Fréttablaðið - 12.12.2014, Blaðsíða 58
Lífi ð
StyleScrapbook
stylescrapbook.com/
Andy er fædd og uppalin í Mexíkó
en flutti tiI Amsterdam fyrir átta árum.
Þar hófst ferill hennar í tískubransan-
um en hún hefur starfað víða í þeim
bransa. Hún byrjaði svo með tísku-
bloggið sitt StyleScrapbook fyrir
rúmum sjö árum og þá fyrst fór bolt-
inn að rúlla. Hún byrjaði upprunalega
að blogga vegna þess að hana lang-
aði að deila draumum sínum, mark-
miðum og sögu með öðrum en grun-
aði ekki að það hefði þau áhrif sem
það svo hafði á líf hennar og starf.
Hún hefur fengið ótal frábær tækifæri
í gegnum bloggið sitt og hefur það
notið mikilla vinsælda þessi sjö ár.
Meðal þeirra starfa sem Andy hefur
sinnt eru ritsjórnarstaða hjá hollenska
GLAM OUR, stjórnað vinsælum sjón-
varpsþætti í Suður-Ameríku, fengið að
taka þátt í ýmsum spennandi hönnun-
arverkefnum fyrir þekkt tískumerki auk
þess að hafa fengið fjölda verðlauna
fyrir bloggið frá aðilum eins og ELLE,
Polyvore og Bloglovin.
BLOGGARINN FÉKK ÖLL SÍN TÆKIFÆRI Í GEGNUM BLOGGIÐ
David Frenkel er hugmyndasmið-
ur @gkstories á Instagram en hann
og kærasta hans halda úti sænska
blogginu Green Kitchen Stories.
Fallegar myndir af girnilegum og
orkuríkum grænmetisréttum, marg-
ar uppskriftirnar eru vegan og flest-
ar þeirra glúteinfríar.
Green Kitchen Stories
@gkstories
Sabrina Meijer stofnaði heimasíð-
una afterDRK í þeim tilgangi að
höfða til alls tískuáhugafólks, þá
sérstaklega þeirra sem hafa smekk
fyrir einfaldleika. Susan Bolten og
Nicole Huisman halda úti síðunni
með henni og hafa þær allar sitt til
málanna að leggja þegar kemur
að tísku og stíl. Þær stofnuðu svo
Pinterest-síðu í kjölfarið sem er
bæði falleg og stílhrein og tilvalin
fyrir alla tískuunnendur.
afterDRK
pinterest.com/afterdrk/
Skemmtileg Twitter-síða sem býður
meðal annars upp á daglegar upp-
lífgandi tilvitnanir sem minna okkur
á að taka lífinu með ró og anda
djúpt í dagsins önn. Á síðunni er
bókstaflega allt að finna fyrir jóga-
áhugafólk. Þar eru ráð, tillögur að
góðum bókum, tæki og tól og mik-
ill fróðleikur um allt sem viðkem-
ur jóga.
Daily Cup of Yoga
twitter.com/dailycupofyoga