Fréttablaðið - 12.12.2014, Blaðsíða 70
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 40
„Ég var í rauninni alveg hætt-
ur að leika í sýningunni en nú
fékk ég tækifæri til að rifja upp
kynnin við Stein gamla á nýjan
leik,“ segir Felix Bergsson sem á
sunnudaginn stígur á svið í verki
sínu Ævintýrinu um Augastein í
Tjarnarbíói. „Ég er búinn að leika
eina sýningu núna á aðventunni
og það var bara mjög gaman.“
Ævintýrið um Augastein var
upphaflega samið á ensku og
frumsýnt í Drill Hall leikhús-
inu í London 2002, en ári síðar
var verkið frumflutt í íslenskri
útgáfu í Tjarnarbíói. Þá kom
ævintýrið einnig út á bók, sem
notið hefur mikilla vinsælda æ
síðan. Fyrir tveimur árum rétti
Felix Bergsson keflið til Orra
Hugins Ágústssonar, en Felix
hafði þá leikið sýninguna fyrir
tíu jól. Orri lék 2012 og 2013, en
nú er Orri svo upptekinn við að
leika í Línu Langsokk í Borgar-
leikhúsinu að Felix þarf að hlaupa
undir bagga, var hann ekkert far-
inn að ryðga í rullunni? „Tja, svo-
lítið, en það var fljótt að koma
til baka.“ Og þú ert ekkert orð-
inn leiður á þessu verki eftir öll
þessi ár? „Alls ekki, við höldum
áfram mörg ár í viðbót,“ segir
Felix. „Ég hitti í flugi um dag-
inn flugfreyju sem var að koma á
sýninguna með börnin sín ellefta
árið í röð og þá þyrmdi yfir mig
að við getum aldrei hætt þessu.
Það er óskaplega gleðilegt að fólk
sé farið að líta á ferð á Ævintýr-
ið um Augastein sem ómissandi
hluta af jólaundirbúningum.“
Felix stígur á svið í Tjarnar-
bíói á sunnudaginn, 13. desember,
klukkan 14 og það verður síðasta
sýningin fyrri þessi jól. - fsb.
Getum ekki hætt
með Augastein
Felix Bergsson leikur einleik sinn Ævintýrið um Augastein í Tjarnarbíói á
sunnudaginn. Það verður síðasta sýning á verkinu vinsæla fyrir þessi jól.
ÆVINTÝRIÐ UM AUGASTEIN Felix hefur leikið í sýningunni síðan 2002 með
tveggja ára hléi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ég hitti í flugi um
daginn flugfreyju sem
var að koma á sýninguna
með börnin sín ellefta
árið í röð og þá þyrmdi
því yfir mig að við getum
aldrei hætt þessu.
Þau Hlín Pétursdóttir Behrens
sópran, Hólmfríður Jóhannes-
dóttir, messósópran og Jón Sig-
urðsson píanóleikari flytja sína
eftirlætistónlist sem tengist
jólum og aðventu í Dómkirkj-
unni á sunnudaginn.
Á dagskránni eru bæði gamal-
kunnug og minna þekkt íslensk
jólalög. Meðal þeirra eru söngv-
ar eftir Þórunni Guðmundsdótt-
ur sem sýnir jafnan tilveruna í
nýju ljósi, jafnvel spaugilegu,
það á meðal annars við um jóla-
undirbúninginn og jólasiðina.
Einnig hljómar tónlist eftir
Hreiðar Inga Þorsteinsson, Jón
Hlöðver Ásgeirsson, Ingibjörgu
Þorbergs og Gunnar Þórðarson.
Af erlendum tónskáldum sem
koma við sögu má nefna Benja-
min Britten og Max Reger.
„Eftirvænting eftir komu
jólanna er eitthvað sem fæst
okkar vaxa upp úr,“ segir Hlín
og heldur áfram á heimspeki-
legum nótum. „Þegar tilhlökk-
unin nær hámarki birtast okkur
ljóslifandi minningar um jóla-
anda liðinna tíma sem fylla hug
og hjarta. Þetta eigum við ekki
síst jólalögunum að þakka sem
mynda ramma utan um hefðirn-
ar sem tengja okkur um leið við
fortíðina.“
Tónleikarnir hefjast klukkan
16. Aðgangseyrir er kr. 2.000
og 1.500 fyrir öryrkja og eldri
borgara.
gun@frettabladid.is
Jólaandi liðinna tíma
Aðventutónleikar verða í Dómkirkjunni á sunnudag.
TRÍÓ Hlín, Hólmfríður og Jón hafa unnið saman rúm í þrjú ár og víða komið fram.