Fréttablaðið - 12.12.2014, Blaðsíða 47
AUGLÝSING: NATHAN & OLSEN KYNNIR
Hönnuðurinn Jimmy Choo, sem marg-
ir Íslendingar þekkja, er þekktastur fyrir
glæsilega skó en einnig hannar hann
handtöskur, fylgihluti, sólgleraugu og
gleraugu.
Árið 2011 var brotið blað í sögu fyrir-
tækisins þegar ilmurinn Jimmy Choo var
settur á markað.
„Ilmurinn var hannaður til að fullkomna
línu fylgihluta fyrir þær konur sem hafa
gert vörur Jimmy Choo að sínu einkenn-
ismerki,“ segir Sesselja Sveinbjörnsdótt-
ir, þjálfari fyrir snyrtivörusvið hjá Nathan &
Olsen. Ilmurinn kom í tveimur ólíkum en
afar glæsilegum útgáfum, EDP og EDT.
Tveimur árum síðar leit glamúrilmurinn
FLASH svo dagsins ljós.
„Þessir þrír eru nú komir í sölu í fyrsta
sinn hér á landi sem gerir það að verkum
að konur fá loksins tækifæri til að eign-
ast smá hluta af hönnun hans.“ Jimmy
Choo er fæddur í Penang í Malasíu árið
1948 og hét Jimmy Chow, en hann var
óvart skráður í fæðingarvottorðið sem
Jimmy Choo. Hann er fæddur inn í skó-
gerðarfjölskyldu og lærði skógerð frá ell-
efu ára aldri.
Árið 1983 útskrifaðist hann úr London
School of Fashion og vann hin ýmsu störf
eftir það. Hann opnaði skóverslun i gam-
alli sjúkrahúsbyggingu kringum 1986 og
eignaðist þar góða og trygga viðskipta-
vini. Næstu árin byggðist orðspor hans
jafnt og þétt upp, hann hannaði skó fyrir
Díönu prinsessu árið 1990 og níu árum
síðar fyrir núverandi forsetafrú Bandaríkj-
anna, Michelle Obama. Hönnuðurinn var
svo gerður ódauðlegur í þáttunum frægu
„Sex and the City“ þegar sögupersónan
Carrie Bradshaw sagði „I lost my Choo“.
Árið 1996 leitaði Tamara Mellon, fast-
ur viðskiptavinur Jimmys Choo, sem
vann þá fyrir tískutímaritið Vouge sem
yfirmaður Vouge Accsessories, til hans
með viðskiptahugmynd og saman stofn-
JIMMY CHOO KOMINN TIL ÍSLANDS
Ilmvötnin frá Jimmy Choo eru loksins komin í verslanir hér á landi og var haldið flott teiti í tilefni þess á miðvikudagskvöldið.
Það var glatt á hjalla hjá þeim Eygló, Guðrúnu Dögg, Láru og Ragnheiði í partíi
sem haldið var til að fagna því að Jimmy Choo-ilmvötnin fást nú hér á landi.
Sesselju hjá Nathan og Olsen, Jóhönnu hjá Nude Magazine og Ernu hjá
Trendnet líkaði ilmurinn frá Jimmy Choo vel.
uðu þau Jimmy Choo Ldt. Haft hefur verið
eftir Tamöru Mellon að „það skiptir ekki máli
í hverju þú ert, ef þú ert í góðum skóm og
með flotta tösku ertu alltaf flott“.
Veldi Jimmys Choo óx með árunum, hann
bætti við hönnun sína og fyrirtækið hefur
hlotið mörg eftirsótt verðlaun. Í dag er Choo
orðinn einn helsti hönnuður Hollywood-
stjarnanna og hannar hann meðal annars
fyrir þá sem eru tilnefndir til Óskarsverð-
launanna og stjórnendur þess viðburðar.
Ilmvötnin fást í 40 og 60 millilítra umbúð-
um og body lotion í 200 millilítra og Jimmy
Choo ilminn færð þú í Hagkaupi í Holta-
görðum, Smáralind, Kringlunni, Garðabæ
og Akureyri, Lyfjum & heilsu í Kringlunni,
Snyrtivöruversluninni Glæsibæ og Make Up
Gallerýi á Akureyri.
Jimmy Choo FLASH:
Geislandi blóma- og viðarilmur fyrir nautnaseggi
sem þola eftirvæntingu og spennuna sem skapast
af þessari einstöku blöndu bleiks pipars, jarðar-
berja og púðurkenndra viðartóna.
Jimmy Choo Ilmurinn EDP:
Ávaxtailmur þar sem ilmurinn af djarfri
tígris orkídeu blandast djúpum og kyn-
þokkafullum tónum af karamellu og perum
og sætum ítölskum appelsínum.
Jimmy Choo Ilmurinn EDT:
Léttur blóma- og ávaxtailmur með kynþokkafullum
tónum orkídeunnar í bland
við peru og engifer.
Sesselja segir
Jimmy Choo ilminn
gera það að verkum
að íslenskar konur
fá loksins tækifæri til
að eignast hluta af
hönnun hans.