Úr þjóðarbúskapnum - 01.03.1956, Síða 30
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM
þar sem hann vekur athygli á því, a?5 orðið
hagfræði sé notaS i tvenns konar merkingu, og
bendir réttilega á, að það sé óheppilegt. Sting-
ur hann þar upp á því að festa notkun orðsins
hagfræði i merkingunni ökonomi, en taka upp
orðið talfrœði fyrir statistík. Kveður liann
mega halda orSunum hagstofa og hagskýrslur
þrátt fyrir þaS, þótt einnig mætti nota orðin
talstofa og talskýrslnr. Ekki náði þó orðið tal-
fræði útbreiðslu. Þegar tekin var upp kennsla
i viðskiptafræðum við háskólann 1941, og hafin
var kennsla í statistík, þ. e. fræðunum um
öflun talnauppiýsinga, úrvinnslu þeirra og
framsetningu, var tekið upp orðiS tölfrœði,
þ. e. stuðzt við fleirtöluorðmvndina af orðinu
tal i merkingunni talning. Tekið var svo jafn-
framt að nota orðið haglýsing til þess að tákna
almcnna lýsingu efnaliagslífsins og stofnana
þess.
íslenzkir hagfræðingar
Fyrsti íslendingurinn, sem lauk háskóla-
prófi i hagfræði, var Indriði Einarsson. Lauk
liann kandidatsprófi i liagfræði við Hafnarhá-
skóla 1877 og stundaði síðan framhaldsnám i
Edinborg. Er lieim kom, réðist hann sem að-
stoðarmaður iandfógeta og endurskoðandi
landsreikninga, en varð siðar fulltrúi og skrif-
stofustjóri í fjármáladeild stjórnarráðsins. Það
kom sér vel, að íslendingar skyldu eignast
fyrsta hagfræðing sinn skömmu eftir að þeir
öðluðust fjárforræði. Verkefnin reyndust meira
en nóg. Það féll i hlut Indriða Einarssonar að
semja landshagskýrslur þær, sem gefnar voru
út af stjórnarráðinu frá 1878 til 1914, þegar
Hagstofa íslands var stofnuð. Þótt Indriði
Einarsson sé þjóð sinni kunnastur sem rithöf-
undur, mun brautryðjendastarf lians í íslenzkri
hagfræði og hagskýrslugerð ekki síður halda
nafni hans á lofti, slíkt feykistarf sem hann
innti af hendi á þeim vettvangi.
Tólf árum síðar eða 1889 tók annar íslend-
ingur liagfræðipróf við Kaupmannahafnarhá-
skóla, Sigurður Briem, síðar póstmálastjóri. Þá
gátu lögfræðingar tekið viðbótarpróf við Hafn-
arháskóla scm hagfræðingar, og gerðu það
tveir menn, Jón Krabbe skrifstofustjóri, 1898,
og Magnús Jónsson siðar lagaprófessor, 1907.
Næstu íslendingarnir, sem luku hagfræðiprófi,
voru þeir dr. Þorsteinn Þorsteinsson, 1908,
Georg Ólafsson og Ólafur Björnsson, 1909, og
Jónas Einarsson, 1910. Dr. Þorsteinn varð hag-
stofustjóri, þegar Hagstofa Islands var stofnuð
1914, og féll það í hans hlut að endurskipu-
leggja alla hagskýrslugerðina. Vann hann mikið
og merkilegt starf á því sviði, auk þess sem
hann ritaði margt um hagfræði og tölfræði,
t. d. um Verðbreytingar siðari ára i Tímarit
lögfræðinga og hagfræðinga 1923 og Efnahags-
mál íslands í heimsstyrjöldinni fyrri og eftir
hana, en sú bók var samin fyrir safnrit um
Norðurlöndin öll. Á fimm ára afmæli viðskipta-
fræðakennslunnar við Háskólann sæmdi laga-
og iiagfræðideildin hann nafnbótinni doctor
oeconomiae honoris causa i viðurkenningar-
skyni fyrir brautryðjendastörf hans, og er
hann hinn eini, sem þá sæmd hefur hlotið.
Georg Ólafsson vann að landshagsskýrslum og
á hagstofunni, var skrifstofustjóri Verzlunar-
ráðsins og siðan landsbankastjóri. Ólafur
Björnsson varð ritstjóri ísafoldar og forstjóri
ísafoldarprentsmiðju. Árið 1917 lauk svo Héð-
inn Valdimarsson, síðar forstjóri og alþingis-
maður, kandidatsprófi í hagfræði í Höfn. Þá
fóru menn og að leggja leið sína til Þýzkalands
til hagfræðináms, og lauk dr. Kristinn Guð-
mundsson utanrikisráðherra fyrstur íslendinga
hagfræðiprófi þar i landi, en á eftir honum
komu þeir dr. Björn Björnsson og dr. Oddnr
Guðjónsson. Næst á eftir Danmörku hafa flestir
íslendingar stundað hagfræðinám í Þýzkalandi.
Nokkrir hafa þó stundað hagfræðinám í Bret-
landi, Svíþjóð og Bandaríkjunum. Alls munu
rúmlega 40 íslendingar hafa lokið hagfræði-
prófi. 7 íslendingar hafa lokið doktorsprófi í
hagfræði. Frá stofnun viðskiptadeildarinnar
við Háskóla íslands hafa 88 viðskiptafræðing-
ar lokið þar kandídatsprófi, og nokkrir munu
hafa lokið hliðstæðu prófi við erlenda háskóla.
Nokkrir þeirra ,sem lokið hafa kandidatsprófi
i viðskiptafræðum við háskólann hér, hafa
síðar lokið hagfræðiprófi við erlenda háskóla.
íslenzk hagfræðirit
Flestir íslenzkir hagfræðingar hafa verið
starfsmenn hins opinbera. Hins vegar hefur
meiri hluti viðskiptafræðinganna gengið i
þjónustu atvinnu- og viðskiptalifsins. Megin-
störf hagfræðinganna hafa verið. við ýmiss
konar stjórnsýslu auk hagskýrslugerðar og ein-
stakra rannsókna á ýmsum sviðum efnahags-
28