Fréttablaðið - 12.12.2014, Blaðsíða 38
FÓLK|
LANGLÍFI
„Fyrir utan þann
heilsugagnagrunn
sem ég hafði þegar
safnað skoðaði ég
einnig langlífis-
rannsóknir sem
hafa verið gerð-
ar víða í heimi. Þá
skoðaði ég líka
hverju langlífir ein-
staklingar þakka
langlífi sitt.“
Allar jólavættir Reykjavíkurborg-
ar eru búnar að koma sér vel
fyrir inni í Listasafni Reykjavíkur
– Hafnarhúsi þar sem þær munu
gleðja gesti safnsins í desember.
Jólavættirnar má einnig sjá á
húsveggjum víðsvegar í miðborg-
inni á sama tíma í tengslum við
skemmtilegan fjölskylduleik sem
er í gangi þessa dagana og ber
heitið Leitin að jólavættunum.
Leikurinn er bæði einfaldur og
skemmtilegur og gengur út á að
finna fimm vættir á húsveggjum
og skila svarseðli í Upplýsinga-
miðstöð ferða-
mála í Aðal-
stræti 2, eða
senda með
pósti fyrir 19.
desember.
Svarseðilinn
má nálgast í
Hafnarhúsinu,
í verslunum
í mið-
bænum og
á vefnum
jolaborgin.
is. Vegleg
verðlaun eru
í boði fyrir
þann sem
sigrar í
leikn-
um en úrslitin verða kynnt 21.
desember.
Jólavættirnar eru þrettán
talsins og bættust yngstu börn
Grýlu, Sighvatur og Surtla, í
hópinn nú í desember. Tilvalið
er fyrir þá sem ætla að taka
þátt í leiknum að byrja ferðina í
Hafnarhúsinu þar sem hægt er
að skoða allar jólavættirnar áður
en lagt er af stað í göngutúr-
inn. Jólavættirnar sem Gunnar
Karlsson myndlistarmaður hefur
teiknað eru byggðar á hugmynd
Hafsteins Júlíussonar um að
tengja Jólaborgina Reykjavík við
íslenska sagna-
hefð. Nánari
upplýsingar
má finna á
www.jola-
borgin.is.
JÓLAVÆTTIR MÆTTAR
FJÖLSKYLDULEIKUR Finna þarf fimm jólavættir á húsveggjum. MYND/HÖFUÐBORGARSTOFA
Það þarf ekki að vera flókið eða erfitt að hugsa vel um heilsuna. Oft þarf ekki að breyta miklu til
að það breyti miklu. Það er mikilvægt
að tileinka sér góða siði en það sem
maður gerir reglulega skiptir meira máli
en það sem maður gerir stöku sinnum,“
segir Jóhanna, sem er þjóðfræðingur
að mennt og starfar sem blaðamaður
og garðyrkjubóndi. Hún hefur
einnig haldið úti heilsublogg-
inu vanillaoglavender.is um
nokkra hríð. Þar deilir hún
uppskriftum að hollum og
góðum mat auk fróðleiks
um heilsuna sem hún hefur
sankað að sér.
„Síðastliðið vor hafði
útgefandi samband við mig
eftir að hafa rekist á bloggið
og vildi gefa út bók með
heilsuráðum sem þar má
finna,“ segir Jóhanna og
þannig hófst vinnan við
bókina 100 heilsuráð til langlífis sem nú
er komin út og er til sölu í öllum betri
bókaverslunum. „Í bókinni er að finna
hundrað ráð um það hvernig fólk getur
bætt og lengt líf sitt,“ lýsir Jóhanna.
Heilsuráðin snúa bæði að líkamlegri og
andlegri heilsu enda bendir Jóhanna
á að þetta tvennt verði að fara saman.
„Ráðin eiga það flest öll sameiginlegt að
það er bæði auðvelt og skemmtilegt að
fara eftir þeim,“ segir Jóhanna glettin,
en sem dæmi þá er mælt með því að
borða mikið af dökku súkkulaði,
vera örlátur og fækka fötum.
Jóhanna hefur lengi haft
áhuga á heilsu og langlífi og
við skrif bókarinnar sankaði
hún að sér ýmsum fróðleik.
„Fyrir utan þann heilsugagna-
grunn sem ég hafði þegar
safnað skoðaði ég einnig lang-
lífisrannsóknir sem hafa verið
gerðar víða í heimi. Þá skoð-
aði ég líka hverju langlífir ein-
staklingar þakka langlífi sitt.“
100 heilsuráð til langlífis er
gefin út af Óðinsauga, Sólveig
Eiríksdóttir, Solla í Gló, skrifar
formála bókarinnar en listakonan Ólöf
Haraldsdóttir myndskreytir bókina.
RÁÐ TIL LANGLÍFIS
ÓÐINSAUGA KYNNIR 100 heilsuráð til langlífis er heiti bókar eftir Jóhönnu
Sigríði Hannesdóttur, þjóðfræðing og heilsubloggara.
● SÝNING
Sirkus Íslands setur upp fágaðan full-
orðinskabarett á aðventunni í upphituðu
sirkustjaldi í Hljómskálagarðinum. Lista-
menn sýna jafnvægislistir, sirkusbrögð,
loftfimleika, söng, skemmtileg og skrítin
atriði. Gestir sirkussins geta búist við
gleði, glensi og jólabjór.
Tvær sýningar eru eftir, í kvöld og annað
kvöld klukkan 20.
Sýningin er bönnuð innan 18 ára, miðaverð
er 3.500 krónur en miðasala fer fram í
gegnum midasala@sirkusislands.is.
SIRKUS FYRIR
FULLORÐNA
Jólakabarett í
Hljómskálagarðinum
GEFUR GÓÐ RÁÐ
Jóhanna heldur úti
heilsublogginu van-
illaoglavender.is þar sem
hún deilir uppskriftum
að hollum og góðum
mat auk fróðleiks um
heilsuna.
MYND/SUNNLENSKA.IS
HELGIN