Fréttablaðið - 12.12.2014, Blaðsíða 3
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014
Föstudagur
UNDRAEFNI M
VINSÆLAR GJAFIR Kristján Þór Karlsson sölumaður með bón-
töskur og tvö af mörgum góðum Meguiar’s-hreinsiefnum
fylla töskurnar.
JÓLATÓNLEIKAR SINFÓJólatónleikar Sinfóníunnar verða haldnir í Hörpu
á laugardag klukkan 14 og 16 og á sunnudag
klukkan 14. Trúðurinn Barbara verður kynnir en
hljómsveitin spilar sígild jólalög og klassíska
balletttónlist.
SMÁRALIND
Ný og glæsileg tískuvöruverslun fyrir dömur og herra
Jólastuð
Lífi ð
12. DESEMBER 2014
FÖSTUDAGUR
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir
MÉR
Bryndís Hákonardóttir
næringarþerapisti
AUGUN ENDUR-
SPEGLA ÁSTAND
LÍKAMANS 6
Nanna Árnadóttir
íþróttafræðingur
HREYFING ER
MIKILVÆG Á
MEÐGÖNGU 14
Hildur Yoeman
fatahönnuður
NÝ LÍNA INN-
BLÁSIN AF STERK-
UM KONUM18
2 SÉRBLÖÐ
Lífið | Fólk
Sími: 512 5000
12. desember 2014
292. tölublað 14. árgangur
Deilt um ráðgjafa. Forstjóri
Fangelsismálastofnunar vill að náms-
ráðgjafi sinni öllum fangelsum. 6
Sauðfénu beitt. Engar takmarkanir
eru á sauðfjárbeit þrátt fyrir jarðvegs-
eyðingu. 8
MENNING Kristín Steins-
dóttir fræðir um kjör
þvottakvenna á 19. öld. 36
SPORT Orðin bæði leikja-
og stigahæst í úrvalsdeild
kvenna frá upphafi. 56
LÍFIÐ
FRÉTTIR
Fórnaði æskunni fyrir tónlist
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir vann hug
og hjarta þjóðarinnar ung að árum.
Aðeins tólf ára að aldri var hún búin að
senda frá sér þrjár metsöluplötur. Síðan
þá hefur hún slegið eftirminnilega í
gegn í Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva, kynnst ástinni og hyggur á
plötuútgáfu á nýju ári.
S T Y R K TA R F É L A G L A M A Ð R A
O G F AT L A Ð R A
Sölutímabil 5. - 19. desember
www.kaerleikskulan.is
Kíktu á úrvalið í vefversluninni
okkar á michelsen.is
Glæsilegar jólagjafir
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla, Vesturbergi
og Arnarbakka
12
DAGAR
TIL JÓLA
OPIÐ TIL 22
Í KVÖLD
SKOÐUN Sif Sigmarsdóttir
skrifar um væl í kerlingum,
brjóstaskoru og heyskap. 27
LÍFIÐ Jón Jónsson syngur í
HM-laginu með Alexander
Rybak. 62
BJÖRGUN Skipverji á frystitogar-
anum Örfirisey RE fékk hjartaáfall
um borð þann 5. desember síðast-
liðinn. Það tók þyrlu Landhelgis-
gæslunnar tæpa þrjá tíma að kom-
ast á staðinn þar sem þyrlan var
stödd í verkefni fyrir Almanna-
varnir við eldstöðvarnar í Bárðar-
bungu.
„Það sem við erum ósáttir við
er að þetta er björgunarþyrla. Þótt
þeir séu í góðum verkefnum verð-
ur að vera björgunarþyrla til taks
þegar verða slys eða menn veikj-
ast alvarlega. Þetta er svo mikið
öryggisleysi,“ segir Trausti Egils-
son, skipstjóri á Örfirisey RE.
Hann er ósáttur við hversu
langan tíma það tók þyrluna að
ná í manninn. Hefði þyrlan verið
í Reykjavík hefði það tekið um
klukkustund en þar sem hún var
við gosstöðvarnar í fyrrnefndu
verkefni, þurfti fyrst að fara með
farþega þyrlunnar til Akureyrar
áður en hægt var að ná í mann-
inn. Það tók því um þrjár klukku-
stundir. Útkallið kom um klukkan
12.40, þyrlan var komin að skipinu
um 15.30 og á Landspítalann í Foss-
vogi klukkan 17.
„Hann var meðvitundarlaus í
hjartastoppi. Hann var hnoðaður
og blásinn fyrst, síðan settum við
á hann hjartastuðtæki sem skaut
honum í gang. Síðan var fylgst með
honum, gefið súrefni og annað sem
lög gera ráð fyrir,“ segir Trausti.
Skipinu var strax stefnt í land en
það var statt 30 sjómílur norðvest-
ur af Ísafjarðardjúpi.
„Við vorum komnir inn í mynni
Önundarfjarðar þegar þyrlan kom.
Þetta voru ansi langar klukku-
stundir þangað til maður fór að
heyra í þyrlunni,“ segir hann.
Hrafnhildur Brynja Stefánsdótt-
ir, upplýsingafulltrúi Landhelgis-
gæslunnar, segir að verkefnið sem
þyrlan var í sé hluti af lögbundinni
skyldu gæslunnar.
„Það var farið um morguninn
með tækni- og vísindamenn að
Bárðarbungu,“ segir Hrafnhildur.
Danska varðskipið Triton sem
er með þyrlu um borð hjá sér var
á bakvakt. Þegar útkallið barst var
niðurstaðan hins vegar sú að þyrla
gæslunnar yrði fljótari á staðinn
en þyrla Triton. Aðspurð hvort það
sé ekki óábyrgt að fara í slík verk-
efni þegar ekki er önnur þyrluvakt
hjá gæslunni segir Hrafnhildur:
„Þú veist aldrei hvar útköllin ger-
ast. Landhelgisgæslan fær ákveð-
ið fjármagn. Þennan dag var ekki
hægt að vera með tvær áhafnir,
samt var danska þyrlan hérna, við
vorum því í raun með ágæta stöðu
þennan dag,“ segir hún.
Trausti segir það óásættanlegt
að þyrlan sé í slíkum verkefnum.
„Í svona tilfellum skiptir tíminn
svo miklu máli,“ og bætir við að það
snúist um lífslíkur fólks að stytta
viðbragðstíma gæslunnar.
„Hvaða forgang vilja menn hafa
í þessu? Þetta er ekkert ólíkt því að
sjúkrabílarnir í Reykjavík væru í
leigubílaakstri og svo þegar þyrfti
á aðstoð að halda þá skiluðu þeir
fólkinu heim og færu svo að athuga
með mann,“ segir Trausti að lokum.
- vh
Tók þyrluna þrjá tíma að
ná í veikan mann á sjó
Skipverji á sjó fékk hjartaáfall og fór í hjartastopp. Þyrla Landhelgisgæslunnar var stödd við gosstöðvarnar og
tók það þrjá tíma að ná í manninn. Skipstjórinn segir óásættanlegt að farið sé í slík verkefni á björgunarþyrlu.
Bolungarvík -5° SSV 7
Akureyri -8° NA 2
Egilsstaðir -7° N 8
Kirkjubæjarkl. -6° N 7
Reykjavík -7° SA 2
HÖRKUFROST Í dag verður víða fremur
hæg breytileg átt og úrkomulítið en bætir
í vind V-til með snjókomu síðdegis. Frost
3-12 stig. 4
FISKINET YFIR ÞAKINU Íbúðarhúsið Vík í Garðinum er stórhættulegt að mati björgunarsveitarmanna. Þar er fiskinet notað til
að halda lausum þakplötum í skefjum þegar vindar blása um Garðinn. „Ef netið rifnar og allt fer af stað þá eru íbúarnir þarna í
kring náttúrulega í hættu,“ segir Oddur Jónsson, formaður björgunarsveitarinnar Ægis í Garði, um húsið.
HEILBRIGÐISMÁL Síðustu verk-
fallslotu lækna fyrir áramót lauk
í gær. Ástandið á spítölum er víða
mjög slæmt. Nýrnaþegi, sem
þurfti að vera í einangrun vegna
sýkingarhættu, var í gær lagður
inn á baðherbergi deildar 13-E á
Landspítalanum við Hringbraut.
Hildur Þóra Hallbjörnsdóttir
hjúkrunardeildarstjóri segir
algengt að baðherbergið sé notað
fyrir sjúklinga. „Ef allar aðrar
stofur, sem við notum í einangr-
un, eru uppteknar þá notum við
baðherbergið.“
Ólafur Ólafsson, fyrrverandi
landlæknir, segir öryggi sjúklinga
ekki tryggt. Hann segir rannsókn-
ir sem sjúklingar bíða eftir ekki
aðeins nauðsynlegar heldur lífs-
nauðsynlegar. - kbg / sjá síðu 2
Lítið þokast í kjaradeilu lækna:
Sjúklingur inni á
baði í einangrun
ÖRYGGISMÁL Óvenjulegur frágang-
ur á íbúðarhúsi í Garðinum vekur
áhyggjur nágranna. Þakplötur eru
lausar og eigandinn hefur ekki ráð
á að varna því að þær fjúki. Björg-
unarsveitin Ægir og bæjarstarfs-
menn strekktu loks fiskinet yfir
húsið til að halda plötunum í skefj-
um í hvassviðri. „Þetta er bara
stórhættulegt,“ segir Oddur Jóns-
son, formaður björgunarsveitar-
innar Ægis í Garði, um húsið Vík.
Vík hefur verið í niðurníðslu
um árabil. Eigendurnir hafa ekki
haft efni á viðgerðum. Í hvert
skipti sem gerði rok voru björgun-
arsveitarmenn kallaðir að. Loks
kviknaði sú hugmynd að bregða
neti yfir húsið svo það væri til
friðs og ógnaði ekki nærliggjandi
húsum. Oddur segir Ægismenn
hafa brugðið nót yfir Víkina með
hjálp bæjarstarfsmanna úr Garð-
inum fyrir um tveimur árum.
Óveðrin tvö að undanförnu tóku
sinn toll af Vík. Á miðvikudag
mættu tveir bæjarstarfsmenn til
að fiska upp þakplötur og festa
stög sem bundin eru við fiskikör
með fargi. - gar / sjá síðu 16
Frágangur á þakplötum íbúðarhúss í Garðinum vekur áhyggjur nágranna:
„Þetta er bara stórhættulegt“