvöll en verða í þetta skiptið haldnir í Háskólabíói. Bubbi sagði í viðtali á Bylgjunni að slagsmálin sem urðu á tónleikunum á síðasta ári hafi gert það að verkum að hann vilji prófa að flytja tónleikana úr mið- bænum. Að auki lofaði hann því að bestu lög- in fengju að hljóma og mögu- leiki væri á frum- flutningi sem ætti að gleðja alla Bubbaaðdá- endur landsins. FlYtur sig í hásKólabíó splÆsti í siliKon Vill gamla Ísland aftur einar mar Þórðarson varð fokreiður þegar hann fékk kærleiks- kúlu í jólagjöf frá nýja glitni. hann vildi heldur fá tilkynningu um lægri vexti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.