Fréttablaðið - 12.12.2014, Blaðsíða 40
2 • LÍFIÐ 12. DESEMBER 2014
HEILSUVÍSIR Á SPOTIFY
Skannaðu kóðann og tónlistar-
heimur Heilsuvísis opnast þér
LÍFIÐ MÆLIR MEÐ
ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Umsjón Friðrika Hjördís Geirsdóttir rikka@365.is ● Ábyrgðarmaður Erla Björg Gunnarsdóttir
erlabjorg@365.is ● Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
● Forsíðumynd Ernir Eyjólfsson ● förðun Elísabet Ormsley ● fatnaður Andrea Boutique
Lífi ð
www.visir.is/lifidKringlunni
í Lyfjum & heilsu Kringlunni
Shiseido dagar
20%
afsláttur af
kremum og
farða
40%
afsláttur af
litavörum
12.-14. desember
Flest okkar eigum þá ósk og
markmið að verða hamingjusöm.
Oft á tíðum ætlumst við til þess að
hamingjan banki upp á hjá okkur,
komi sem holdgervingur mak-
ans, barnanna eða einhvers ann-
ars sem bíður okkar í framtíðinni
eða jafnvel eitthvað sem við skild-
um eftir í fortíðinni. Í tengslum
við hamingjuna er vert að minn-
ast svars sem John Lennon heit-
inn gaf kennurunum sínum þegar
hann var barn. Spurningin var
einföld: „Hvað ætlarðu að verða
þegar þú ert orðinn stór?“ Spurn-
ing sem við fullorðna fólkið leggj-
um endrum og eins fyrir börn
enda koma oftar en ekki skemmti-
leg og fjölbreytileg svör. Mörg
börn vilja verða slökkviliðsmenn,
ofurhetjur, hárgreiðslufólk og
svo mætti lengi telja. Svarið sem
Lenn on gaf kennurunum sínum
var alveg jafngilt og svör ann-
arra barna, hann sagðist ætla að
vera hamingjusamur þegar hann
yrði stór.
Kennararnir undruðust þetta
svar barnsins og sögðu hann mis-
skilja spurninguna en hann svar-
aði á móti að þeir misskildu lífið.
Hamingjan er nefnilega ekki svo
flókin né fjarlæg. Hamingjan er
í okkur öllum, hún er ákvörðun
sem hvert og eitt okkar verður að
taka. Byrjaðu hvern morgun á því
að ákveða að dagurinn í dag færi
þér hamingju og gleði. Hlustaðu
á tónlist sem fær þig til að brosa.
Umkringdu þig fólki sem er já-
kvætt og hláturmilt. Staldraðu
við og finndu áferðina og bragð-
ið af kaffinu, finndu ilminn af
sturtusápunni. Það er talað um
að það taki 21 dag að búa til nýjar
venjur. Prófaðu að ákveða það
næstu þrjár vikurnar að hafa dag
hvern hamingju og gleði í fyrir-
rúmi. Hafðu þakklætið líka með
í för og skrifaðu hjá þér eitthvað
þrennt sem þú getur þakkað fyrir
á hverjum degi. Gerðu þetta áður
en þú ferð að sofa og fylgstu með
hvernig lífið verður sífellt bjart-
ara og hamingjuríkara.
„Hamingjan er
nefnilega ekki svo
flókin né fjarlæg.
Hamingjan er í
okkur öllum, hún er
ákvörðun.“
Friðrika Hjördís
Geirsdóttir
Umsjónarkona Lífsins
Lífið mælir með því að þú skellir þér
á einhverja af þeim fjölmörgu jóla-
tónleikum sem í boði eru. Fátt er jafn
skemmtilegt og róandi eins og að
hlusta á góða tónlist í góðra vina
hópi eða með fjölskyldumeðlimum.
Fallegir jólatónleikar setja tóninn fyrir
jólin og allir komast í hátíðarskap.
… JÓLATÓNLEIKUM
HAMINGJAN VAR ÞAÐ HEILLIN
Margar rannsóknir hafa verið gerðar um hamingjuna og niðurstöðurnar eins ólíkar og þær eru
margar. En er hamingjan flókin eða einföld?
Íslandsvinkonan Beyoncé á
ekki ófáa smelli sem fá hjartað
til að slá örar.
Eftirfarandi lög eru í upp-
áhaldi hjá Heilsuvísi og tilvalin
í líkamsræktina.
RUN THE WORLD
(GIRLS)
CRAZY IN LOVE
DEJA VU
CHECK ON IT
feat Bun B and Slim Thug
SINGLE LADIES
VIDEO PHONE
BEAUTIFUL LIAR
feat Shakira
SURVIVOR
feat Destiny´s Child
GET ME BODIED
BOOTYLICIOUS
feat Destiny´s Child
ÞAÐ BESTA FRÁ
BEYONCÉ
● að f ranskar kartöflur eru
upprunalega frá Belgíu
● að Astekarnir uppgötv-
uðu poppkorn
● ða g reipávöxtur sp ir ng-
ur e f hann e r settur í ö r-
bylgju fo n
● að gúrka er 96% vatn
● að l árpera e r ávöxtur en
ekki grænmeti
l
l l
l
l
Heilsuvísir
VISSIR ÞÚ …