Úr þjóðarbúskapnum - 01.03.1956, Side 42
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM
unar á höfuðstól sjóðanna, ef ekki kœmi til
óafturkræft rikisframlag. Byggingarsjóður nýt-
ur 2.5 m. kr. framlags á ári og starfar með
tiltölulega minna lánsfé. Er hann því jafnan
með tekjuafgang, ])egar rikisframlagið er talið
með. En Ræktunarsjóður hlýtur aðeins 0.5 m.
kr. og starfar með mikið lánsfé, enda varð 555
þús. kr. tekjuhalli að ríkisframlagi meðtöldu
árið 1955. Áætlað er að hallinn verði 620 þús.
kr. árið 1956, þótt reiknað sé þá með 1.6 m.
kr. framlagi frá ríkissjóði.
í framanrituðu er átt við reglulegt ríkisfram-
lag samkvæmt lögum. Öll árin hefur ríkissjóð-
ur veitt sjóðunum stór og smá lán. Síðar hefur
sumum þeirra verið breytt i framlög. Töflur
X og XI sýna hina endanlegu ráðstöfun, þ. e.
slík framlög eru talin með hinum reglulegu á
því ári, sem lánið hafði verið veitt.
Af greiðsluafgangi ríkissjóðs árið 1955 var
veitt 22 m. kr. til Ræktunarsjóðs í lánsformi.
Raunverulega er fé þetta fullnotað í árslok 1955
i krafti bráðabirgðaráðstafana, þannig að þær
13 m. kr., sem bókaðar eru á 1956 (tafla X),
fara allar til greiðslu bráðabirgðalána.
Fjáröflun sjóðanna frá lagasetningunum 1946
og 1947 má skipta í þrjú timabil. Fyrstu árin
eða til og með 1951 skipta fjárveitingar ríkis-
ins, framlög og lán, meginmáli, en engin lán
eru tekin hjá öðrum aðilum, nema bráðabirgða-
lán. Árið 1952 verða þáttaskil, er lántökur hjá
Alþjóðabankanum hefjast fyrir milligöngu rík-
isstjórnarinnar og siðan Framkvæmdabankans.
Alls nema þessar lántökur árin 1952—1955
38.4 m. kr., en af þeirri upphæð hefur 23
m. kr. runnið til Ræktunarsjóðs, en 15.4 m. kr.
til Byggingarsjóðs. Enn verða þáttaskil með
árinu 1954, er lán frá Framkvæmdabankanum
af stofnfé bankans sjálfs hefjast. Á því ári lán-
aði bankinn 5 m. kr. til Ræktunarsjóðs og 3
m. kr. til Byggingarsjóðs. Þessi lán frá Fram-
kvæmdabankanum hafa numið árin 1954 og
1955 og eru áætluð fyrir 1956 sem hér segir
til beggja sjóðanna samanlagt, talið í þús. kr.:
1954 1955 1956
8 000 13 500 16 000
Hvað Byggingarsjóð snertir má telja, að
fjórði þátturinn í fjáröfluninni hefjist með
stofnun Hins almenna veðlánakerfis. Fjár-
magnsmiðstöð kerfisins er veðdeild Lands-
bankans, er lánaði Byggingarsjóði 7.8 m. kr.
árið 1955 og áætlað er að láni 4.2 m. kr. 1956.
Þriðjungur lánsins árið 1955 er visitölutryggð-
ur, án þess þó að Byggingarsjóður láni út gegn
sömu tryggingu. Skapar það sjóðnum verð-
bólguáliættu.
Enn vantar 27.7 m. kr. fjáröflun til þess að
sjóðirnir geti staðið við útlánaáætlanir sinar
árið 1956.
Vélvæðing landbúnaðarins
Stórvirkar vélar hafa gert stórstíga ræktun
færa. En vélvæðingin er einnig nauðsynleg til
þess að nýta að marki árangur ræktunarinnar
til meiri framleiðslu og bættra afkasta og lífs-
kjara. íslenzkum staðháttum henta einkum hin-
ar smærri vélar og tæki, liprar til snúninga
og smáverka, ódýrar í innkaupi og rekstri.
Engin afstaða verður almennt tekin til þess,
hvort aflið til dráttar og vélargangs skal fengið
úr dráttarvél eða hestum. Slíkt ákveðst af hin-
um sérstöku skilyrðum hvers bús. Sú almenna
staðhæfing hefur þó fullt gildi, að stóraukinnar
vélvæðingar muni þörf, bæði i aflvélum og
tengitækjum.
Töflur XII og XIII sýna innflutning land-
búnaðarvéla og -tækja og jeppabifreiða frá
1948, c.i.f. verðmæti samkvæmt Verzlunar-
skýrslum og endanlegt söluverð með kostnaði
og álagningu áætluðu af innflutningsaðilum.
Töflurnar sýna aðeins upphæðir. Varahlutar
eru taldir með þeim vélum, er þeir tilheyra,
nema varahlutar til jeppabifreiða, sem eru ekki
teknir með. Með mjólkurvélum eru taldar vélar
til mjólkurvinnslu.
Helztu tölur töflunnar um C.I.F. verðmæti
eru sem hér segir, talið i 1000 kr.:
Innflutningur landbúnaðarvéla, C.I.F. verðmæti, 1000 lcr.
Flokkunar-
númer 1948 1951 1954 1956
712 Landbúnaðarvélar ... 4 561 4 199 5 534 5 400
713 Dráttarvélar 1 864 7 093 13 139 13 000
732-03 Jeppabifreiðar 25 1 362 5 665 7 000
Alls 6 450 12 654 24 338 25 400
40