Úr þjóðarbúskapnum - 01.03.1956, Qupperneq 43

Úr þjóðarbúskapnum - 01.03.1956, Qupperneq 43
SKÝRSLUR OG SPÁR Túlkun töflunnar er erfið, þar blandast marg- ar orsakir. Gengismál og gjaldeyrisaðstaða hafa áhrif ásamt eftirspurn og fjárhagsgetu bœnda. Áberandi er, hve innfiutningur gengislækkun- arársins 1950 er lágur, en hár árið áður. Milli þessara tveggja innflutningsára koma raun- verulega bæði gengislækkunin gagnvart dollar í september 1949 og almenna gengislækkunin 1950. Eðlilegt er, að á slikum tímamótum sé það tekið til nýrrar yfirvegunar, hversu mikil vélanotkun er hagkvæm. Búvélainnflutningur- inn nær sér verulega upp aftur 1951—1953, en með árinu 1954 tvöfaldast hann frá árinu áður og hækkar enn 1955. Af einstökum lið- um hefur orðið gífurleg aukning innflutnings dráttarvéla og jeppa, en önnur tæki liafa staðið furðanlega i stað. Á næstu árum má þó reikna með verulega auknum kaupum tengitækja við j)ann mikla dráttarvélastofn, sem nú liefur ver- ið komið á fót. Um heildaráætlun vélvæðingarinnar fram til 1960 vísast að öðru leyti til síðasta kafla þess- arar ritgerðar. Heildarkostnaður og gjaldeyris- kostnaður í undanfarandi köflum hafa einstakir þættir landbúnaðarframkvæmdanna verið teknir til meðferðar. Það er því tímabært að gera yfirlit um heildarkostnað allra framkvæmdanna. Einnig vaknar spurningin, hversu mikill sé beinn gjaldeyriskostnaður vegna framkvæmd- anna. í töflu XIV, Landbúnaðarframkvæmdir 1952—1957, er leitazt við að gera slíkt yfirlit um tilgreint árabil. Heildarkostnaðarliðirnir eru samdráttur úr töflum, er skýrðar hafa verið og þurfa því varla skýringar við. Þó er vert að benda á það, að hinn milcilvægi liður, bústofnsaukn- ingin, er ekki meðtalinn. Búfjáraukningin hef- ur algera sérstöðu, bæði hvað kostnað og fjár- mögnun snertir og tæplega er hægt að ákveða beinan gjaldeyriskostnað við fjölgunina. Vilji menn bæta verðmæti bústofnsaukningarinnar við heildarkostnaðinn, hefur liún verið áætluð sem hér segir fyrir árin 1952—1957, og fæst þá eftirgreind heildarupphæð framkvæmda á umræddu árabili. Landbúnaðarframkvæmdir 1952—1957, milljónir króna 1952 1953 1954 1955 1950 1957 Heildarkostnaður, tafla XIV . 107 106 148 171 188 192 Bústofnsaukning 5 43 45 13 25 30 Alls 112 149 193 184 213 222 Gjaldeyriskostnaður á töflunni sýnir áætlun- artölur um f.o.b.-verðmæti byggingarefna, véla o. s. frv., er ganga beinlínis inn i viðkomandi fjármunamyndun. Taflan sýnir ekki óbeinan gjaldeyriskostnað, er stafar af notkun véla o. þ. h. við framkvæmdir. Gjaldeyriskostnaðurinn er í kringum 30% af heildarkostnaði. Helztu tölur töflunnar fara hér á eftir: Landbánaðarframkvæmdir Eining 1952 1954 1957 Heildarkostnaður . M. kr. 107.4 148.7 192.3 Gjaldeyriskostnaður Hundraðstölur gjaldeyriskostnaðar af . M. kr. 34.6 48.5 57.0 heildarkostnaði % 32.2 32.6 29.6 Samanburður við upphaflega áætlun Tafla XV, Samanburður nokkurra þátta upp- haflcgu tíu ára áætlunarinnar (ágúst 1950) við endurskoðaða útgáfu hennar (ágúst 1955). Hér eru leidd saman nokkur aðalatriði þeirra taflna, er samdar voru í ágúst 1950, og þeirra, er nú liggja fyrir. í fyrsta lagi er upphaflega áætlunin borin saman við raunverulega þróun liðinna ára. í öðru lagi er hún borin saman við það, sem nú er ætlað að þróun komandi ára muni bera í skauti sér. Fyrri áætlunin hefur gert ráð fyrir, að ný- rækt túna tæki fyrst stórt stökk upp á við, en 41
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Úr þjóðarbúskapnum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.