Úr þjóðarbúskapnum - 01.03.1956, Side 32
Cr þjóðarbúskapnum
Björnsson forstöðumaður hennar frá upphafi.
Gaf hann þrívegis út Árbók Reykjavíkur, mjög
ýtarlegar hagskýrslur um málefni höfuS-
staSarins.
Enn fremur annast ýmsar stofnanir atvinnu-
veganna margvíslegar athuganir i efnahags-
málum og skýrslugerS, og má þar fyrst og
fremst nefna Fiskifélag íslands, sem safnar
aflaskýrslum og hefur Reikningaskrifstofu sjáv-
arútvegsins á vegum sinum, og FramleiðsluráO
landbúnaðarins, sem gefur út Árbók landbún-
aðarins meS margvíslegum fróSleik um land-
húnaSarmál.
Viðskiptadeild háskólans
Fimmtán ár eru nú liSin síSan kennsla í
viðskiptafrœðum — og þar meS í hagfræSi —
var tekin upp viS Háskóla íslands, en áSur
hafSi ViSskiptaháskóli íslands starfaS í þrjú
ár og nokkurri kennslu í hagfræSi veriS haldiS
uppi fyrir lögfræSistúdenta. MeS viSskipla-
fræSum er í þessu sambandi átt viS ýmsar
greinar, sem þekking á er talin mikilvæg fyrir
menn, er gegna ábyrgSarstöSum i efnahagslif-
inu. Ber þar fyrst og fremst aS nefna hag-
fræSi, enda er nám i hagfræSi og haglýsingu
um þaS helmingur viSskiptafræSinámsins, ef
miSaS er viS fjölda þeirra fyrirlestra, sem
stúdentum er ætlaS aS hlýSa. Um þaS bil
fjórSungur námsins er helgaSur bókfærslu,
verSreikningi og skattaskilum, og siSasti fjórS-
ungurinn dreifist á lögfræSi, tölfræSi, viS-
skiptareikning, enskar bréfaskriftir og heim-
speki. Þeir, sem lokiS hafa sliku námi, eru
nefndir viðskiptafræðingar.
ViS viSskiptadeildina starfa tveir hagfræði-
kennarar, Ólafur Björnsson og Gylfi Þ. Gisla-
son. Til þessa hefur starf þeirra, auk kennsl-
unnar, fyrst og fremst veriS fólgiS i þvi að
semja kennslubækur til notkunar viS námiS,
en mikil nauSsyn hefur veriS á þvi, aS til væru
íslenzkar kennslubækur i ýmsuin greinum,
einkum þeim, er snerta aSstæSur hér á landi.
Hefur Ólafur Björnsson samiS kennslubók i is-
lenzkri haglýsingu, sem nefnist Þjóðarbúskapur
íslendinga, og enn fremur yfirlitsrit um hagfræði
og ágrip af fjármálafræði. Gylfi Þ. Gislason hef-
ur samið ágrip af almennri rekstrarhagfræði,
bækur um fjármál einkafyrirtækja, um rekstur
iðnfyrirtækja, um reikningsskil og tvær bækur
um bókfærslu, auk smærri rita. Mun þess ekki
verSa langt aS biSa, aS islenzkar kennslubæk-
ur verSi til i þeim greinum, þar sem þær mega
teljast ómissandi. Væri þá mjög æskilegt, aS
tekin yrSu upp sjálfstæS rannsóknarstörf í
efnahagsmálum viS Háskólann, svo sem tíSk-
ast viS flesta háskóla, þar sem hagfræSi er
stunduS. Ætti sem fyrst aS koma upp rann-
sóknarstofu i efnahagsmálum viS viSskipta-
deildina og ráSa aS henni mann, sem hefSi
fengiS þjálfun i rannsóknum í hagfræSi, ekki
fyrst og fremst til þess aS vinna aS hagnýtum
dægurviSfangsefnum, heldur til þess aS stuSla
aS því aS treysta til frambúSar þann fræSi-
lega grundvöll, sem íslenzk hagfræSi hlýtur aS
byggja á, ef hún á aS verSa til þess gagns fyrir
íslenzka þjóS, sem allir þeir, sem hana stunda,
hljóta aS óska, aS hún verSi.
30